Morgunblaðið - 13.02.2015, Qupperneq 16
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Bassastaðir
Klúkuskóli
Steingrím
sfjörður
Bjarnarfjörður
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sverrir Guðbrandsson, verkstjóri
hjá Vegagerðinni á Hólmavík,
þurfti á unglingsárum að hírast í
meira en hálfan sólarhring í köld-
um Land Rover-jeppa ásamt
þremur yngri stúlkum og skólabíl-
stjóra í kolvitlausu veðri. Þau voru
á leið frá Bjarnarfirði yfir Bassa-
staðaháls í Steingrímsfjörð þegar
veðrið hamlaði för.
Um síðustu helgi stóð Sverrir í
ströngu ásamt samstarfsmönnum
sínum þegar vatnavextir ollu mikl-
um vegarskemmdum í Steingríms-
firði. Hópur 56 nemenda úr Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra
sat þá fastur í rútu í 17 klukku-
stundir vegna vatnavaxtanna. Lík-
lega er ekki saman að jafna dvöl
unglinganna í rútunni nú og
barnanna í jeppanum forðum
daga.
Vond veðurspá
Sverrir, sem er frá Bassastöðum
í Steingrímsfirði, var 14 ára nem-
andi í 8. bekk í Klúkuskóla í
Bjarnarfirði, þar sem nú er Hótel
Laugarhóll. Klúkuskóli var heima-
vistarskóli, börnin venjulega sótt á
mánudegi og þeim ekið heim á
föstudagskvöldi. Veðurspáin var
mjög slæm fyrir föstudaginn 13.
janúar 1984 og var því ákveðið að
Hjörtur Þór Þórsson, bóndi og
skólabílstjóri á Geirmundar-
stöðum, færi að kvöldi fimmtu-
dagsins 12. janúar að sækja börn-
in. Skólabíllinn var stuttur
dökkblár Land Rover-jeppi með
sætum fyrir þrjá fram í og fjóra
aftur í. Auk Sverris voru farþeg-
arnir tvær systur hans, þær Guð-
björg Ágústa, 13 ára, og Ragn-
heiður Sigurey, 8 ára, og Guðbjörg
Ósk Hjartardóttir, dóttir Hjartar
bílstjóra, 11 ára.
Þau voru komin að efsta ræsinu
yfir Prestalæk á norðanverðum
Bassastaðahálsinum þegar norð-
austan óveðrið skall á eins og
hendi væri veifað, sortabylur með
talsverðu frosti.
„Það sást ekki nema fram á
hálft húddið og þegar við sáum
girðingarstaur birtast framan við
bílinn taldi Hjörtur betra að doka
við,“ sagði Sverrir og hló þegar
hann rifjaði þetta upp. Um leið og
óþéttur jeppinn stoppaði í veður-
hamnum fór strax að kólna í hon-
um. „Það var dálítið kalt en ann-
ars væsti ekkert um okkur,“ sagði
Sverrir. „Við reyndum að sitja
þétt saman og hafa hita hvert af
öðru. Aðalvandinn var þegar þurfti
að pissa. Karlpeningurinn fór út
og fékk svolítið saltbragð í munn-
inn! Stelpurnar pissuðu bara við
afturhurðina en bíllinn hallaðist
svolítið aftur og það lak þar út.“
Bein útsending í sveitasíma
Hjörtur Þór bílstjóri sagði að
hann hefði verið nýbúinn að fylla
tankinn af dísilolíu og því var eng-
in hætta á að jeppinn yrði elds-
neytislaus. Ekkert höfðu þau að
borða eða drekka. Þau voru ekki
heldur með teppi. Í jeppanum var
CB-talstöð sem gerði Hirti kleift
að vera í talstöðvarsambandi við
bæinn Odda í Bjarnarfirði. Enn
var sveitasími í sveitinni og það
kom sér vel því allir gátu verið á
línunni og fengið fréttir af ferða-
löngunum.
Föðurbróðir Sverris, Rúnar
Sverrisson, fór af stað frá Bassa-
stöðum um nóttina á dráttarvél
með framdrifi og ætlaði að freista
þess að hjálpa til. Svo mikill snjór
settist í loftsíuna að dráttarvélin
hætti að ganga og þurfti Rúnar að
láta fyrirberast á hálsinum alla
nóttina sambandslaus við umheim-
inn. Eins var reynt að fara á jeppa
upp á hálsinn til aðstoðar en hann
náði ekki langt vegna ófærðar og
óveðurs. Guðbrandur Sverrisson,
bóndi á Bassastöðum sem átti þrjú
börn í bílnum, lá heima með
brjósklos í baki og gat nánast ekki
hreyft sig. Hann sagði að það
hefði verið erfitt.
Lítið svefnsamt um nóttina
Þeim sem biðu í jeppanum á
hálsinum varð lítið svefnsamt um
nóttina, að sögn Sverris. „Við vor-
um spennt að bíða og sjá hvort
veðrinu slotaði ekki. Það var tölu-
vert mikill munur að vera í tal-
stöðvarsambandi við Odda.“
Veðrið fór ekki að ganga niður
fyrr en í birtingu um morguninn.
Þá komust þeir Baldur Sigurðsson
og Jóhann Björn Arngrímsson frá
Odda á jarðýtu upp úr Bjarnar-
firði. Jóhann Björn stóð utan á ýt-
unni og sagði Baldri til. Þannig
gátu þeir rutt jeppanum leið yfir
hálsinn. Börnin á Bassastöðum
komu heim nokkuð eftir hádegið á
föstudeginum. Ferðalagið tók því
meira en hálfan sólarhring en
vegalengdin frá Klúkuskóla að
Bassastöðum er ekki nema um sjö
kílómetrar.
Sverrir sagðist oft hafa lent í
öðru eins veðri síðan þetta var,
enda eru starfsmenn Vegagerð-
arinnar oft úti í vondum veðrum.
Það hefur þó ekki komið fyrir síð-
an þetta gerðist að Sverrir hafi
þurft að sitja í bíl heila nótt uppi á
fjalli vegna óveðurs. Hann sagði
að engum sem í jeppanum var
hefði orðið meint af ferðalaginu
forðum og það væri fyrir mestu.
Sáu fram á hálft húdd jeppans
Sverrir Guðbrandsson, vegavinnuverkstjóri á Hólmavík,
þekkir af eigin raun að vera tepptur í skólabíl Skólabíl-
stjóri og fjögur börn hírðust í köldum Land Rover heila nótt
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vegavinnuverkstjóri Sverrir Guðbrandsson á Hólmavík stóð í ströngu ásamt samstarfsmönnum við að laga vegi
sem rofnuðu í vatnavöxtum um síðustu helgi. Rúta með fjölda nemenda komst þá ekki leiðar sinnar.
Bassastaðasystkinin F.v.: Guðbjörg Ágústa, Ragnheiður Sigurey og
Sverrir Guðbrandsbörn nokkuð yngri en þegar ferðin var farin.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2015
Verð fr
á
KAI eru:
• Japanskir hágæða hnífar sem hafa verið framleiddir í yfir 100 ár
• Gerðir úr hágæða stáli
• Yfir 23.000 hnífar seldir á Íslandi
• Hnífar fyrir fagmanninn
jafnt sem áhugamanninn
Hágæða hnífar
SEKI MC
Shun Prem
iere
Pure koma
chi 2
Wasabi Bla
ck
2.250
kr.
Shun
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14.