Dagrenning - 01.10.1948, Blaðsíða 3

Dagrenning - 01.10.1948, Blaðsíða 3
DAGRENNING 5. TOLUBLAÐ 3. ÁRGANGUR REYKJAVÍK OKTÓBER 1948 Ritstjóri: JÓNAS GUÐMUNDSSON, Reynimel 28, Reykjavik. Simi 1196 JþÚ VERÐUR AÐ VELJA“ heitir smágrein ein i ensku tímariti, sem H Dagrenningu barst. nú nýlega. Vafalaust þykir mörgum þessi grein allt of „gamaldags“, því að hún gerir ráð fyrir því að Satan sé til, en eins og kunnugt er, hefir nýguðfrceðin og allur senni tima kenniskapur „af- skrifað“ djöfulinn, svo að það má telja hann alveg úr sögunni, „visinda- lega“ talað. Samt sem áður fannst mér smágrein þessi svo athyglisverð og ólik þvi, sem almennt gerist, að ég þýddi hana lauslega i þeim tilgangi, að verða formálsorð Dagrenningar að þessu sinni. Greinin er á þessa leið: „1 nýlokinni heimsstyrjöld var það altítt, að menn töluðu svo sem vopnaviðskiptin milli ófriðarþjóðanna vœru baráttan milli „góðs og ills“. Auðvitað meintu menn það ekki bókstaflega, þvi að það voru fæstir, sem gerðu sér þess fulla grein, að hernaðarátök stórveldanna eru ekki nema einn áfangi — að vísu stórkostlegur og hrœðilegur áfangi — í miklu stór- kostlegri og voðalegri átökum, sem staðið hafa yfir frá þvi í dögun veraldar vorrar, baráttunnar milli rétts og rangs, Ijóss og myrkurs, lifs og dauða, — milli Jesú Krists, frelsara vors, annars vegar, en Satans, erki-óvinar alls mannkyns, hins vegar. Um aldaraðir hefir Jesú Kristur boðið bœði konum og körlum að hlýða á þann sannleika, sem mundi gera þau frjáls. Satan hefir blekkt menn og konur með lýginni og á þann veg hneppt þau i hina tortimandi fjötra syndarinnar. Öll saga mannkynsins hefir verið og er enn endurkast þessarar stór- felldu, an dl e gu baráttu um sálir mannanna. DAGRENNING 1

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.