Dagrenning - 01.10.1947, Page 8

Dagrenning - 01.10.1947, Page 8
miklu átaka, sem nú fara fram í heiminum urn Palestinu og málefni Gyðinga yfirleitt. Svo virðist sem lausn Palestinuvandanrálsins ætli að verða eitt erfiðasta r iðfangsefni Sanr- einuðu þjóðanna og e. t. v. verður það sá neistinn, sem að lokum kveikir í tundrinu. Af þessu, sem nú hefir verið tilfært úr bók Rutherfords, má glögglega sjá hvert liann telur vera hið mikla hlutverk íslands og Islendinga á komandi tímum og í fram- haldi þessara hugleiðinga spyr hann: „En sé opinberunum Pýramídans og Biblí- unnar sleppt, er þá nokkur sérstök ástæða til þess að Island hafi forystuna um þakkar- gjörð og endurvakningu?" Og svar hans er þetta: „Já, áreiðanlega! Það er vissulega ekkert land í Evrópu, ef ekki í öllum heiminum, sem hefir jafnmikla ástæðu til þakkargerðar á þessum tímum eins og ísland. Nú, (1942), þegar allar þjóðir heimsins, nreð tölu, jafnt stríðsaðilar sem hlutlausir, eiga við alvarleg- ar þjáningar að stríða vegna hinnar miklu heimsstyrjaldar, hefir hagur íslands aldrei verið jafngóður í allri sögu þess. Enn frem- ur hætist það við ánægju, frelsi og efnalega velmegun, að íslendingar þurfa ekki að ótt- ast innrás frá hinurn morðsjúku árásarseggj- um nazista, því að Iandið’ er vel verndað af öflugunr bieskum og ainerískum hersveit- um. (Lbr. hér.) íslenzka þjóðin ætti framar öllum öðrum að vegsama Guð, dag og nótt, fyrir slík gæði, frelsi og frið þegar allur um- . heimurinn engist sundur og sarnan af kvöl- urn. Þótt ísland eigi hvorki landher, flota né fluglið er Guð nú að íæia sönnur á, hvernig hann verndar lítið og varnarlaust ríki í veröld, sem er öll grá fyrir járnum.“ í lok kaflans um ísland farast höfundin- um orð á þessa leið: „Sé til nokkur Jslendingur, sem ekki er fulíur þakklætis til Guðs fyrir svo undur- samlega umhygg/u í slíkum háskaheimi, þá er sá að vinna landi sínu alvarlegt tjón, því séu þeir margir, mun Guð vafalaust sjá sig tilneyddan að sviíta íslendinga einhver/u af núveiandi jaiðneskii sælu þeina, til þess að hin andlegu veiðmæti veiði hæna metin og endurvakningin geti hafizt.“ Niðurlagsorð Rutherfords um þetta efni eru svo þessi: „Látið þetta mikla kall um þakkaigjöið og endun'akningu hljóma hátt í séihveni ísl- lenzkii kiikju, svo að ísland megi framvegis njóta sinnar núverandi sælu, og aðrar þjóðir verða hvattar til endurvakningar líka. Þannig er sýnt, að hin komandi rnikla andlega end- urvakning á „eyjum vestursins" hefjist lengst í norðri þessara eyja, á íslandi, og breiðist suður til Bretlandseyjanna.“ II. Straumur tírnans líður hratt áfram og við- horf öll gerbreytast á skammri stundu. Þeg- ar Islendingar lásu fyrst þessi aðvörunarorð, sem auðkennd eru í kaflanum hér á undan, var víst fæstum, sem datt það í hug, að svo skammt nryndi þess að bíða, að allt gerbreytt- ist í efnahagsmálum íslenzku þjóðarinnar sem raun hefir á orðið. Árið 1945, þegar bók Rutherfords kom út á íslenzku, var íslenzka þjóðin ríkari að fjármunum en hún hafði nokkru sinni verið í allri sögu sinni. Sú skýrsla um efni hennar á hverjum tírna, sem sönnust er, er ársskýrsla sjálfs þjóðbankans, Landsbanka íslands. Hún færir oss þann fróðleik, að í júnímánuði 1945 hafi „nettóinneign Landsbanka íslands og Utvegsbankans hjá erlendunr bönkum, ásamt erlendum verðbréfum og víxlum á útlönd“ komist hæst og numið 580 milljónum og 518 þúsundum kióna. Þessi sama skýrsla Lands- bankans fræðir okkur svo ennfremur um það, að hálfu öðiu áii síðai, eða í áislokin 6 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.