Ský - 01.01.2006, Page 50

Ský - 01.01.2006, Page 50
 50 sk‡ „Hér getur vaxið og dafnað flóra af fyrirtækjum og stofnunum í hátækniiðnaði, ráðgjöf, rannsóknum og þjónustu. Ég er viss um að það er framtíðin fyrir Ísland.“ SIGRÍÐUR VALA HALLDÓRSDÓTTIR Sigríður Vala Halldórsdóttir, verkfræðinemi og formaður Félags véla- og iðnaðarverkfræðinema, segir að það hljóti að vera markmið að spara, hagræða og nýta allt betur en nú er gert. Það er verkefni framtíðarinnar að takast á við að minnka úrgang, draga úr orku- og eiturefnanotkun og hún álítur að fyrirtækjum verði settar þrengri skorður um losun úrgangs því ekki sé hægt að bjóða náttúrunni upp á meira af slíku. Sigríður Vala trúir því að hér geti vaxið og dafnað flóra af fyrir- tækjum og stofnunum í hátækniiðnaði, ráðgjöf, rannsóknum og þjón- ustu. Hún er viss um að þetta sé framtíðin fyrir Ísland því þess háttar rekstur skapi verðugan starfsvettvang fyrir vel menntað fólk, gefi góð laun og tryggi að mannauðurinn flytjist ekki úr landi. En til þess að þessi þróun fá byr undir báða vængi verða réttu rek- starskilyrðin að vera fyrir hendi, mörg fyrirtæki af fyrrnefndu tagi hafa risið á síðasta áratugnum og komist vel af hingað til. Ísland hefur mikla sérstöðu á mörgum sviðum og hér ætti að vera auðvelt að koma á góðri tengingu milli háskóla, stofnana og fyrirtækja til að treysta atvinnulífið og skipa okkur þannig í fremstu röð í alþjóðasamkeppni. ANDRI SNÆR MAGNASON Andri Snær Magnason rithöfundur var að ljúka skrifum bókar um framtíð Íslands. Bókin er skrifuð sem hugmyndabók um fortíð og framtíð og kemur út um miðjan febrúar. Andri segist vita að menn verði svolítið hræddir þegar þeir verði búnir að lesa hana, en hann vinni í voninni og skrifi um nýjar hugmyndir til úrbóta. Honum líst ekkert á markmið þjóðarinnar í orkumálum og gerir grín að þeirri „háleitu hugsjón“ sumra ráðamanna að bjarga heiminum með orku- og álframleiðslu okkar. Í hnattrænum skiln- ingi skipti framleiðsla okkar heldur engu máli því hún verði aldrei annað en dropi í hafið. Andri heldur að við séum á örlagapunkti í stóriðjumálunum. Einu stóru markmiðin sem við sjáum eru stóriðjuvæðing, en þeir sem horfa til framtíðarinnar verði að velta alvarlega fyrir sér áhrif- unum á samfélagið og andrúmsloftið. Áhrifin verða stórvægileg og munu hafa áhrif á sjálfsímyndina og ímynd okkar út á við. Andri heldur því fram að framtíðin feli í sér óteljandi möguleika ef við viljum breyta. Hann vill að við stígum eins létt til jarðar og við getum, göngum á undan með góðu fordæmi og séum leiðandi í að nýta betur þann auð sem við eigum. Andri segir eina af ástæðunum fyrir því hvernig stóriðja hefur þanist út á Íslandi að fólkið í sveitum landsins sé valdalaust. Bændur eru háðir stjórnvöldum, sveitirnar eru skilgreindar eftir framleiðsl- ugetu, strúktúrinn læstur og íbúunum haldið föngnum í stað þess að þeir fái að vera frjálsir og stoltir. Hann telur að við ættum að einbeita okkur að framleiðslu á einstökum náttúruafurðum okkar, Framtíðin Sigríður Vala Halldórsdóttir verkfræðinemi. Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Landverndar.

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.