Ský - 01.01.2006, Page 31

Ský - 01.01.2006, Page 31
Á STÓRAN HLUT Í STÓRFYRIRTÆKJUM Sirrý segir viðskiptavinahóp sinn stóran og tryggan: „Hann samanstendur af körlum og konum á öllum aldri. Það er mikill misskilningur að karlmenn vilji eitthvað síður en konur láta spá fyrir sér. Mjög margir karlmenn leita til mín áður en þeir fara út í fjárfestingar eða vegna atvinnu- eða fjármála og ég segi oft í gamni að ég eigi ótrúlega stóran hlut í mörgum íslenskum stórfyrirtækjum!“ segir hún brosandi. „Svo eru auðvitað alltaf einhverjir að leita að ástinni. Ekki aðeins ungar stúlkur heldur líka fólk á tíma- mótum. Hjónaskilnaðir eru tíðir og fólk missir maka sinn og langar að vita hvort það eigi eftir að eiga samleið með einhverjum öðrum. Aðrir koma fyrir forvitni sakir; eru kannski ekki að leita svara við ákveðnum spurningum en spyrja þá gjarnan um börn sín og barnabörn. Ég segi fólki frá öllu sem ég sé, enda fylgir farangur hverri manneskju.“ Verð hjá spákonum er afar misjafnt og Sirrý segir þær miskunnarlaust „njósna“ hver um aðra: „Ég hef meira að segja fengið símtal frá spá- konu sem húðskammaði mig fyrir að vera alltof ódýr!“ segir hún og skellihlær. „Ég spurði hana nú bara síðan hvenær við værum saman í félagi, það hlyti hver og ein að ráða sjálf hvaða gjald hún setti upp.“ -Það hefur þá semsagt aldrei komið til tals að stofna slíkt félag, félag íslenskra spákvenna ...? „Nei, það gengi aldrei,“ segir hún. „Hér ríkir svo mikil samkeppni að við gætum aldrei komið okkur saman um neitt! Í Danmörku er hins vegar starfandi slíkt félag. Þar þurfa spákonur og spámenn að sanna sig áður en þau fá inngöngu í félagið.“ -Hvað með skatta? „Ég borga fullan skatt af mínum tekjum sem koma gegnum Símatorgið,“ segir hún. „Hins vegar hef ég auðvitað engar tryggingar, hef aldrei fengið sumarleyfi, aðeins tvisvar á ævinni farið til útlanda og hef ekkert atvinnuöryggi annað en það að á meðan spádómarnir rætast hef ég örugga vinnu. Ég treysti bara á Guð og lukkuna ...“ Þeir sem eru forvitnir um fram- tíð sína geta annaðhvort hringt í spásímann 908 6116 eða pantað einkatíma í síma 823 6393. sky ,

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.