Morgunblaðið - 13.02.2015, Qupperneq 29
sem þið talið niður allt það sem ís-
lenskt er. Býst við að þið séuð Sam-
fylkingarmenn og Píratar, Björt
framtíð gæti líka passað hér. Er
kappið svona mikið við að koma
Framsókn frá völdum? Þá er aðferð
ykkar lúaleg og illa ígrunduð. Fram-
sókn á hrós skilið fyrir að vilja vernda
landið. Og þó að þið þykist vera al-
heimsborgarar, þá er enginn heims-
borgari án fósturlands. Þið ættuð að
eiga heima í landi þar sem sjálfstæði
þess er horfið með morgundeginum,
svo góða ferð út í ykkar alheim. Þar
fengjuð þið ekki að bulla svona. Tal
og skrif ykkar er ábyrðarlaust. Takið
þið ábyrgðina fari þessi speki ykkar
skakkt í huga unga fólksins? Það
þyrfti eftirlit með prófessorum há-
skólanna. Ég tala og skrifa fyrir mig
sjálfa, tilheyri ekki neinum né neinu
nema landi mínu og í því felst frelsi
mitt. Ísland sé frjálst meðan þjóðin er
til. Þið sem rífið niður eruð á rangri
leið, það munið þið upplifa með tím-
anum. Aðgát skal höfð í nærveru ann-
arra þjóða.
Ástarjátning
Með þessari grein kemur ástar-
játning mín. Þó að ég sé ekki skáld,
leyfi ég mér uppröðun þessara orða.
Ó, mitt fagra, gjöfula land,
víðáttur, svartan sand.
Vil ei slíta það band,
er mig bindur þig við.
Þig ég elska.
Fögru fjöllin, lágu sem háu,
gefa mér sýn.
Heiðarvötnin bláu,
sem svanirnir sáu
og elska eins og ég.
Fossarnir fagurlega falla,
sífellt á mig kalla,
ögra mér og þér.
Laxarnir þá elska
eins og ég.
Hesturinn, kindin, geitin.
Fögur er sveitin.
Eiga sér fagra reitinn
hin smáu dýr,
þar sem dulúðin býr.
Elska eins og ég.
Hafið ég horfi á,
fegurð þess má sjá,
brimhljóðin heyra má.
Allt sem þar lifir,
elskar sinn íverustað,
eins og ég.
En
auðugir mennta viðskiptajöfrar
sjá ei þessa töfra,
nema til að selja og kvelja.
Þýðir víst lítið að röfla.
Megið þeir endalaust sitja og telja
silfurpeningana 30, – landlausir.
Mitt einstaka land,
vöggu mér gafst.
Mín andvörp þér fel,
ei skika af þér sel.
Berjast þú skalt,
gegn auðmanna fé.
»En nei, ég er víst fas-
isti eftir orðum
fræði-, blaðamanna og
skálda sem fara mikinn
á DV-vef.
Höfundur býr á Sauðárkróki.
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2015
VINNINGASKRÁ
41. útdráttur 12. febrúar 2015
420 9052 23261 32581 40353 51648 60173 72042
685 9181 23886 33032 40473 51761 60405 72120
689 10827 25346 33427 42426 52036 60780 72800
875 11283 26292 33762 42436 52222 62203 73223
934 11968 26300 34185 42546 52530 62234 73456
1106 12201 26389 34413 42560 52693 62462 74153
2279 13041 26544 34603 43123 52842 62824 74496
2531 13850 26634 34664 43438 52957 63559 74675
2600 14193 26751 34937 46340 53072 63937 75944
2696 14556 26844 35167 46791 53392 64297 76248
2778 14659 26869 35249 46955 53441 64444 76492
3144 15574 27402 35254 46969 53830 65197 76611
3324 16022 27465 35949 47733 54373 65550 76942
3362 16126 27674 35986 47887 54611 66271 77422
3586 16469 27717 36688 48001 54940 66652 77491
3843 17010 28031 37045 48002 54986 67087 77507
4194 17039 28152 37299 48297 55131 67580 77537
4484 17466 28249 37358 48497 55225 68130 77822
4741 17706 28349 37852 48702 55499 68224 78091
5459 18388 28366 38054 49319 55862 68251 78339
5659 18393 28539 38116 49495 55969 68372 78392
5784 18969 28621 38418 50191 57369 68621 78917
6910 19171 29232 38475 50300 57808 69001 79387
7077 20605 29367 38569 50405 58027 69202 79438
7368 21281 30861 38573 50612 58145 69618 79764
