Ský - 01.01.2006, Síða 58

Ský - 01.01.2006, Síða 58
 58 sk‡ stök þegar notaðir eru skjávarpar til að horfa á sjónvarp. Góðar kvikmyndir og boltinn í beinni henta sérstaklega vel, en einhvern veginn er það svolítið yfirþyrmandi að láta Elínu Hirst fylla út hálfan stofuvegginn við fréttalesturinn. En það er heldur engin almennileg mynd án góðs hljóðs. Hljómflutningstækin á hátækniheimilinu eru að sjálfsögðu heima- bíó, en reyndar engin bónusheimabíó. Þró- uðustu heimabíóin geta skynjað rými her- bergisins og stillt hljóminn eftir því. Þau eru jafnframt með innbyggðan harðan disk til að vista á tónlist eða kvikmyndir og hægt að koma því þannig fyrir að þau séu tengd öðru hátalarasetti annars staðar í húsinu – og hægt að hlusta þar á tónlist í gegnum heimabíóið jafnvel þótt aðrir fjölskyldumeðlimir séu að horfa (og hlusta) á kvikmynd í sjónvarpinu. Myndsíminn á næsta leyti Það er reyndar margt annað sem tilheyrir hátækniheimilinu en þessi hefðbundni tölvu- búnaður og svo sjónvarp og hljómtæki. Símar hafa til dæmis tekið undir sig stökk síðustu misserin eftir nokkur tíðindalítil ár þar á undan. Heimilissímar með SMS-mögu- leikum eru tæpast nauðsynlegir, en mörgum þykir engu að síður gott að geta SMS-vætt heimilissímann. Sú bylting sem er þó hvað mest yfirvofandi í símamálum er netvæð- ingin. Nú eru t.d. komin sérstök Skype-símtæki á markaðinn hér á landi sem virka þannig að litlu senditæki er stungið í samband við heimilistölvuna. Senditækið er síðan í þráðlausu sambandi við símtækið, þannig að hægt er að tala með því í gegnum Skype eins og um venju- legan síma væri að ræða. Fyrir þá sem ekki þekkja Skype er það lítið tölvuforrit sem gerir fólki kleift að hringja ókeypis milli tölva eða þá hringja í landlínu hvar sem er í heiminum og greiða einungis kostnað innanlandssímtala fyrir. Víða erlendis eru fjarskiptafyrirtæki svo farin að bjóða internetsíma sem einn þriðja af svokallaðri „triple-play“ þjónustu, sem gengur út á að veita almenningi netaðgang, sjónvarp og síma í gegnum háhraða-nettengingar. Oft fylgir með í þeim kaupum myndsímaþjónusta, þannig að þeir sem spjalla saman geta horft á viðmælendur sína á skjá símtækjanna. Ekki er vitað hvenær slík þjónusta verður í boði hér á landi, en það ætti þó að gerast innan nokkurra ára. Það er nú sennilega fátt eins hátækniheimilislegt og sími með mynd – en það minni þekkjum við úr hverri einustu vísindaskáldsögu tuttugustu aldarinnar. Bein útsending frá öryggismyndavélunum Tækninýjungum sem tengjast öryggi heimilanna fleygir jafnframt fram þessa dagana. Örygg- isvöktun getur t.d. farið fram í gegnum nettengingu heimilisins og þannig má t.d. setja upp vefmyndavélar sem vakta dyr eða herbergi. Þegar einhver hreyfing greinist senda myndavél- arnar myndir inn á tölvukerfi heimilisins sem svo getur sent þær áfram – t.d. til vaktmanna öryggisfyrirtækis. Jafnframt er hægt að gera húseiganda viðvart með hringingu eða SMS-send- ingu í farsíma og með öflugri gagnaflutningum í gegnum farsímanet getur húseigandinn jafn- vel tekið við hreyfimyndum úr myndavélunum beint í farsímann. Slík kerfi geta jafnframt skynjað aðra hluti á borð við eld, vatnsrennsli eða aðra óeðlilega hluti og látið vita af þeim. Hátækniheimilið er jafnframt þeim kostum búið að flestir hlutir sem hreyfast eru raf- knúnir og hægt að fjarstýra þeim. Gluggatjöld eru til dæmis dregin frá og fyrir með fjarstýr- ingu og lýsing getur bæði verið sjálfvirk – þ.e. ef skynjarar greina manneskju á ferð kvikna ljósin en slokkna ef enginn er nærri – og fjarstýrð, þar sem íbúar geta kveikt, slökkt eða fínstillt ljós með fjarstýringunni án þess að skríða upp úr sófanum. Þegar heimili eru orðin svo hátæknivædd má líka nýta það í öryggisskyni – með því að láta rafbúnaðinn kveikja og slökkva ljós og draga frá og fyrir glugga með óreglulegum hætti þótt enginn sé heima, til að fæla frá óboðna gesti. Hátækni Ryksugan á fullu, étur alla drullu ... Roomba rúntar um gólfin án þess að manns- höndin komi nærri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.