Dagrenning - 01.04.1954, Blaðsíða 35

Dagrenning - 01.04.1954, Blaðsíða 35
gerðist ekki þegar Jesús var ný færldur, eins og oft hefur verið ranglega ályktað. í 2. kap. Lúkasar, 39. v. segir svo um hina heilögu fjölskyldu: „Og er þau höfðu lokið öllu, er lögmál Drottins bauð, sneru þau aftur til Galileu, til borg- ar sinnar Nazaret.“ Hafi þau farið aftur til Nazaret að loknu öllu því, sem lögmál- ið bauð (umskurðinum, hreinsunartími Maríu og að sýna Jesú í Musterinu) er augljóst að þau hafa ekki flúið til Egypta- lands þá. Þegar sagt er frá því, að fjár- hirðarnir, sem gættu hjarða sinna á völl- unum við Betlehem, hafi komið til að sjá Jesú, nóttina sem hann fæddist, er orðið, sem notað er um Jesú (Lúk. 2), brephos þ. e. nýfætt barn, en þegar lýst er komu vitringanna frá Austurlöndum er hann kallaður paidion, þ. e. lítill drengur eða ungbarn. Þegar Heródes ákvað' aldursmark sveinbarnanna, sem deyða skyldi í Betle- hem, gerði hann það ekki út í bláinn, heldur að vel athuguðu máli, eins og frásögnin ber með sér. Þar segir (Matt. 2, 16) að Heródes „sendi út og lét myrða öll sveinbörn í Betlehem og öllum ná- lægum héruðum, tvævetur og þaðan af yngri, eftir þeirri tímalengd, sem hann hafði komist að hjá vitringunum," en eftir grískunni er síðasta setningin ná- kvæmlega þýdd, á þessa leið: „eftir þeirri tímalengd, sem hann hafði fengið ör- ugga vissu fyrir hjá vitringunum." Með þessu móti var aldursmarkið sett ná- kvæmlega eftir aldri Jesú, og fyrst það var bundið við tvö ár, er það sönnun þess, að Jesús hefur þá ekki getað verið nýfætt barn. Orðalagið „tvævetur og það- an af yngri“ er dálítið óljóst. Á grískunni er átt við upp í tvö ár nákvæmlega, þ. e. 24 mánaða og ekkert þar fram yfir (nema þar sem svo vildi til, að innskots mánuð- urinn Ve-Adar féll inn í, þá var það vit- anlega 25 mánuðir). Ur því að aldurs- mark þeirra, sem myrða skyldi, var mið- að við aldur Jesú, hefði skipunin verið: „eins árs og þaðan af yngri,“ ef hann hefði ekki verið orðinn eins árs, en orðalag skipunarinnar, „tvævetur og þaðan af yngri,“ sýnir að Jesús hefur ver- ið meira en árs gamall, en ekki orðinn tveggja ára, þegar Heródes sendi út skip- un sína, eftir komu vitringanna. En svona skipun hefði enginn getað gefið nerna brjálaður maður. Heródes var að jafnaði grimmur, en ekki vit- skertur meðan liann var og hét. Er þá nokkur frásögn til um það, að Heródes hafi einhvern tíma tapað sér og brjálast og gert aðra furðulega hluti svipaða þessu? Sé svo, gæti það gefið bendingu um, hvenær þessir hlutir gerðust. Josep- hus segir'(Antiq. XVII, VI, 1), að þegar Heródes lá banaleguna — en það var, eins og vér höfum séð, síðustu vikur ársins 1 f. K. og fyrstu vikur ársins 1 e. K. — „hafi hann orðið ofsalega grimm- ur og fengið áköf reiðiköst við öll tæki- færi“ og gert „alla hluti eins og óður maður,“ verið „fullur af heift" til „sak- lausra jafnt og þeirra, sem hann átti eitthvað sökótt við“ og jafnvel haft á prjónunum áform um að láta myrða „alla helztu menn Gyðingaþjóðarinnar.“ Eitt af þessum brjálæðis verkum hefur auðvitað verið aftaka sakleysingjanna í Betlehem, og það er reyndar tæplega hugsanlegt að það hefði getað skeð undir öðrum kringumstæðum. Þess má geta, að Lardner I, 348 (Munter) heldur því fram, að uppþotið vegna Matthíasar, sem Heró- des lét brenna lifandi, kvöldið, sem tungl- myrkvinn varð (29. des. árið 1 f. K.) hafi verið í sambandi við komu vitringanna, og gríska kirkjan minnist enn þann dag DAGRENNING 33

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.