Dagrenning - 01.04.1948, Blaðsíða 16

Dagrenning - 01.04.1948, Blaðsíða 16
JÓNAS GUÐMUNDSSON: Landl vængjaþytarins, C<PÁDÓMAR verða ekki teknir alvar- lega“, er oftast viðkvæðið hjá þeim mönnum, sem einhvem snefil telja sig liafa fengið af hinni svonefndu vísindalegu þekk- ingu vorra tíma. Ekki einu sinni guðfræð- ingarnir taka spádóma Biblíunnar alvarlega, og þó sagði Herrann Jesús Kristur: „Þetta eru mín orð, sem ég talaði við yður, rneðan ég enn var með yður, að rætast ætti allt það, sem ritað er í lög- máli Móse, spámönnunum og sálmunum um mig.“ (Lúk. 24., 44). Vel mættu þeir guðfræðingar og aðrir, sem gjöra lítið úr þeim mönnum, sem eru að revna að sýna fram á hið dásamlega gildi spádómanna í Biblíunni, gjarnan minnast þessara orða meistarans oftar en þeir gera. En við slíka menn þýðir sjaldnast að tala né að reyna að opna augu þeirra. „Sjáandi munu þeir sjá, en þó ekki skynja, hevrandi munu þeir heyra, en þó ekki skilja.“ — Hin svonefnda vísindalega guðfræði og efnishyggjuvísindin eiga samleið í andstöð- unni við spádómana, og er þetta í rauninni ekki svo óeðlilegt, þegar á það er litið, að bæði hin vísindalega guðfræði og efnishvggju vísindin hafna í raun og veru kenningunni urn sjálfstætt framhald lífsins. Það má og segja, að ýmsir trúflokkar, sem ekki liafna sannleiksgildi Biblíunnar, láti sig flestir spá- dóma hennar litlu skipta, því að þeir finna og sjá, að spádómarnir verða hvorki skildir né skýrðir með þeim hætti, sem almennt er við hafður af forustumönnum þessara trúflokka. Hjá fæstum þeirra vottar fyrir nokkrum skilningi á þeim undirstöðu- atriðum, sem nauðsvnlegt er að þekkja, til þess að unnt sé að skýra spádóma Biblíunnar af nokkru viti. Það skal sagt, að við, sem höllumst að þcirri hrevfingu, scm nefnd hefir verið brezk- ísraelska-hreyfingin, — og sem ég vil taka skýrt fram, að er enginn sértrúarflokkur í neinu tilliti, — höfnum algjörlega skoðun- urn hinnar svonefndu vísindalegu guðfræði og efnishvggjuvísindanna á spádómum Biblí- unnar, og teljurn þær niðurstöður, sem þar cru fengnar, bæði rangar og villandi og þar af leiðandi beinlínis skaðlegar fvrir trúarlíf almennings og almenna þekkingu. Við telj- um, að fullsanna megi, ef réttum aðferðum er beitt, að spádómar Biblíunnar séu, margir hverjir, svo hárréttir, að engu skeiki, er máli skiptir. Við tökum fram, að augljóst er, að enginn spádómur verður skilinn til fulls — sízt af öllu af almenningi —, fyrr en hann er fram kominn. Þess \egna ber þeim, sem fást við spádómsþýðingar, að fara mjög varlega í að skýra spádóma, sem augljóslega cru ekki komnir frarn, jafnvel þó sjá megi, að þeir séu að rætast. Margir spádómar eru þó svo Ijósir, þótt þeir séu enn ekki komnir fram, að vel má segja fvrir samkvæmt þeim í aðalatriðum jafnvel stórfellda, hcimssögulega atburði. En 14 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.