Dagrenning - 01.10.1947, Page 14
lierdeildarmenn í allar kennarastöður lands-
ins, sem losnað höfðu á þeim tíma, sem hann
var ráðherra. Hann safði skipað fimmtuher-
deildarmenn formenn allra skólanefnda í land-
inu og fimmtuherdeildarmönnum hafði ver-
ið lætt inn í allar stofnanir ríkisins, æðri senr
lægri, en þó höfðu fjórar stofnanir, sérstak-
lcga verið valdar úr, þær stofnanir eru:
Ríkisútvarpið, háskólinn, Landsbankinn og
Stjórnarráðið. Kommúnistar vissu að njósna-
og áróðurstarfsemi varð því aðeins rekin að
nokkuru gagni að þessar stofnanir væru
sem tryggilegast fléttaðar í net þeirra. Hver
einasti kommúnisti, hver sem liann er og
hvort sem liann er sér þess meðvitandi eða
ekki, gerist njósnari og svikari við sitt föður-
land, ef þess er krafist af honum frá „æðri
stöðum,“ þ. e. af hinurn rússnesku yfirboð-
urum hans. Njósnarstarsemi sú, sem nú er
rckin af íslenzkum kommúnistum í öllum
stofnunum þjóðarinnar er rniklu meiri en sú
sem Þjóðverjar ráku hér á landi fyrir stríð.
Þessum njósnum stjórna hér eins og annars
staðar innlendir fyrirsvarsmenn kommúnista
fyrst og fremst, en því hægara, er að
koma öllum upplýsingum á franrfæri sem
sendiráð Rússa eru nær, eins og sýndi sig
best í Kanada njósnunum og nú í hinni stór-
kostlegu njósna og skemdaverkastarfsemi,
sem verið er að afhjúpa í Suður-Ameríku.
En fimmta herdeildin átti enn eitt höfuð-
vígi, sem hún hafði unnið með lygum sínurn
og blekkingum og hjálp skammsýnna manna
í öðrum flokkum. Það vígi var Alþýðusam-
band íslands. Það tæki er tiltölulega gagns-
laust í njósnarstarfsemi kommúnista — jafn-
ast ekki einu sinni allt saman á við einn góð-
au „fulltrúa" í Landsbankanum eða í Stjórn-
arráðinu, enda er því tæki ekki ætluð njósn-
arstarfsemi heJdur er því fvrst og fremst
ætluð skemmdarstarfsemin þegar þar að
kemur að til hennar þarf að taka. Nú í sumar
var Alþýðusambandinu í fyrsta sinn beitt,
eða réttara sagt, það var gerð fyrsta tilraun
til að beita því í sumar, er stöðva átti síld-
veiðarnar. Það sýndi sig þá að kommúnist-
um er óhætt að treysta á sambandið til
skenmidarverka, enda var verkfallið aðeins
gert til þess að fá úr því skorið.
Flestir þeirra manna, sem flæktir eru í
njósna, áróðurs og skennndarverka-neti
konnnúnista hér á landi, vita ekki um hví-
líka óheillabraut þeir'eru gengnir út á, enda
er þeim fullkomin vorkunn þar sem hinir
svonefndu stjórnmálaleiðtogar keppast um
að ná þessum finnntu herdeildarmönnum í
samfélag við sig, sem þeir þó allra manna
bezt ættu að vita, að enga hugsjón eiga aðra
en þá, að hneppa alþjóð manna í rússneska
einræðisfjötra.
Konnnúnistar vita mæta vel, að senn líður
að lokaátökunum í veröldu vorri milli Engil-
saxa annars vegar og Rússa hins vegar.
Konnnúnistar vita einnig mæta vel hvoru
megin þeir eiga að standa og hvert verk
þeim er ætlað að vinna í átökum þessum. Og
þar sem þeir hafa selt Rússum bæði sál sína
og samvizku hafa þeir engar áhyggjur út
af því þó þeir teymi umkomulítinn og hugs-
unarlausan lýð á eftir sér út á glæpabrautina.
En konnnúnistarnir eru þegar öllu er á
botninn h\’olft ekki ámælisverðastir. Þeir
trúa því, að Rússar muni „fresla" heiminn
og þeir trúa því, að þeir sjálfir séu réttu meg-
in í baráttunni, sem yfir stendur, og þeirri,
sem óhjákvænrilega kemur.
En hinir, sem sjá þetta og skilja en láta
þó allt reka á rciðamim, það eru þeir, sem
helzt ber að varast. Hinir svonefndu
Framsóknarkommúnistar, Sjálfstæðiskommar
og svokallaðir vinstri-kratar (sem er raunar
algjört rangnefni) eru langsamlega fyrirlit-
legastir allra og hættulegastir öryggi þjóðar-
innar, því að þeir láta hafa sig til þess að
blekkja og afvegaleiða þjóðina. Þeir menn
eru liættulegastir því á þeim varar þjóðin
12 DAGRENN I NG