Dagrenning - 01.10.1947, Page 44

Dagrenning - 01.10.1947, Page 44
nefnd „gróðrar“-hátíð, sem felur í sér sama hugtak og sumarhátíð — frumskeruhátíð — ísraelsmanna. Þcssi hátíð virðist því vera flutt frá sumrinu til miðsvetrar, en nafninu „til gróðrar“ sé þó haldið. Páskahátíðin eða minningarhátíð ísraels- manna um burtför þeirra úr Egyftalandi var haldin í apríl, rneðal Norðmanna var líka ein hátíð haldin í apríl, en hjá þeirn sem sum- arhátíð, „at sumri“ eða mót sumri, en þó nefnd „sigurblót,“ sem óneitanlega minnir á hebresku orðin: zkr blvt (les: zeker balot, samkvæmt massorita stafsetningu), sem þýð- ir: minningarmáltíð (eða minningarkjöt- veizla); enda er lítt hugsanlegt, að „sigur- blót“ geti átt við vor og sumar í þeirri merk- ingu, að hátíðiu eigi að skoðast sem sigur- beiðni til guðanna, beiðni um vernd og hjálp þeirra í stríði manns við rnann. Hátíðirnar þrjár hjá Norðmönnum eru ■eiginlega eingöngu tengdar við tímaskipti: \7etrarkomu, árskomu og sumarkomu, en nöfn þeirra benda þó öll til annars, vetrar- komuhátíðin til árshátíðar, árshátíðin til vors eða sumarhátíðar, og sumarkomuhátíð- in heklur sínu upprunalegu nafni, ef „sigur- blót“ táknar minningarhátíð. Iljá ísraelsmönnum voru það karlar einir, sem koma áttu á aðalhátíðarnar, fornu hátíð- irnar en ekki konur. Hjá Norðmönnum munu líka karlar einir hafa sótt hátíðirnar þrjár, blótin þrjú, sem lögboðin voru. IV. NOKKUR ORÐ NOTUÐ í GUÐS- ÞfÖNUSTUMÁLINU NORRÆNA. Blót. Hebreska orðið: „blvt“ þýðir: neyta, eta að fullu, einkum þó um kjötát. Ef nor- ræna orðið blót er frá þessum stofni ættað, þá táknar það kjötmáltíð, enda var kjöt aðal- maturinn við slíkar hátíðir bæði hjá ísraels- mönnum og Norðmönnum. Sónarblót. Þetta orð minnir á hebresku orðin „saan blvt,“ sem þýðir: friðarmáltíð, eins og „zeker blvt“ þýðir minningarmál- tíð, og Sigurblót á norrænu er víst frá þess- um orðum komið. Blótspá. í orðinu blótspá (blótspánn, blót- spár) virðist síðari hlutinn eiga uppruna sinn, ætt sína að rekja til hebreska orðsins: sabag, sem þýðir að vinna eið, og „fella blótspán" þýðir þá eiginlega: að leita véfrétta við heit- lof hátíðarinnar, því hebreska orðið: phll (phalal) þý'ðir biðja, biðja fyrir einhverjum, leita frétta til guðanna, samanber Jer. 37,3, er Zedekia konungur gerir sendiboða til Jeremía spámanns, að hann leiti frétta Guðs urn, hvað verða rnuni, með þessum orðum: „Bið þú fvrir oss til Drottins, Guðs vors.“ Og fær það svar frá spámanninum, að Guð hafi ákveðið að eyðileggja borgina. Orðið fella í sambandinu „fella blótspán“ á ekkert skylt við sögnina: fella, þ. e. varpa til jarðar, sem er kornið frá „phll 1“ því að fella í „fella blótspán“ er komið frá „phll II“, og fella í sambandinu: fella hugi saman mun vera konrið frá „phll 11“ eins og í ,jfella blót- spán.“ Hlaut og hlautteinn. Á hebresku er til orð, sem heitir halót í fleirtölu og þýðir: fómar- kökur eða skoðanabrauð og tóne sem þýðir: málmfat eða málmskál. Ef norrænu orðin hlaut og hlautteinn eru í ætt við þessi he- bresku orð, sem ekki er ólíklegt, þá hefðu norrænu orðin, í byrjun að minnsta kosti, átt að tákna þetta: hlaut = brauð eða kök- ur, senr komið var með til hátíðahaldsins, og hlautteinn = fat það eða skál, sem kök- urnar voru geymdar í eða færðar goðunum í sem fórnarhluti þeirra. Ekki er það ólíklegt, að þýðing þessara orða hafi breytzt síðar, svo að „hlaut“ tákni blóð Jrað, sem guðunum var fært sem fórn; ef það þá ekki þýðir blóð- kökur, eða kökur gerðar úr blóði fómardýr- anna, því að lítill hluti blóðsins hefir verið 42 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.