Dagrenning - 01.10.1948, Blaðsíða 4
I
..... i
I
Bak við hinar lokkandi freistingar Satans, sem eru svo glœsilegar og i
skinandi hið ytra, er ekkert nema myrkur, spilling og dauði fyrir þd, sem
heillast af lygum hans. En bak við loforð Jesú eru nœstum ótrúlegar gjafir |
allsnœgta, meðan hér er dvalið, og eilift lif i hinum komandi heimi.
Milli þessara tveggja húsbrenda getur mannkynið valið eins og vilji og
skapgerð hvers einstaks stendur til. Og — vér komumst ekki hjá þvi að
velja. Vér getum ekki þjónað báðum, og vér gctum heldur ekki komizt
fram hjá spursmálinu með þvi að neita allri þjónustu, — segjast hvorugum
vilja þjóna. Ef vér þjónum ekki Jesú, verðum vér, — hvort sem okkur
likar það betur eða ver, — hjálparkokkar Satans og Heljarsinna hans við
það starf að fullkomna vora eigin tortímingu, bœði i þessu lifi og hinii,
sem biður vor að grafar baki. Kristur gerði oss þetta svo Ijóst, að ekki j
verður um villst, þegar hann sagði: „Enginn getur þjónað tveimur herrc j
um, þvi annað hvort mun hann hata annan og elska hinn, eða aðhyllast j
annan og litilsvirða liinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammon.“
En þjónusta við Krist krefst af hverjum og einum þjónustu við með-
bræður sína, meðlimi hinnar miklu mannlegu fjölskyldu Hans, og þá j
þjónustu verður þess vegna að inna af hendi i óeigingjörnum tilgangi.
Ef vér störfum ekki að því, að safna sálum mannanna i sauðahjörð „Hins
góða hirðis“, erum það vér, sem raunverulega eigum sök á því, að þcer
villist af leið og hafni undir valdi Satans.
Enn á ný knýja orð Krists oss til þess, að horfast i augu við hinn is- ;
kalda sannleika: „Sá, sem ekki er með mér, er á móti mér; og sá, sem i
ekki samansafnar með mér, hann sundurdreifir.“ — „Þjófurinn kemur ekki
til annars en stela, drepa og eyðileggja; en ég er kominn til þess að þeir í
hafi líf og hafi nœgtir."
Fyrir óralöngu urðu forfeður vorir — ísraelsmenn — að standa and- j
spænis þessu mikla vali. Þeir urðu að velja sem þjóð, og val þeirra gilti !
blessun eða bölvun fyrir allt mannkyn:
„Sjá, ég hefi i dag lagt fyrir þig líf og heill, dauða og óheill. — j
2 DAGRENNING