Morgunblaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 3
Nánari upplýsingar á rsk.is Einfalt að skila framtali skattur.is Auðkenning Unnt er að auðkenna sig með þrenns konar hætti, þ.e. með rafrænum skilríkjum í gsm síma, rafrænum skilríkjum á korti og með veflykli RSK. Ríkisskattstjóri mælir með að rafræn skilríki séu notuð við auðkenningu. Símaþjónusta í 442-1414 Í mars verður veitt aðstoð í síma 442-1414 alla virka daga frá kl. 9:30-15:30. Dagana 18. - 20. mars verður símaþjónusta til kl.18:00 og 30. og 31. mars verður þjónustan í boði til kl. 19:00. Skilafrestur Almennur skilafrestur fyrir launamenn og einstaklinga með eigin atvinnurekstur er til 20. mars. Unnt er að sækja um lengri frest á skattur.is og getur hann lengstur orðið til 31. mars. Framtal barns skal fylgja framtali framfæranda. Upplýsingar á framtali Áríðandi er að framteljandi athugi hvort áritaðar fjárhæðir og aðrar upplýsingar séu í samræmi við gögn og upplýsingar sem hann hefur sjálfur undir höndum. Frestur til staðfestingar er til 20. mars

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.