Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Side 25
þeir sem höfðu fjárráð keyptu sér betra
fæði utan veggja skólans en þeir sem
greiddu skólagjöld fengu í borðstofu
Skálholtsskóla. Synir sýslumanna hafa
eflaust ekki lifað á harðfiski og smjöri
tvisvar á dag ásamt vatnsblandaðri
mysu, sem var matseðill ölmusupilta
fyrir reglugerðina (Jón Þorkelsson og
Klængur Jónsson 1910b, bls. 33).
Stéttaskiptingin í Skálholtsskóla
hefur því ekki verið einfaldlega á milli
þeirra sem hlutu ölmusu og þeirra sem
greiddu skólagjöld. Þar sem ríkir
nemendur hafa læðst inn í raðir
ölmusupilta hefur verið erfitt að hafa
gætur á hvers konar mismunun innan
veggja skólans. Fleiri eða hærri
ölmusustyrkir eða betra fæði fyrir
ölmusudrengi hefði ekki endilega leitt
til jafnari aðbúnaðar, þar sem þeir sem
höfðu efni til að kaupa sér fæði utan
skólans hafa getað gert það, hvorum
hópnum sem þeir tilheyrðu.
Auk þess að skipa annan hvorn
þessara hópa, þ.e. hóp ölmusupilta eða
þeirra sem borguðu fyrir sig sjálfir, var
skólapiltum einnig skipt í bekki, lægri
bekk og efri bekk. Ennfremur hafði
hver piltur sinn stað í bekkjarröðinni
innan hvors bekks, sem fór eftir
Skólapiltar í Skálholti
__________
24
1723:
Til Guðmundar Magnússonar, Stafafelli
Piltarnir sem þú sendir í skólann síðastliðið haust skarta af andstyggðar fordild parrukum því
nú vill hver unglingur, sem varla getur girt sig né fríað frá húsganginum fyrir fátæktar sakir,
bruna fram með vesti og parruk, einasta vegna þess að hver einn vill vera haldinn sem mestur,
þó hann sé í réttri raun og veru ekki neitt. Þú mátt senda annan af þeim, sem er í
undirbúningsnámi hjá þér, í Skálholtsskóla með 8 dali en komi hann með parruk skalt þú senda
10 dali með honum því þá álykta ég að um nóga peninga sé að ræða. Fyrir eitt hvítt parruk
utanlands gefa menn 10, 12 eða 14 dali.
Jón Árnason, Skálholtsbiskup
1744:
Til Harboe
Kennarar í Skálholtsskóla hafa sagt mér að piltarnir hafi svo fá klæði að þeir geti varla látið sjá
til sín né setið í skólastofunni eða í kirkjunni þegar það er kalt. Ég hef sjálfur séð hversu slitin
fötin þeirra eru og hef talað við Guðrúnu Einarsdóttur um það en hún segir að hún geti ekkert
að gert og að hún vilji ekki halda skólann lengur en til 5. maí.
Finnur Jónsson, Skálholtsbiskup
námsárangri. Í byrjun hvers skólaárs
var piltunum raðað í röð, sá fyrsti í
efribekk var með besta
námsárangurinn og sá síðasti í lægri
bekknum var sá nemandi sem minnsta
þekkingu hafði á námsefninu.
Skólapiltar tóku einnig að sér ýmis
eftirlitsstörf, sem öll báru latnesk heiti.
Notarius Scholae bar ábyrgð á eftirliti í
skólastofunni, Notarius Cubiculi í
svefnstofunni, Notarius Temple í
kirkjunni, Notarius Cænaculi í
borðstofunni og Notarius Ædium et
Platearum skyldi hafa umsjón með
öllum öðrum herbergjum, sem
drengirnir höfðu aðgang að, ásamt
útisvæðum. Allar þessar stöður höfðu
varamann, t.d. Vicarious Scholae
o.s.frv. (Gunnlaugur R. Guðmundsson
2000). Aðrar stöður, sem nemendurnir
tóku að sér, voru Famulus Rectoris, í
þjónustu rektors, og Precentor eða
forsöngvari. Sami nemandinn hafði
stundum fleiri en einni stöðu að gegna,
til dæmis var fremur algengt að sami
nemandi væri eftirlitsmaður í
svefnstofunni og borðstofunni (Jón
Halldórsson 1916-1925). Þrátt fyrir að
þessar stöður hafi án efa haft í för með
sér aukið álag á nemendurna hafa þær
ábyggilega verið eftirsóknarverðar.
Nemendurnir, sem gengdu þessum
embættum, báru ábyrgð á að þeim
reglum sem áttu við um hvert herbergi
væri framfylgt og þeir áttu að taka eftir
hverju broti og tilkynna það svo að
refsa mætti þeim sem brutu af sér.
Embættismennirnir sjálfir voru
undanþegnir öllum refsingum
(Guðlaugur R. Guðmundsson 2000,
bls. 216).
Með því að raða nemendunum í röð
innan hvers bekkjar og veita þeim
eftirlitshlutverk, skipuðu skólayfirvöld
drengjunum í ákveðna goggunar- eða
virðingarröð. Samkvæmt lista yfir
nemendur í Skálholtsskóla frá árunum
1761-1784 voru að meðaltali um 30%
piltanna bændasynir og það er sama
hlutfall og hlutfall ofangreindra
embættismanna sem voru bændasynir
(Jón Halldórsson 1916-1925). Það
bendir til þess að synir embættismanna
hafi ekki endilega haft forgang í
ofangreind embætti. Þótt erfitt sé að
ákvarða efnahagsstöðu nemendanna af
stöðu feðra þeirra, þar sem sumir
bændasynir hafa án efa verið ríkir og
prestssynir að sama skapi stundum
verið fátækir, bendir sama hlutfall
innritaðra bændasona og bændasona í
embættisstöðum til þess að staða föður
hafi ekki skipt meginmáli. Það má því
leiða líkur að því að stéttaskipting eða
virðingarröð innan skólans hafi að
nokkru leyti verið óháð skiptingu
samfélagsins utan veggja hans.
Helgi Einarsson var í
Skálholtsskóla árin 1769-73. Sonur
hans, Árni Helgason, skráði minningar
Helga, sem komu út í byrjun 20. aldar
í Safni til sögu Íslands og íslenskra
bókmennta að fornu og nýju (Árni
Helgason 1907-1915). Að sögn Helga
skipuðu skólapiltar einnig stöður sem
voru eftirmynd embætta í landinu, t.d.
var einn piltur skipaður sýslumaður og
skyldi hann útkljá landamerkjadeilur.
Ágústa Edwald
__________
25