Dagrenning - 01.10.1947, Blaðsíða 38

Dagrenning - 01.10.1947, Blaðsíða 38
Vér heyrum stormgnýinn. Miklum her- sveitum hefur verið safnað og þær búnar til orustunnar, og vér sjáum að æ ber hraðar og hraðar að úrslitastundinni með hverjum líð- anda degi. Vér þurfum engu að kvíða, því að „Guð er oss hæli og styrkur, örugg vörn í nauðum.“ Fyrir því hræðumst vér ekki, þótt jörðin (þjóðfélagsskipan sú, er nú ríkir) haggist, og fjöllin (ríkin) bifist og stevpist í skaut sævarins (hins lagalausa lýðs, sem eigi lætur stjórnast) þótt djúp hans gnýji og frevði (af deilum stríðandi flokka). Þótt fjöll- in gnötri fyrir brimróti hans.“ (Sálm. 46. 1 —3.) „Það er til elfur (orð Guðs, uppspretta sannleika og náðar), kvíslir hennar munu gleðja Guðs borg, hinn lielga reit í tjald- búð hins hæsta (helgidóminn — kirkjuna þar sem hinn hæsti velur sér bústað.) Guð er í henni og eigi mun hún bifast. Guð hjálpar henni.“ (Sálm. 46., 5—6.) Sjá hverja evðingu Drottinn hefir gert á jörðu. Hann lætur sh'rjaldir hætta. Nú á tímum erum vér að njóta hjálpar þessarar, sem lofað var, samkvæmt þörfum vorum, á þann hátt, að vér crum gerðir að trúnaðarmönnum vors himneska föður, oss eru kynntar fyrirætlanir lians og vér erum fullvissaðir um kærleika hans og ævarandi náð, og jafnvel gerðir að samverkamönnum hans. Með skynsamlegum ályktunum og sam- kvæmt ritningununi getum vér nokkurn veg- inn scð hvenær, og við hvers konar aðstæður, kirkja Krists öðlast algera lausn, en það verð- ur þá enn meira umhugsunarefni hvernig hún verður upphafin í dýrðinni. Vér snúum oss þá að nýju til hinna guðlegu spádóms- orða og leitum að svari. Páll segir: „Vér verðurn allir að umbreyt- ast (þcir lifandi engu síður en hinir látnu heilögu), þetta hið forgengilega á að íklæð- ast óforgengileikanum og þetta hið dauðlega að íklæðast ódauðleikanum, því að hold og blóð getur ekki erft guðsríki og eigi erfir hið forgengilega óforgengileikann." Auk þessa munum vér taka eftir þeirri að- ferð, að sumir verða gerðir dýrðlegir eða þeirn umbreytt fyrst og aðrir síðar. Dýrðlegur hef- ir dauði hinna heilögu orðið í augum Drott- ins. (Sálm. 116. 15) og enginn þeirra hefir gleymst, þótt þeir hafi sofið lengi. Nöfn þeirra eru rituð í ríki hinmanna, að þeir skulu teknir í tölu frumburða kirkjunnar. Posfulinn lýsir vfir því, að þeir, sem lifa og eftir eru við konm Drottins, skulu alls ekki verða á undan hinum sofnuðu. (Þess. I. 4. 15.) Þcir, sem í }esú sofa, þurfa alls ekki að sofa áfram og bíða eftir hinum, sem á lífi eru, heldur verða þeir þegar upp reistir, er það eitt fyrsta verk Drottins er hann tekur við hinu mikla veldi sínu. Þeir limir af líkama Krists, sem sofið hafa, verða fyrstir inn í ríki dýrðarinnar. Það er ekki með bcrum orðurn sagt, hve- nær hinir sofandi hcilögu verða vaktir, en það má álykta um það af dæmisögu Krists urn ríka manninn ættgöfga (hann táknar Drottinn vorn Jesúm). Er hann var kominn aftur og hafði tekið við húsi sínu, lét liann það verða sitt fyrsta verk að kalla til sín þjónana, sem liann hafði trúað fvrir fé síii’u meðan hann var fjan'erandi, og launa þeim trúu. Það er skynsamlcgt að álykta, að launin hafi verið greidd jafnskjótt og Drott- inn vor tók við liinu mikla veldi sínu, þegar eftir endurkomuna. Þar eð upprisa kirkjunnar lilýtur að fara fram einhvem tíma nú á „uppskerutímabil- inu“ (Op. 11. 18), teljum vér það skynsam- legustu ályktunina, og í fullkomnu samræmi við allar fyrirætlanir Drottins, að hinirheilögu postular og aðrir „sigurvegarar“ þessarar ald- ar, þeir, er í Jesú sváfu, séu nú upprisnir andar, í líkingu Drottins síns og nreistara; ef vér höfum Jrað hugfast, að þeir eru nú andar eins og Drottinn þeirra og honum líkir, þá verður það, að vér sjáum þá ekki, engin 36 DAGRENNI NG

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.