Dagrenning - 01.10.1947, Page 40
frelsi, fyrst ísrael og loks öllum kveinandi
skepnum jarðar). Heyr varðmenn þína, þeir
hefja upp raust sína allir í einu, þeir æpa
fagnaðaróp, því að með eigin augum sjá þeir
Drottinn hverfa aftur til Zionar.“
Vesalings særðu fætur, sem menn fyrir-
líta nú; engir kunna að meta rétt forréttindi
yðar, aðrir en þér sjálfir. Engir, nema þér,
skilja hvílíkt yndi þér hafið af að birta sann-
indi nútímans og lýsa yfir því, að nú sé kom-
ið að stofnun ríkisins í ísracl, og stjórn guð-
legs réttlætis sé að hefjast til þess að færa
öllum lýðum jarðar blessun. Þótt fætur Krists
og köllun þeirra sé fyrirlitið af mönnum, er
það í hávegum haft handan við tjaldið, af
þeim limum á líkama Krists, sem þegar eru
orðnir dýrðarinnar aðnjótandi og af höfðinu
dýrðlega, sem er fúst til að kannast við hina
trúu þjóna frammi fyrir liástól föðurins og
öllum liinum heilögu sendiboðum hans.
Ætlunarverk „fótanna" er eigi lítilvægur
hluti af starfi konungsríkisins, er það verð-
ur fullkonmað. Þótt boðskapur þeirra sé, um
þessar mundir, vanmetinn og þeir séu fyrir-
litnir af heiminum og kallaðir heimskingjar
(sökum Krists) — og svo hefir verið um alla
trúa þjóna á öld fagnaðarboðskaparins, —
munu þeir eigi að síður, sem erindrekar
konungdómsins liafa skráð svo mikið' um
liann, og störf lians í nútíð og framtíð, áður
en þeir umbreytast og sameinast þeim, senr
dýrðlegir eru orðnir handan við tjaldið, að
þar verður hin dýrmætasta fræðsla fy'rir heim-
inn, fyrir þá óþroskuðu, og þá sem svo rnikl-
um þunga voru hlaðnir, að þeir gátu eigi
farið nógu hart til þess að hljóta verðlaunin.
Vér skulum eigi gleyma því, að allir þeir,
sem til fótanna teljast, taka þátt í því að
boða þessi góðu tíðindi í Zion: (Zion er
stjórnarsetur Drottins í ísrael — engil-sax-
neska ríkinu.) „Guð þinn er seztur að völd-
um!“ — Ríki Krists er stofnað! Og allir, sem
eru trúir vökumenn geta nú augljóslega séð
það, eins og einn nraður, og þeir geta í sam-
ræmdri einingu sungið hinn nýja söng um
Móse og lambið — söng endurbótanna, sem
skýrt er skráður bæði i lögmáli Móse, sem
„einungis var skuggi þess góða, sem koma
skal,“ og enn skýrar í opinberunum um
lamb Guðs, þeim sem skráðar eru í Nýja
testamentinu. Þar segir: „Réttlátir og sann-
ir eru vegir þínir, allar þjóðir rnunu koma
og tilbiðja frammi fyrir þér.“ (Op. 15. 3, 4.)
Þeir, sem af „fótunum" eru, munu smám
saman liverfa frá núverandi verksviði sínu,
þar senr þeir eru oft þreyttir, þótt þeir séu
alltaf ánægðir. Þeir hverfa inn fyrir tjaklið
— „umbreyttir“ í einu vetfangi, á einu auga-
bragði, frá dauðleika til ódauðleika, frá veik-
leika til máttar, frá niðurlægingu til dýrðar,
frá mannlegu umhverfi til þess himneska, frá
holdlegum líkömum til andlegra. Starí þeirra
hættir ekki við breytinguna, því að allir þeir,
sem teljast þess verðir, að öðlast dýrðina,
munu þegar vera innritaðir í þjónustu kon-
ungdómsins handan við tjaldið; einungis
þreytan af starfinu hverfur við breytinguna
—„Þeir skulu fá hvíld frá störfum, en verk
þeirra fy'lgja þeim.“ (Op. 14. 13.)
„Unibreyting“ þessara „fót“-liða mun leiða
þá í það samfélag dýrðar og máttar, sem hin-
ir, er sváfu, eru þegar komnir í, þeir munu
verða „hrifnir á braut frá jarðnesku umhverfi
og sameinaðir „Drottni í himninum“ — við
andlega stjórn heimsins. — Iliminn sá, sem
hér er nefndur, táknar andlega stjórn eða
vald. Satan hefur lengi verið „valdhafinn í
loftinu“ (Ef. 2. 2.) og hefir haft að samverka-
mönnum og meðstjórnendum marga hina
miklu úr Babylon, sem eru svo haldnir af
blindandi villu hans, að þeir halda, í sann-
leika, að þeir séu að þjóna Guði. „Valdhafi
loftsins“ verður bundinn og blekkir engan
frarnar, og hið mikla anclkristilega skipulag
mun líða undir lok með miklum gný, er hinn
nýi höfðingi loftsins tekur við stjórn og reis-
38 DAGRENNING