Ský - 01.01.2006, Síða 20

Ský - 01.01.2006, Síða 20
„Já, Íslendingar eru fordómafullir og for- dómar þeirra byggjast eins og allir for- dómar á því að dæma fólk áður en þeir kynnast því. Fordómarnir eru meira áberandi hjá ungu og miðaldra fólki en minnstir hjá þeim elstu. Það stafar kannski af því að margir útlendingar starfa á elliheimilum og þar sem gamla fólkið hefur bein kynni af útlending- unum dæmir það þau ekki. Ung börn í dag eru alin upp í fjölmenningarsamfé- lagi, sem vonandi forðar þeim frá því að verða fordómafull þegar þau eldast.“ Lennart segist hvorki verða var við fordóma gagnvart heimalandi sínu, Sví- þjóð, né gagnvart litarhætti eða trúar- brögðum: „Hins vegar koma Íslendingar öðru- vísi fram við útlendinga en landa sína, en það er þó ekki alltaf á neikvæðan hátt. Stundum vilja þeir taka útlending- ana undir sinn verndarvæng og hjálpa þeim, jafnvel þótt hinn útlendi sé mjög sjálfstæður og fullfær um að taka ábyrgð. Að mínu mati flokkast þetta undir netta „fordóma“ þegar útlendingar eru meðhöndlaðir eins og smábörn!“ Lennart segist ekki vita hvort for- dómar séu ríkjandi hér vegna sambands svartra og hvítra en gagnvart trúar- brögðum segist hann verða var við for- dóma gagnvart múslimum: „Fordómar eru hins vegar útbreiddir um allan hinn vestræna heim og því ekki á neinn hátt séríslenskt fyrirbrigði. Fordómar eru jafnalgengir hér og annars staðar, þeir eru hvorki meiri né minni.“ Eru fordómar í þínu heimalandi gagnvart einhverju? „Já, gagnvart Aröbum og fólki frá Austur-Evrópu.“ Finnst þér sérkennilegt að hér ríki fordómar í ljósi þess að Ísland er orðið fjölmenningarlegt samfélag? „Nei það er ekkert sérkennilegt því Ísland hefur ekki lengi verið fjölmenn- ingarlegt né heldur búið hér lengi fólk af öðrum litarhætti en hvítum. Það má alltaf búast við ákveðinni tregðu þegar sú veröld sem fólk þekkir breytist.“ Hvernig er best að útrýma fordómum? „Með samskiptum og tjáskiptum, en umfram allt með því að ferðast um heiminn og kynnast honum.“ Við þurfum að kyngja stolti okkar. Og hvers vegna gerum við það? Jú, einfaldlega vegna þess að við viljum verða samþykkt af þjóðfélaginu og höldum í vonina um að einn dag munum við fá það starf sem við eigum skilið. Eftir að hafa upplifað fordóma hef ég þurft að horfast í augu við það að sjálf get ég verið fordómafull í garð Íslendinga, en ég reyni að ýta þeim frá mér því með því að dæma aðra geri ég sjálfa mig síst að betri manneskju.“ Það er þó ekki mat Claudette að Íslendingar séu fordómafyllri en aðrar þjóðir: „Þið eruð hvorki meira né minna fordómafull en aðrar þjóðir en þegar upp er staðið snýst þetta um stjórnmál. Spurningin er: „Ef Ísland vill opna landið fyrir útlendingum, hvers vegna þá að fara í mann- greinarálit?“ Mér finnst þið til dæmis sýna meiri fordóma gagnvart Asíubúum en öðrum. Lofið þeim að aðlagast hér, það er alltaf erfitt fyrir fullorðinn einstakling að eignast nýtt heimaland. Lofið þeim að sýna hvað í þeim býr áður en þið dæmið.“ Eru fordómar í þínu heimalandi gagnvart einhverju? „Já, þar eru miklir fordómar í garð samkynhneigðra og fyrrum forseti Namibíu sagði opinberlega að hann vildi ekki hafa samkynhneigða í landinu og þeim bæri að vísa úr landi. Mér finnst merkilegt að sjá viðhorf Íslendinga gagnvart samkynhneigðum. Ég tárast alltaf á „Gay Pride“ daginn þegar ég sé almenn- ing styðja þau og gera daginn þeirra hátíðlegan. - Ég kem úr veröld þar sem móðir mín, frænkur og ég sjálf giftumst hvítum mönnum. Við vorum stimplaðar sem ómerkilegar konur sem ættu ekki að tilheyra þjóðfélaginu.“ Ef þér finnst Íslendingar fordómafullir, er það þá ekki sérkennilegt í ljósi þess að Ísland er orðið fjölmenningarlegt samfélag? „Jú, að mörgu leyti finnst mér það en í ljósi þess hversu lítið landið er ættuð þið að hafa betri tök á að útrýma fordómum. Evrópa er fjölmenningarlegt samfélag og ég held að hluti Íslendinga vilji að Ísland verði þannig líka, en meirihlutinn er á móti því.“ Hvernig telur þú best að útrýma fordómum? „Þeir sem flytja hingað verða að læra íslensku og leggja sig fram um að taka þátt í íslenska samfélaginu. Þeir mega ekki reiðast eða leggjast í sjálfsvorkunn ef hlutirnir ganga ekki upp strax heldur sýna hvað í þeim býr og öðlast þannig virðingu. Við sem kjósum að flytja hingað viljum hefja nýtt líf og óskum þess eins að Íslendingar taki okkur eins og við erum og hjálpi okkur við að verða hluti af Íslandi. Um þetta bið ég persónulega á hverjum degi.“ Þegar veröldin breytist Lennart Edenfjord er frá Svíþjóð og hefur búið á Íslandi í tvö ár. Hann starfar sem næturvörður á hóteli. 20 sk‡ Fordómar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.