Dagrenning - 01.10.1947, Page 15

Dagrenning - 01.10.1947, Page 15
sig síst. Þeir menn vita vel, hvað þeir eru að gera, en hins vegar cru niargir meðal komnuánista „blindir“. Og það er grátlegt að þurfa að segja það, en það verður að segjast, af því að það er satt, að í þeim hópi eru háskólamennirnir íslenzku vel flestir. Mér er ekki kunnugt um neinn háskólakennara, sem telur sig í flokki komm- únista og sé einhver slíkur til, þá hefir hann sig lítt í frammi. Hins vegar eru þeir taldir til annara flokka — helzt til Alþýðuflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins — en reka dyggi- lega erindi kommúnista með því að hafa forgöngu um að svívirða þær þjóðir, sem við eigum það að þakka, að þjóðin var ekki drep- in niður og verðmæti hennar eyðilögð í síð- asta ófriði, af hinum þýzku morðsveitum Hitl- ers. Fremst í flokk þessara háskólamanna hafa skipað sér aðallega hinir yngri menn rneðal kennara liáskólans. Hvenær, sem konnnúnistum liefir legið á mannsliði til þess að svívirða Bandaríkin á einn eða ann- an lrátt, í ræðu eða riti, liefir einhver þeirra jafnan verið reiðubúinn — enda hefir þó nokkur hópur þeirra tekið við upphefð sinni úr hendi „guðlastarans". — Það er nreira en grátlegt, að sú stofnun, sem íslenzka þjóðin hefir lagt svo rnikið á sig til að koma á fót og viðhalda, háskóhnn, skuli, er mest á ríður, bregðast svo gjörsam- lega, að hún gengur í lið með verstu fjand- mönnum frelsis og mannréttinda, fimmtu herdeild Rússa, þegar þjóðin þurfti helzt á leiðsögn liennar að halda. En sú hefir raunin á orðið og fyrir því þarf enginn neins góðs að vænta frarnar úr þeirri átt, heldur ber að gjalda varhuga við öllu, sem þaðan kemur. Er þá útrætt um þennan „útvörð" íslands, háskólann, hann er aðeins ein ný, kölkuð gröf í viðbót við allar hinar. # VI. Fyrir fáum árum heyrðist ekkert orð jafn- oft sem orðið „hlutleysi". Það var á þeim dögum er Þjóðverjar og Rússar voru að sýkja hin demókratisku þjóðfélög af einræð- ispestinni. Hlutleysi, hlutleysi! kvað við alls staðar. Meiri blekking hafði þá aldrei verið borin fram fyrir þjóðir heimsins en hlutleysiskjaftæðið. Allir áttu að vera hlut- lausir í öllu, annað var „skaðlegt fyrir þjóð- félagið“ — „hættulegt hagsmunum ríkisins og framtíð þess“. Flestir voru svo einfaldir að þeir hálfdáleiddust af þessari hlutleysis- þvælu og fáir revndu að kryfja til mergjar hið eiginlega innihald þessarar kenningar. Meim áttuðu sig ekki á því að þetta vai skipulagður áióður, sem kommúnistar og nasistar notuðu ti 1 þess að eitra þjóðfclögin og greiða vegiim fyrir skaðræðiskenningum sínum. En þegar betur er aðgætt er augljóst, að það er gjör- samlega ómögulegt livorki fyrir þjóð né einstaklinga að vera hlutlaus í neinu því máli, sem nokkru skiptir. Kristur hafði og sagt mönnum, að þetta væri ómögulegt. „Sá, sem ekki er með mcr, er á móti mér,“ er haft eftir honum og einnig hitt: „Sá, sem ekki samansafnar með mér, hann sundur- dreifir," og það var einmitt það, sem hlut- leysis mennirnir gerðu. Þeir „sundurdreifðu", gerðu bæði þjóðir og einstaklinga ráðvillta. Ilvernig á nokkur maður í lýðræðislandi að geta verið hlutlaus gagnvart þeim fyrir- ætlunum einræðisríkis, að svifta hann og alla þjóð hans þeim réttindum, sem hún hefir unnið sér í lengri eða skemmri bar- áttu og' telur sína dýrmætustu eign? Ib'ernig á að vera hlutlaus gagnvart hry'ðjuverkiun og morðum á saklausu fólki? Hvemig á að vera hlutlaus gagnvart lýginni og rógburðinum? Eitt meginverkefni hlut- leysis kjaftæðisins var að líða það nrótmæla- laust, að hinar engilsaxnesku þjóðir væm DAGRENNING 13

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.