Dagrenning - 01.04.1954, Qupperneq 23

Dagrenning - 01.04.1954, Qupperneq 23
samfélög þeirra mjög lítil, að því haldið er, víðast hvar fjörutíu og fimm til sex- tíu manns. Þessi litlu samfélögvoru mjög einföld að allri samsetningu. Allir stund- tiðu sömu störf, enginn höfðingi, engin stjórn, engin skráð lög, því menn kunnu ekki að skrifa, en fastar siðvenjur, sem ekki mátti brjóta, og sterkt almennings- álit. Fyrst eftir að akuryrkja hófst, breytt- ust samfélögin lítið að gerð og samsetn- ingu, en þegar frá leið, stækkuðu þau, og þegar söfnun færðist í vöxt og það, að einstakir menn létu aðra vinna fyrir sig, hefur samsetningin hlotið að breyt- ast nokkuð. Sumir komust þá af með að starfa lítið, urðu máttugir í hlut- falli við aðra og gátu orðið höfðingjar eða foringjar samfélagsins. En eftir að verkaskipting hefst að ráði, eftir að sumir fara að sækja mat sinn eingöngu til annarra manna, verð- ur hin rnikla samfélagsbreyting. Þá fara menn að skiptast í stéttir eftir vinnu sinni, sumir yrkja jörðina, bændur, sum- ir smíða, iðnaðarmenn, sumir stjórna o. s. frv. Með þessu verða samfélögin miklu fjölþættari og stækka geysilega. Og þá liefst hin svokallaða borgmenning eða ,,civilisation“. Sumir telja að í raun og veru sé ekki hægt að tala um menningu fyrri, en það er alrangt, enda fækkar jreim, sem það gera, að sama skapi og þekking á mannfræði og fornleifafræði vex og menn kynnast betur frumstæð- um mönnum og frumstæðum menn- ingum. Það skeði, að ný gerð samfélaga reis upp og ný menning í stað eldri gerða og eldri menninga. Og þessi nýja gerð breiddist út, að sínu leyti eins og akuryrkjan, og er svo að segja ríkjandi á jörðinni í dag. En hér fór svipað og um akuryrkjuna. Þessi nýjung hafði aðrar nýjungar í för með sér, nýjungar, sem virðast jafnnauð- synlegar borgmenningu og söfnun er akuryrkju, og jafneðlilegar og það, að vinnan varð leiðigjörn. Hér er ekki rúm til að telja það upp, sem sigldi í kjöl- far borgmenningar, en tvennt hef ég aðeins minnzt á áður: Stjórn og kröfur til annarra manna. Að vísu má segja, að kröfur hafi ekki verið alger nýjung. Menn hljóta alltaf að liafa gert kröfur til annarra manna um ýmislegt svo sem sæmilega hegðun og hátterni o. s. frv. En ný tegund af kröfum sprettur upp: kröfur stjórnenda til þeirra, sem þeir stjórna og kröfur liinna til stjórnendanna. Auk þess marg- faldast allar aðrar kröfur eftir því sem fjölþættni samfélagsins vex og menn verða háðari hver öðrum. Vinni ég í félagi við aðra í stórri og varanlegri heild, er velfarnaður minn í raun og veru undir heildinni kominn og heild- in að miklu háð því, hvernig ég og aðr- ir vinna sín verk. Svipað má ef til vill segja um stjórn. Vafalaust var joað al- gengt áður, að vitrustu og reyndustu mennirnir í flokknum réðu miklu um einstök verk og framkvæmdir, en það mun aldrei hafa verið lengur í hvert sinn, en á meðan að verkið stóð yfir. Þegar kvöld var komið og menn seztir kringum eldana, voru allir aftur orðnir jafnir og enginn stjórnandi. En nú breyttist þetta svo, að stjórnin var ekki lengur orðin sjálfboðavinna eða hjálp, heldur fast, viðurkennt fyrirbrigði með valdi til að stjórna öllum athöfnum samfélagsins (og síðar fýrirtækisins), kveðja aðra menn til verka eftir geð- þótta og hafa eftirlit með því, að verkin væru unnin. Og þetta var nýjung. Margt mætti segja um stjórn og fátt DAGRENN I NG 21

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.