Morgunblaðið - 13.02.2015, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.02.2015, Blaðsíða 46
Lofsunginn Adam Bainbridge starfar undir nafninu Kindness og hefur hlotið mikið lof tónlistargagnrýnenda. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Enski tónlistarmaðurinn Adam Bainbridge, sem kallar sig Kind- ness, kemur fram á tónlistarhátíð- inni Sónar Reykjavík í Hörpu ann- að kvöld ásamt hljómsveit. Bainbridge gaf út sína fyrstu plötu, World, You Need a Change of Mind, árið 2012 og hlaut hún mikið lof tónlistargagnrýnenda líkt og sú nýjasta, Otherness, sem kom út í fyrra. Bainbridge er ekki aðeins hæfi- leikaríkur tónlistarmaður og söngvari heldur einnig leikstjóri, hefur stýrt öllum sínum tónlistarmyndböndum og komið að leikstjórn myndbanda annarra tón- listarmanna og þá m.a. Cat Power. Örlátir samverkamenn Bainbridge er hinn ljúfasti við- mælandi sem kemur ekki á óvart þar sem hann kennir sig við gæsku. „Ég var að vinna að verk- efni í Bandaríkjunum og vantaði heiti yfir það. Fólkið sem ég var að vinna með var afskaplega örlátt og ég sá ekki fyrir mér að ég myndi halda áfram að semja tónlist og fannst þetta gott heiti,“ segir Bain- bridge um tilurð nafnsins Kind- ness. Hann hafi hins vegar haldið áfram listsköpun sinni og haldið í nafnið, enda þægilegt og með já- kvæða merkingu. En hverjar eru tónlistarlegar rætur hans? „Pabbi minn var plötusnúður og spilaði mikið popp- og sálartónlist, Motown-tónlist fyrri hluta áttunda áratugarins og hún hafði mikil áhrif á mig. Ég hlustaði meira á popp en aðra tónlist,“ segir Bain- bridge. Hann hafi starfað sem plötusnúður líkt og faðir hans, áður en hann fór að semja og flytja tón- list. – Myndirðu þá lýsa tónlist þinni sem sálarskotnu poppi? „Já, ætli það ekki. Þetta er popptónlist sem hljómar líklega ekki eins og önnur popptónlist ein- mitt núna en er popptónlist engu að síður. Hún hefði líklega átt bet- ur við á öðrum tíma, í ljósi áhrif- anna. Ég hlusta mikið á gamla tón- list en líka nýja,“ segir Bainbridge. Bainbridge leikur á Sónar með fimm manna hljómsveit og segir hann fjölda tónlistarmanna breyti- legan eftir tónleikastöðum. Spurð- ur að því hvort hljómsveitin sé fjörug á sviði segir Bainbridge hana vera það. „Vonandi verðum við þau fjörugustu á hátíðinni en það er aldrei að vita nema ein- hverjir verði líflegri,“ segir hann sposkur. – Það er mikil áskorun! „Já, ég var að skoða hátíðardag- skrána og er reiðubúinn að takast á við hana,“ segir Bainbridge hinn rólegasti. Í hljómsveitinni verði gítarleikari, trymbill, bassaleikari, hljómborðsleikari og tveir söngv- arar auk hans og segir Bainbridge hljómsveitina afar kraftmikla. Bölvun eftirspurnarinnar Bainbridge hefur ekki komið til Íslands áður og segist hann hlakka mikið til ferðarinnar. Því miður hafi hann ekki tíma til að ferðast og skoða sig um. „Það er bölvunin sem fylgir því að vera eftirsóttur, við fljúgum til New York næsta dag. Það er miður, ég hefði haft gaman af því að dvelja lengur.“ Sem fyrr segir hefur Bainbridge leikstýrt fjölda myndbanda og seg- ist hann sjálflærður í þeirri list. „Góð tónlistarmyndbönd snúast frekar um að fá góða hugmynd en tæknikunnáttu,“ segir Bainbridge. – Á síðustu plötu þinni nýturðu liðstyrks Robyn, Kelela og Blood Orange m.a. Þú átt greinilega góða vini í bransanum … „Kannski á ég bara þrjá góða vini og notaði þá alla?