Morgunblaðið - 13.02.2015, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2015
DÚKAR RÚMFÖT HANDKLÆÐI SKYRTUR
Láttu okkur
sjá um
þvottinn
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 7990.- m
Vegna afnáms Vörugjalda
nú kr. 6.990 m2
Stokkhólmi. AFP. | Felicia Zander
fékk heilablæðingu þegar hún var
sex ára og á rúmu ári gekkst hún
undir u.þ.b. tólf skurðaðgerðir, auk
þess sem hún fór í röntgenmynda-
tökur, heilaskönnun og aðrar rann-
sóknir.
Fyrir hverja innlögn eða rann-
sókn á sjúkrahúsinu fór hún á vef-
síðu sjúkrahússins þar sem teikni-
myndapersónur lýstu því fyrir henni
hvers konar aðgerð biði hennar og
róuðu hana.
Felicia fylgdist grannt með
„sjúkrahúsævintýrum“ Pajette,
trúðs sem beið eftir botnlanga-
skurði, og Ville, tíu ára villisvíns
sem þurfti að fara í heilaskönnun.
„Það hjálpaði mér að skilja þetta
betur, búa mig undir þetta … það
róaði mig,“ sagði Felicia við frétta-
mann AFP. „Maður hræðist það að
fara í svæfingu en það er ekki
hættulegt í raun og veru,“ bætti hún
við og brosti.
Hjúkrunarfræðingur á stærsta
barnasjúkrahúsi Svíþjóðar bjó til
Svæfingavefinn (narkoswebben.se).
Á vefnum er lesefni á 27 tungu-
málum, m.a. íslensku, og myndskeið,
tölvuleikir og teiknimyndir á
sænsku, ensku, spænsku og arab-
ísku. Myndirnar sýna börnunum
hvað bíður þeirra á sjúkrahúsinu,
allt þar til þeim er boðið upp á ís í
verðlaun þegar þau vakna eftir
skurðaðgerðina.
Hafa mikil áhrif
Í teiknimyndasögu af Ville, sem
slasaðist á höfði, er útskýrt á ein-
földu máli hvernig hjólarúminu hans
er ýtt að „stórri holu þar sem mynd-
ir verða teknar af því sem er inni í
líkamanum“. Einnig er útskýrt
hvers vegna hann þurfi að vera al-
veg kyrr.
Sögurnar höfðu mikil áhrif á Fel-
iciu sem er nú orðin tíu ára. „Um
tíma var hún næstum alltaf fyrir
framan tölvuna að skoða Svæf-
ingavefinn,“ sagði móðir hennar,
Maria Zander. „Fyrir eina aðgerð-
ina spurði hún jafnvel hjúkrunar-
fræðing hvort hann hefði skoðað
vefinn og vissi hvað hann ætti að
gera.“
Zule Sicardi, svæfingalæknir á
sjúkrahúsi í miðborg Stokkhólms,
kvaðst hafa tekið eftir því að vefur-
inn hefði mikil áhrif á börn áður en
þau gengjust undir skurðaðgerðir.
„Börnin sem nota hann eru rólegri
og öruggari, þau vita hvað bíður
þeirra,“ sagði hún. „Og þau fá alls
konar upplýsingar um mannslíkam-
ann og það gerir þeim kleift að tala
um það við fólkið sem er hjá þeim.“
Læknir fór yfir allt efnið á vefn-
um og samþykkti það. Þegar vef-
urinn var stofnaður árið 2006 var
hann fyrstur sinnar tegundar í
heiminum og hann á enn engan sinn
líka. Á hverjum mánuði fær hann
um 15.000 heimsóknir og flestir not-
endanna eru í Svíþjóð. Svipaður vef-
ur hefur verið stofnaður í Kanada og
ráðgert er að þýða hann á hollensku.
„Hafði ekki tíma til að róa þau“
Gunilla Loof, hjúkrunarfræðingur
við svæfingadeild Astrid Lindgren-
barnasjúkrahússins í Stokkhólmi,
átti hugmyndina að Svæfingavefn-
um. Hún segist hafa gert sér grein
fyrir því að mikil þörf hafi verið á
því að búa börnin og foreldra þeirra
betur undir skurðaðgerðirnar.
„Það gerðist of oft að ég hitti
kvíðin börn og foreldra og hafði ekki
tíma til að róa þau. Ég vildi breyta
þessu,“ sagði Loof. „Það er til mjög
mikið af almennu fræðsluefni um
sjúkrahúsvist og markmiðið var að
taka það saman og setja fram með
öðrum hætti – í stað þess að renna
yfir það í fljótheitum fyrir aðgerð-
ina. Og til að ná til ungmennanna
þarf að fara þangað sem þau eru: á
netið.“
Samkvæmt opinberum upplýs-
ingum nota nánast allir Svíar á aldr-
inum 13 til 21 árs netið reglulega.
Svíþjóð er einnig á meðal þeirra
landa þar sem algengast er að börn
eigi snjallsíma og tölvur.
Meira en helmingur sænskra
barna hefur aðgang að spjaldtölvu
og um 95% af þeim sem eru tólf ára
eða eldri eiga snjallsíma.
Loof segir að erfiðast hafi verið að
finna leiðir til að haga framsetningu
fræðsluefnisins þannig að hún höfði
til allra aldurshópa. „Erfiðast var að
ná til unglinganna. Við nutum að-
stoðar hóps tíu barna á aldrinum 10
til 18 ára og byggðum á reynslu
þeirra þegar við þróuðum vefinn.“
Per-Arne Lönnqvist, prófessor í
barnasvæfingum, segir að gera þurfi
myndefnið á vefnum aðgengilegt á
spjaldtölvum og snjallsímum því sí-
fellt fleiri ungmenni noti ekki borð-
eða fartölvur. „Annars er hætta á að
við náum ekki til eins margra ung-
menna.“
Svæfingavefurinn hefur þó haft
varanleg áhrif á kynslóð barna sem
hafa þurft að gangast undir skurð-
aðgerðir. „Það var eins og ég gæti
haft stjórn á aðstæðunum,“ sagði
Felicia.
Svæfingavefur
róar börnin
AFP
Narkoswebben Felicia Zander og móðir hennar skoða Svæfingavefinn. „Fyrir eina aðgerðina spurði hún jafnvel
hjúkrunarfræðing hvort hann hefði skoðað vefinn og vissi hvað hann ætti að gera,“ sagði móðirin um Feliciu.
Teiknimyndir útskýra aðgerðirnar
Norski fjölda-
morðinginn And-
ers Behring Brei-
vik hyggst fara í
mál við norska
dómsmálaráðu-
neytið á þeim for-
sendum að það
jaðri við pynt-
ingar að halda
honum í viðvar-
andi einangrun.
Lögmaður fjöldamorðingjans, Geir
Lippestad, hefur staðfest þetta.
Hann telur einangrunina brot á
mannréttindasáttmála Evrópu og
segir að fanginn hafi búið við þessar
aðstæður undanfarin tvö ár.
„Viðvarandi einangrun verður
með tímanum ígildi pyntinga,“ er
haft eftir honum á fréttavefnum
Thelocal.no. Breivik var dæmdur í
21 árs fangelsi í ágúst 2012 fyrir
árásir sem kostuðu 77 manns lífið.
NOREGUR
Breivik hyggst fara
í mál við dóms-
málaráðuneytið
Anders Behring
Breivik