7384 21813 31093 38649 50800 58209 69901 79781
7477 21920 31250 39144 50894 58256 69921
7978 22008 31811 39452 50958 58786 70232
8003 22076 32087 39505 50998 59203 70396
8114 22292 32204 39571 51466 59251 71279
8263 22762 32211 39592 51491 59353 71300
9028 23260 32571 39704 51497 59819 71518
562 11725 25838 32484 41955 54701 63870 72237
1621 13225 26884 33545 45811 54728 64819 72289
1991 13473 27780 33557 45870 56821 66032 74185
2233 19391 28490 35168 46440 57460 66393 75830
3332 19606 29447 35599 47573 58373 66728 76532
3444 20887 29913 36521 47882 59298 67153 76979
4017 21284 30426 37190 47914 60036 67832 77985
4160 21304 30604 37584 48756 60904 67909 77997
5901 22695 30847 37922 49153 61348 68857 78170
7594 22804 31488 39489 52309 61383 69565
11073 23815 31577 39993 52636 62560 70496
11479 25365 32143 40187 52709 62580 72026
11715 25717 32454 40968 54472 62667 72171
Næstu útdrættir fara fram 19. feb. & 26. feb. 2015
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
12456 19023 71901 77764
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4610 14480 18744 32765 39679 56847
9283 15833 21305 39093 42633 60420
11420 18397 26758 39236 51737 61912
14476 18577 28634 39360 51998 66397
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
1 9 4 6 1
Nýlega kynntist ég
manni nokkrum.
Reyndar samferða-
manni til margra ára
sem mér fannst ég
kannast eitthvað við
frá fyrri tíð. Ég tek
fram að hann er afar
velviljaður blessaður
en jafnframt veiklund-
aður á stundum og
skelfing vesæll, svo að
ég á oft á tíðum hreinlega í mesta
basli með hann. Oft reyni ég að
hvetja hann til að líta í spegil og láta
sér síðan þykja vænt um manninn
sem hann þar sér. En það gengur
misjafnlega.
Reyndar er hann svo líkur mér
blessaður að ég ruglast stundum
næstum því á okkur. Mér finnst
hann oft nánast eins og skugginn af
sjálfum mér. Karlkvölin hefur verið
að ganga í gegnum vægast sagt erf-
iða tíma. Því er ekki endilega alltaf
auðvelt að dragnast með kauða.
Hann greindst nefnilega óvænt með
krabbamein um mitt ár 2013, þá ekki
fimmtugur, sem nú er sagt ólækn-
anlegt.
Tilraunir, æfingar og leikir
Hann var sendur í sneiðmyndatök-
ur, segulómun og beinaskann, jafnvel
oftar en einu sinni í hvert tæki og í
uppskurð sem skilaði ekki tilætluðum
árangri. Því næst í áframhaldandi
rannsóknir bæði innanlands og utan.
Við tók löng og ströng geislameðferð
sumarið 2014 sem engu skilaði. Gildin
héldu bara áfram að hækka. Biðin
var endalaus og reyndi verulega á.
Dýfurnar hafa verið margar og mikl-
ar og vonbrigðin verið algjörlega
ósegjanleg.
Nú hefur hann hafið lyfjameðferð
með tilheyrandi aukaverkunum. Allt
þetta ferli hefur breytt honum all-
nokkuð og gert hann sannarlega
reynslunni ríkari. Hann hefur glímt
mikið, fyrst og fremst þó við sjálfan
sig en einnig við kerfið og við Guð,
sem hann segist ekki skilja en hefur
engu að síður sett alla sína von og
trú á í trausti þess að hann myndi
vel fyrir sjá hvernig sem allt færi.
Orð sem gott er að hvíla í
Ég veit að eftirfarandi orð Páls
postula úr Rómverja-
bréfinu eru í miklu
uppáhaldi hjá honum:
„Ég lít svo á að
þjáningar þessa tíma
séu ekki neitt í sam-
anburði við þá dýrð
sem á okkur mun op-
inberast.
Ef Guð er með okk-
ur hver er þá á móti
okkur? Hann sem
þyrmdi ekki sínum
eigin syni heldur
framseldi hann fyrir
okkur öll, hvort heldur mun hann
ekki líka gefa okkur allt með hon-
um?
Kristur Jesús er sá sem dáinn er.
