Dagrenning - 01.10.1947, Page 46
Edómítar — Assyríumenn.
DAGRENNING liefir orðið þess vör, að
sumum lesendum hennar hefir þótt kenna
ósamræmis í þeirri tilgátu A. J. Ferris, að
Þjóðverjar væru afkomendur Esaú, og þeirri
tilgátu, sem ég hafði áður haldið fram, að
þeir mundu vera Assyríumenn hinir fornu.
Við fyrsta tillit sýnist svo, sem hér sé
um nokkurt ósamræmi að ræða, en við nán-
ari athugun kemur í ljós, að þessar tilgátur
þurfa ekki að vera andstæður.
Eins og lesendur muna, heldur Ferris því
fram, að á fyrstu öldum kristninnar hafi
germanskir þjóðflokkar hvað eftir annað
komið úr austurvegi og lagt undir sig Ev-
rópu. Hann telur, eins og fræðimenn al-
mennt, að þessi þjóðflokkur liafi greinst í
tvær aðalgreinar: Vestur-Germani (Engla,
Saxa, Norðmenn o. fl.) og Austur-Germani
(Gota, Vandali o. fh). Samkvæmt kenningu
Ferris hafa Vestur-Germanir verið afkorn-
endur Jakobs — ísraelsmenn hinir fornu ■*-,
en Austur-Germanir verið afkomendur Esaú,
lrróður Jakobs, eða Edómítar hinir fornu.
Sé þetta rétt, sem líklegt má telja, er ekki
ólíklegt, að einmitt þessi hluti þýzku þjóð-
arinnar búi í Vestur- og Suðvestur-Þýzka-
landi, því að þeir hafa fylgt ísraelsmönnum
— Vestur-Germönum — eftir, út að strönd-
inni, en dreift sér síðan yfir þessi landsvæði.
Edómítarnir eða Austur-Germanarnir
fornu búa því í vesturhluta Þýzkalands og
suðurhluta þess og í Austurríki. Það er at-
hyglisvert, að einmitt af þessu svæði voru
flestir aðalleiðtogar nazistanna, er undir-
bjuggu og stjórnuðu síðustu árásinni á Engil-
saxa.
En þeir þjóðflokkar, sem byggja þá hluta
Þýzkalands og Austurríkis, sem nú voru
nefndir, er ekki nema önnur aðalgrein hinn-
ar þýzku þjóðar. Hin greinin eru Prússarnir,
sem búa í norðurhluta landsins og austur-
hluta þess og eiga frændur í Tékkóslóvakíu
og Vestur-Póllandi. Það eru einmitt þessir
þjóðflokkar, sem mestar líkur eru fyrir að
séu afkomendur hinna fornu Assyríumanna
eða Húna, senr stökktu Austur-Germönum
— eða Gotum — undan sér af þessum slóð-
urn, og sennilega hafa sezt þar að, enda er
Prússland kallað Húnaland í fornum, nor-
rænum sögum. Þýzkur fræðimaður, dr.
Swaner, lét svo um mælt 1910, í sambandi
við þessa tilgátu um uppruna Þjóðverja:
„Það þarf víst engan að undra, þótt það
ætti eftir að konra í ljós, að Bretar væru
afkomendur Israelsmanna, né heldur, að
Þjóðveijai séu blendingur Assyríumanna
og Filistea, erfðafénda ísiaels.“
*
Vera má, að ég reyni síðar að gera þessu
efni betri skil, en nú er auðið hér. Mér þykir
mjög sennilegt, að tilgáta Ferris um að, a.
m. k., nokkur hluti þýzku þjóðarinnar sé
afkomendur Esaú, en eins líklegt þykir mér
og hitt, að hinn meginhluti hennar, Prússar
og frændur þeirra, séu af annarri grein og
þá helzt komnir af Assyringum hinurn fornu.
Staðreynd er, að Þjóðverjar nútímans eru
mjög blandaðir, en þó má þar glögglega
greina tvo megin stofna, hinn germanska
stofn, sem nú býr í vesturhluta og suður-
hluta landsins, og prússneska stofninn, sem
býr í norður- og austurhluta Þýzkalands og
að nokkru í núverandi Póllandi (Austur-
Prússlandi). Líklegt er að vesturbyggjarnir
séu hinir fornu Edómítar, en austurbyggj-
arnir afkomendur Assyringa hinna fornu.
J. G.
44 DAGRENNI NG