Dagrenning - 01.10.1947, Síða 22

Dagrenning - 01.10.1947, Síða 22
nokkur átök, aðrar koma af sjálfu sér, ef rétt er stefnt. Enginn þarf að ætla að breytingin komi mjög hratt, það er best hún komi smátt og smátt. Þjóðin verður fyrst að sameinast gegn aðalskaðræðisaflinu — kommúnisman- um — og útrýma því að mestu og þá fyrst gctur hinn nvi tími hafizt. Ég veit enn fremur, að kommúnistar og tagllmýtingar þeirra, hálfkommúnistar í öll- um flokkum, muni telja þessar skoðanir mín- ar landráð og sleikjuskap við Bandaríkin, en um það fæst ég ekki. Mér finnst eðlilegt, að sú manntegund haldi slíku fram, annað væri lienni ósanrboðið. \7ið þá menn þýðir ekki að ræða neitt mál, þeir eru „slegnir blindu“. Ég veit einnig, að ýmsir muni telja að ég sé andlega vanheill, þar sem ég held slík- um „firrum“ fram sem þeim, að menn eigi að hætta lygum, rógburði og níði hver um annan, og fara að taka hreinar afstöður til málefna þjóðarinnar. En gleggsta dæmið um „geðbilun“ mína munu þeir telja það, að ég trúi á hjálp frá æðri sviðum í þessurn efnum fyrir trú á Jesúm Krist, en þeir gleyrna jafnframt að þjóðin hefir á launum nokkur lnmdruð menn til þess að halda henni við þessa trú, nreð því að prédika á sunnudög- um, og þeir gleyma líka að í öllum kennslu- bókum er þjóðin talin „kristin“. Það lægi því næst að leggja þá menn, sem halda fram geð- bilun af þessum ástæðum, inn á Klepp til athugunar. Ég biðst ekki undan sanngjarnri gagnrýni né því að bera ábyrgð orða minna. Ég veit, að ýmsa kann að svíða undan þeim sannleika, sem hér er sagður, og það er þá vegna þess að slegið er á kaun. Best gerðu þeir menn í því, að játa í einrúmi yfirsjónir sínar og snúa aftur af villigötum þeim, sem þeir nú eru kornnir á, og öðlast þannig fyrirgefningu fvrri misgerða sinna. Ég veit ennfremur, að leigutól „myrkra- valdsins“ hvar í flokki, sem þau finnast, og það jafnt innan kirkjunnar sem utan henn- ar, munu hæðast að þeirri höfuðkenningu, sem hér er flutt, að þjóðir og einstaklingar gjaldi synda sinna og yfirsjóna, og að lausn vandans liggi í sinnaskiptum eða algerðri hug- arfarsbre}'tingu. En látum þá menn hlægja. Sá, sem ekki þolir spott þeirra er sjálfur óhæf- ur til afturhvarfs. Öll vor ógæfa liggur í því, að þjóðin hefir vfirgefið þann grundvöll, sem einn er nægi- lega traustur til að byggja á honum framtíð lands og þjóðar, en sá grundvöllur er trúin á Jesúm Krist, frelsara mannkynsins, og ]rá kenningu, sem hann hefir flutt öllum þjóð- um. Þegar vér tökum að byggja á þeirn grund- velli að nýju mun fara að birta í íslenzku þjóðlífi, og sú birta verður varanleg. XI. Ég hefi skrifað þessa grein af innri þörf. Síðan ég fór að veita spádómum Biblíunnar athygli og sannfærðist um, að þeir eiga að miklu levti við þá tíma, sem nú standa vfir, hefir sú hugsun sífellt sótt að mér, að það væri skylda mín að segja þjóð minni sann- leikann, hversu sár, sem hann væri, og hversu illa, sem hann kærni við samtíð mína, og liversu rniklar óvinsældir, sem hann bakaði sjálfum mér. Hver einasti rnaðrir, sem vill lesa í hinni heilögu bók, Biblíunni, getur sjálfur gengið úr skugga um það, að hún segir nákvæmlega fyrir þau átök, sem nú standa yfir. Enginn skilur þetta til fulls fr'rr en liann þekkir þjóðirnar, sem nú eru uppi, og veit hverjar þær voru á þeim dögum, er spádómar Biblíunnar urðu til. Höfuðatriðið er að skilja það og sjá, að hinar engilsaxnesku þjóðir eru Israelsmenn, sem nú koma fram á sjónarsviðið sem stórþjóðir — „eins og sand- ur á sjávarströnd“. Af þeim munu að lokum „allar þjóðir jarðarinnar blessun hljóta", en það verður ekki h;r en síðustu átökin hafa 20 DAGRENNI NG

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.