Og meira en það: Hann er uppris-
inn, hann situr við hægri hönd Guðs
og hann biður fyrir okkur með and-
vörpum sem ekki verður komið í
orð. Hver mun gera okkur viðskila
við kærleika Krists? Mun þjáning
geta það eða þrenging, ofsókn,
hungur eða nekt, háski eða sverð?
Nei, í öllu þessu vinnum við fyllsta
sigur í krafti hans sem elskaði okk-
ur. Því að ég er þess fullviss að
hvorki dauði né líf, englar né tignir,
hvorki hið yfirstandandi né hið
ókomna, hvorki kraftar, hæð né
dýpt né nokkuð annað skapað muni
geta gert okkur viðskila við kær-
leika Guðs sem birtist okkur í Kristi
Jesú, Drottni vorum.“
Hann fyrirverður sig
ekki fyrir kærleikann
Þessi umræddi vinur minn ákvað
ungur að árum að ásetja sér líkt og
Páll postuli forðum að vita ekkert
mikilvægara manna á meðal, en
Jesú Krist og hann krossfestan og
upprisinn frelsara mannkynsins og
eilífan lífgjafa allra þeirra sem það
vilja þiggja. Ég hef nefnilega tekið
eftir því að hann fyrirverður sig ekki
fyrir fagnaðarerindið um frelsarann
því það er honum allt. Fyrir það lifir
hann og fellur ef því er að skipta.
Fagnaðarerindið sem hljómar í eyr-
um heimsins sem dæmalaus
heimska en er í hans hjarta leiðin til
eilífs lífs.
Því hefur hann ávallt reynt að
miðla þótt af veikum mætti hafi
vissulega verið. En í einlægni með
auðmýkt og í trausti til Guðs. Að
hann fyndi hans fátæklega erindi,
erindi kærleikans, farveg svo það
bærist frá hjarta til hjarta. Yrði ljós
af litlum loga, sem um síðir yrði e.t.v
að miklu óslökkvandi báli.
Dýrð sé Guði!
Föstudaginn 31. október sl. átti
hann að mæta í rannsóknir þar sem
kanna átti hvernig hann svaraði
lyfjagjöfinni, sem var í raun síðasta
hálmstráið. Annaðhvort virkaði hún
í einhvern tíma eða hann gæti ein-
faldlega farið að pakka saman og
tekið til við að velja sálmana.
Kvöldið áður hafði hann brugðið
sér á útgáfutónleika kórs Linda-
kirkju, sem er ekkert venjulegur
kirkjukór. Þar gerðist það undur í
einu laginu, Dýrð sé Guði, en text-
inn byggist á bæn frelsarans, Faðir
vor, að vinurinn komst ekki aðeins
við heldur lygndi aftur augum með
útréttar hendur. Áður en hann vissi
af tóku tárin að streyma niður kinn-
ar hans. Hann tók allur að hristast
og skjálfa og grét einlægum
bænatárum svo lítið bar á. Bless-
unardöggum sem tjáðu þakklæti
fyrir lífið, náð Guðs og blessun.
„Þín sé dýrðin! Verði þinn vilji að
eilífu.“
Þarna gerðist eitthvað, sem hann
var ekki í nokkrum vafa um hvað
var. Hann hafði aldrei áður upplifað
neitt þessu líkt. Hann er þess full-
viss að á þessari stundu hafi hann
verið snertur með sérstökum hætti
af Heilögum anda Guðs.
Svo leið helgin og mánudagur og
þriðjudagur. Það var svo ekki fyrr
en um miðjan miðvikudag að lækn-
irinn hringir í hann og tilkynnir hon-
um að hann sé að svara meðferðinni
vel. Gildin hafi ekki aðeins staðið í
stað eða lækkað lítillega heldur séu
þau nú hreinlega komin niður í núll!
Já, dýrð sé Guði!
Skugginn af sjálfum mér
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Áður en hann vissi af
tóku tárin að
streyma niður kinnar
hans. Hann tók allur að
hristast og skjálfa. Á
þeirri stundu gerðist
eitthvað óútskýranlegt.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og áhugamaður um lífið.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda.
Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar á aðra
miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá kl.
8-18.
Kona hringdi í Velvakanda og vildi benda á að dýr hafa haus en ekki höfuð,
kjaft ekki munn og þau éta en borða ekki.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Ábending
Sauðfé Fé kemur af fjalli. Glögg kona hafði samband og benti á að dýr hafa haus.