Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Side 149
fyrir í öllum tegundum kumla má hér á
landi greina tengsl á milli vopna og
hesta. Í kumlatalinu (Kristján Eldjárn,
2000) innihalda sex grafir alvæpni og
var hest að finna í fimm þeirra (Kt-401,
98:1+4, 117, 144), en bát í þeirri sjöttu
(Kt-37). Hest er einnig að finna í öðrum
vel vopnuðum kumlum, eins og á
Hemlu (Kt-5:1) og Galtalæk (Kt-17), en
undantekningar finnast einnig eins og
Öndverðarnes-kumlið (Kt-47). Sú
staðreynd að hesta er yfirleitt að finna í
ríkulegum og vel vopnuðum kumlum
gefur því tilefni til að ætla að tengsl hafi
verið á milli hesta(eignar) og efri laga
samfélagsins, en um leið undirstrikar
kumlasafnið í heild að hesturinn er
óháður félagslegri stöðu og þótt
vissulega sé ákveðin fylgni á milli
ríkulegra grafa og hesta eru þess einnig
dæmi að hestur sé eina haugfé grafar.
Ef litið er á hvernig hestar eru
greftraðir er greinilegt að um-
búnaðurinn lýtur ákveðnum „reglum“
og má í grófum dráttum segja að hann
sé af tvennum toga (Kristján Eldjárn,
2000, 44-251 og 308-311). Annars
vegar eru hestar lagðir í grafir með
mönnum, oftast til fóta, og einn haugur
orpinn yfir (sem hefur þó e.t.v. verið
tvítoppa). Hins vegar eru hestar
greftraðir í sérstökum gröfum sem ekki
eru í sýnilegum tengslum við
mannsgrafir, að öðru leiti en því að þær
eru innan um mannsgrafir á
kumlateigum. Þar sem maður og hestur
deila gröf er ennfremur um ákveðinn
breytileika að ræða. Annar möguleikinn
er sá að hestur og maður liggja í
óskiptri gröf, og hesturinn þá jafnvel
alveg við eða ofan á fótum mannsins.
Hinn möguleikinn er að sameiginleg
gröf manns og hests sé aðgreind í tvö
niðurgrafin rými og aðeins mjótt
jarðvegshaft sem skilur á milli. Þess eru
líka dæmi að aðeins sé um eina
niðurgrafna gröf að ræða en hesturinn
lagður á yfirborðið við enda hennar,
eins og í kumlum 12 og 13 í
kumlateignum á Brimnesi við Dalvík
(Kt-89).
Í báðum tilfellum, þ.e. bæði í
sameiginlegum kumlum manns og hests
og stökum hestkumlum, er hesturinn
lagður í gröfina á ákveðinn hátt, eða að
því er virðist eftir ákveðinni forskrift. Í
sameiginlegu gröfunum liggur
hesturinn oftast til fóta og snýr yfirleitt
lendinni að manninum. Þó eru einnig
dæmi um að hestur sé heygður til hliðar
við mannsgröf eins og virðist hafa verið
tilfellið með eitt kumlanna á Kápu (Kt-
3). Þar sem það má greina liggur
hesturinn yfirleitt á hliðinni, „hringaður
saman“, þannig að hryggurinn er
sveigður, fætur gjarnan krepptir undir
kviðinn og höfuðið sveigt inn undir
líkamann. Á þessu eru auðvitað
undantekningar, svo sem í kumlinu á
Kápu (Kt-3) þar sem hesturinn virtist
liggja á kviðnum, e.t.v. eins og hann
hné niður. Almennt virðast menn þó
hafa lagt sig fram við að leggja hestana
til í gröfunum.
Flest hestkuml innihalda aðeins eitt
dýr og á það jafnt við stök kuml og
sameiginleg. Þó eru þónokkur dæmi
þess að tveir hestar séu heygðir saman,
bæði í stöku kumli og með manni. Við
endurútgáfu kumlatals voru þessi dæmi __________
148
Fé og frændur í eina gröf
1 Skammstöfunin
“Kt” stendur fyrir
kumlatal og tekin
upp eftir Kristjáni
Eldjárn (1956,
2000), en númerin
vísa til endurútgáfu
Kuml og haugfé frá
2000.
a.m.k. níu talsins (Kristján Eldjárn,
2000, 308). Eins virðist það almennt
hafa tíðkast að leggja heil dýr í grafir en
ekki parta. Eitt dæmi er um það, í
kumlinu á Miklabæ í Blönduhlíð (Kt-
75), þar sem partar af hrossi voru lagðir
við höfðaenda grafarinnar. Einnig taldi
Daniel Bruun að stakur hrosshaus hefði
verið heygður í einu Berufjarðar-
kumlanna (Kt-50). Í sumum tilvikum
hefur höfuðið þó verið höggvið af
skepnunni en lagt í gröfina með
líkamanum. Það átti t.d. við um öll
hrossin í kumlateigunum á Brimnesi við
Dalvík (Kt-89).
Stök hestkuml eru samkvæmt endur-
útgáfu Kumla og haugfjár ellefu talsins,
þ.e. kumlin á Dalvík (Kt-89:9),
Kálfborgará (Kt-112:4), Núpum (Kt-
121), Stærri-Árskógi (Kt-91), Kornsá
(Kt-63), Enni (Kt-77) og Stafni (Kt-67),
tvö kuml á Hemlu (Kt-5:1) og tvö kuml
í Glaumbæ (Kt-120:1 og 6). Í
kumlunum á Kálfborgará og á Núpum
voru tveir hestar heygðir saman og á
Kornsá er mögulegt að hestur og
hundur hafi hvílt í sameiginlegu kumli,
en í hinum tilvikunum var aðeins um
einn einstakling að ræða. Mér vitandi
hafa engin stök hestkuml bæst við síðan
um aldamót. Þessa tölu eins og aðrar
ber þó auðvitað að taka með nokkrum
fyrirvara, enda ekki fyllilega ljóst í
öllum tilvikum hvernig túlka beri
__________
149
Þóra Pétursdóttir
Mynd 1. Kuml 12 á Brimnesi við Dalvík. Í gröfinni hvíldi kona, 18-25 ára (Hildur Gestsdóttir,
1998), hundur og hestur. Haugfé fannst bæði í tengslum við konuna og hestinn (Kristján Eldjárn,
2000:167).