“ segir Bain- bridge og hlær en bætir við, á al- varlegri nótum, að sér líki vel að vinna með þessum tilteknu tónlist- armönnum enda kunni hann að meta tónlistina þeirra. „Vonandi verðum við þau fjörugustu“  Kindness kemur fram á tónlistar- hátíðinni Sónar  Undir áhrifum Motown og gamallar popptónlistar Frekari upplýsingar um Sónar Reykjavík má finna á vef hátíð- arinnar, sonarreykjavik.com. 46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2015 Ó lö f B jö rg STOFNAÐ1987 einstakt eitthvað alveg Ó Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n Sk i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s Árlegir Bergþórutón- leika fara fram á Ró- senberg í kvöld kl. 22. Að þessu sinni verða tónleikarnir í formi vísnatónleika, þar sem áherslan er á einfald- leika í flutningi lags og ljóðs. Svavar Knútur hefur kallað til nokkra listamenn með sér, þar má nefna Ragnheiði Gröndal og Guðmund Pétursson, Soffíu Björgu, Skúla mennska, Inga Gunnar Jóhannsson og Gísla Helgason. „Að vanda verða flutt mörg af þekktustu lögum Berg- þóru, sem ganga þó í endurnýjun lífdaga með ferskum útsetningum. Að þessu sinni verða sett í spilun tvö lög eftir Bergþóru, „Þjóð- arblómið“ í flutningi og útsetningu Svavars Knúts og lagið „Segðu aft- ur“, sem frumflutt var í útsetningu Ragnheiðar Gröndal á tónleikunum í fyrra,“ segir m.a. í tilkynningu. Minningarsjóður Bergþóru Árnadóttur stendur að tónleik- unum, en hann var stofnaður vorið 2008. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að því að tónlist Bergþóru og minning lifi meðal þjóðarinnar. „Berg- þóra Árnadóttir (1948-2007) var einn af frumkvöðlum vísnatónlistar á Ís- landi og lengi vel at- kvæðamesta konan í hópi söngvaskálda. Hún samdi gjarna lög við ljóð þekktra skálda, þ.á m. Steins Steinars, Tóm- asar Guðmundssonar og Jóhann- esar úr Kötlum. Á ferli sínum sendi hún frá sér margar hljómplötur og hélt fjölda tónleika hérlendis og í Skandinavíu.“ Miðar eru seldir við innganginn, en hægt er að panta borð í síma 551-2442. Bergþórutónleikar á Rósenberg í kvöld Þjóðarblóm Bergþóra Árnadóttir söngkona. „100 raddir“ er yfirskrift hátíðar kvennakórsins Létt- sveitar Reykjavíkur sem haldin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun milli kl. 13 og 17. Hátíðin er liður í afmælisdagskrá sveitarinnar sem fagnar 20 ára afmæli sínu á árinu. Í Ráðhúsinu verða til sýnis ýmsir munir og myndir úr kórstarfinu sem safnast hafa á 20 árum. Kór- inn mun syngja nokkur lög kl. 14 og 16 og m.a. frum- flytja lagið „100 raddir“ eftir Eygló Eyjólfsdóttur, sem söng með Léttsveitinni í mörg ár, en hún lést fyrir nokkrum árum. Í maí nk. eru fyrirhugaðir veglegir afmælistónleikar, en þar verða frumflutt lög sem sérstaklega eru samin fyrir afmælið. „Í haust, nálægt hinum eiginlega afmæl- isdegi, munu Léttur halda upp á tímamótin með veislu. Þess má geta að íslenskar konur halda á þessu ári upp á að hundrað ár eru liðin frá því þær fengu kosningarétt. Léttsveitin mun í vor koma fram á hátíðahöldum af því tilefni og frumflytja ljóð og lag sem verið er að semja sérstaklega fyrir kórinn,“ segir m.a. í tilkynningu. Í kórnum eru 120 konur en um 500 konur hafa sungið með kórnum frá upphafi. „Jóhanna Þórhallsdóttir stjórnaði Léttsveitinni frá upphafi til ársins ársins 2012 er Gísli Magna tók við sprotanum. Aðalheiður Þorsteins- dóttir píanóleikari hefur starfað með kórnum frá stofnun hans árið 1995,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að á sl. 20 árum hafi Léttsveitin haldið 60 tónleika, farið í tíu utanlandsferðir og ellefu ferðir innanlands. Með kórnum hafa sungið 40 einsöngvarar fyrir um 30 þúsund áheyr- endur. Allir eru velkomnir á hátíðina í Ráðhúsinu á morgun. „En þó viljum við sérstaklega bjóða velkomnar allar þær konur sem í skemmri eða lengri tíma tilheyrðu Léttsveit- inni.“ Léttsveit Reykjavíkur 20 ára Ljósmynd/Erling Söngelskar Alls eru 120 konur í Léttsveit Reykjavíkur, en um 500 konur hafa sungið með kórnum frá upphafi.  Hátíð í Ráðhúsinu á morg- un og tónleikar í Hörpu í maí Sónar Reykjavík 2015

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.