Ský - 01.01.2006, Blaðsíða 68
68 sk‡
KYNNING
Mikil breyting hefur orðið á þjón-ustu Skjásins við áhorfendur í kjölfar aukinna möguleika sem
fengist hafa með gagnvirku
sjónvarpi, stafrænu gagn-
virku kerfi, sem verið er
að þróa með Símanum, að
sögn Magnúsar Ragnars-
sonar sjónvarpsstjóra. Nú
getur fólk fengið mikið
úrval erlendra rása, sem og bíómyndaþjón-
ustu, hjá Skjánum og gagnvirka kerfið gerir
mönnum kleift að veita þessa þjónustu um
allt land, enda er svo komið að 93% heimila
njóta hennar í gegnum ADSL-kerfi Símans.
Fyrirtækið sem fólk þekkir sem Skjá
Einn, en hét réttu nafni Íslenska sjónvarps-
félagið, hefur stækkað gríðarlega á síðustu
tveimur árum í framhaldi af sameiningunni
við Símann. Það sem áður var aðeins ein
sjónvarpsstöð hefur vaxið hratt og því hefur
fyrirtækinu verið gefið nýtt nafn, Skjárinn.
Verið er að þróa stafrænt gagnvirkt kerfi sem
leiðir til þess að Skjárinn getur veitt mikla
þjónustu úti um allt land.
Ótrúlega fjölbreytt efni
„Við höfum vaxið frá því að vera bara Skjár
Einn yfir í að dreifa öðru efni svo sem Enska
boltanum á fimm rásum. Þá er farið að selja
EKKERT STÖÐVAR
ÞRÓUNINA Á SKJÁNUM
Bíómyndaþjónusta
á Skjánum með
250-300 myndum.
Magnús Ragnarsson sjónvarpsstjóri.
65 rása erlent endurvarp með öllum helstu sjónvarpsstöðvum og loks bjóðum við upp á
bíómyndaþjónustu VOD (Video on Demand). Þetta köllum við Nýja bíó og Gamla bíó og
þarna erum við með Hollywood-kvikmyndir og stórmyndir sem fólk getur horft á heima hjá
sér án þess að fara út í vídeóleigu til að leigja sér spólu eða disk. Nú þegar
er boðið upp á milli 250-300 titla í þessari útleigu. Fólk hefur myndina í
sjónvarpinu í einn sólarhring, rétt eins og þegar það leigir sér mynd á leigu.
Kosturinn er að þurfa hvorki að fara og ná í myndina né skila henni aftur.
Það segir sig sjálft að allt þetta gátum við ekki höndlað áður með gamla
kerfinu og aðeins einni rás.“
Magnús segir að auk þessa sé fullt af ókeypis efni á VOD-þjónustu Skjás-
ins, innlendir þættir og fréttir og Kastljós RÚV, eftir að samstarf komst á þar í milli. Þá er
boðið upp á Skjá Einn+ og RÚV+ sem þýðir seinkun útsendinga svo fólk þarf ekki að missa
af því sem það hefur áhuga á þótt það geti ekki séð það á rétta útsendingartímanum.
Nær til 93% heimila
„Við dreifum sjónvarpsefninu á tveimur dreifikerfum sem gerir hlutina pínulítið flóknari. Í
fyrsta lagi er dreift á breiðbandinu og í öðru lagi um ADSL-kerfi Símans en það er sá hluti
sem er gagnvirkur. Erlendu rásirnar eru á báðum kerfunum en gagnvirku rásirnar eins og
kvikmyndapöntunin verður að vera á ADSL-kerfinu. Í gegnum það ná 93% heimila útsend-
ingum sjónvarpsstöðvanna en hlutfallið er ekki alveg jafnhátt hvað varðar þá sem geta fengið
kvikmyndirnar.
Dreifisvæði VOD-þjónustunnar nær nú um höfuðborgarsvæðið og Reykjanes og allt upp
í Borgarnes til norðurs. Í austur nær það til Hvolsvallar og Vestmannaeyja og ennfremur
norður til Akureyrar og Húsavíkur.“
Það verður gaman að þróa starfsemina áfram, að sögn Magnúsar, sem bætir við að næstu
skrefin verði að bjóða upp á upptöku á efni miðlægt. Þá getur fólk merkt við í dagskrárvís-
inum í sjónvarpinu, sem virkar eins og vídeótæki sem tekur upp efnið, og horfa á það þegar
tími vinnst til. Fljótlega verður farið að bjóða upp á að tengja myndaalbúm fólks við sjón-
varpið. „Það er ekkert sem stoppar okkur tæknilega, nú þegar hægt er að senda skilaboð í
báðar áttir,“ segir Magnús Ragnarsson að lokum.
S
K
JÁ
R
IN
N
Pretty Woman Hide And SeekStrákarnir okkar
Bara á Skjánum
The Polar Express Sideways Miss Congeniality 2 Constantine
Við mælum með ...
Man On Fire
Væntan
leg
24. feb.
Gegn 12 mánaða skuldbindingu um
áskrift færir Skjárinn þér ómetanlega gjöf.
Þú færð Skjáinn í öllum verslunum Símans, í síma 800 7000 eða á skjarinn.is
Sparaðu12.490 kr.
Skráðu þig fyrir Skjánum
og þú borgar ekkert fyrir fyrsta mánuðinn!
Vinsælar myndir ...
A Lot Like Love
Rómantísk gamanmynd
sem er væntanleg
á BÍÓ/VOD.
The Tigger Movie
Væntanleg13. feb.Frítt þráðlaust Internet í einn mánuð
Frítt Internet, frítt ADSL & frí uppsetning.
Andvirði 8.495 kr.
60 frábærar sjónvarpsrásir frítt í einn mánuð
Aðgang að vídeóleigu í gegnum sjónvarpið að auki.
Andvirði 3.995 kr.
Ef þú ert með internetaðgang hjá Símanum
geturðu fengið aðgang að vídeóleigu heima
í stofu og 60 rásir frítt í einn mánuð.
Á Skjánum getur þú pantað frábærar kvikmyndir á BÍÓ/VOD með
fjarstýringunni og horft á þær eins oft og þú vilt í 24 klst. Verð frá 250 kr.
SPARAÐU ÞÉR SPORIN!
sky
,