Morgunblaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 11
Leikur Málþing grunn- og leikskólakennara í Hafnarfirði var býsna vel sótt en um níu hundruð manns mættu. og vísar til sláandi upplýsinga sem fram koma í Hvítbók Illuga Gunn- laugssonar. „Þar kemur fram að þrjátíu pró- sent drengja í tíunda bekk grunn- skóla geta ekki lesið sér til gagns og ánægju. Það sem hefur líka verið al- varlegt og talmeinafræðingur grunn- skóla talar um er að hún hefur fundið krakka í fjórða bekk sem geta ekki lesið og hreinlega kunna það ekki. Það er mjög mikið áhyggjuefni,“ seg- ir hún. Byrjað í leikskólanum Vissulega er vandinn nokkur og einskorðast ekki við einstök sveitar- félög heldur menntakerfi landsins í heild, enda Hvítbókin ekki gefin út að ástæðulausu. „Þetta á ekki bara við um lestur heldur læsi almennt. Börn geta ekki leyst stærðfræðidæmi ef þau geta ekki lesið textann sem á við um verkefnið sem á að leysa,“ segir Jenný. Í Hafnarfirði hafa því verið gerð- ar áætlanir um skimanir á börnum og snemmtæka íhlutun í leikskóla. „Við ætlum að ná í þessa krakka þegar þeir eru pínulitlir, eða allt niður í tveggja og hálfs árs,“ segir Jenný og bætir því við að Ingvar Sigurgeirsson, prófess- or í kennslufræði við mennta- vísindasvið Háskóla Íslands, hafi ný- lega gengið til liðs við þau í Hafnarfirði. „Hann ætlar meðal ann- ars að ræða við alla skólastjóra og leikskólastjóra í Hafnarfirði. Stýri- hópurinn hefur unnið mikla undirbún- ingsvinnu og munum við halda okkar striki með aðstoð Ingvars.“ Rík áhersla verður lögð á dag- legan lestur, yndislestur og allt sem lestur snertir. Lesið verður í auknum mæli fyrir yngstu börnin í leikskól- unum og hljóðkerfisvitund þeirra efld. „Þá er unnið með bókstafi og hljóð alla daga með börnum frá fjögurra ára aldri og áhersla lögð á heimalestur, að foreldrar lesi fyrir börnin heima. Í leikskólum verða bækur aðgengilegar alla daga fyrir börn þannig að þau geti skoðað og hlustað á hljóðbækur. Þeim er kennt að umgangast bækur og að bókasafnið sé nýtt sem mest,“ segir Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, þró- unarfulltrúi leikskóla Hafnarfjarðar. Eftirfylgni kennara felst meðal annars í því að leggja próf fyrir börnin og það er gert í samstarfi við heilsu- gæsluna, þegar börnin koma þangað í tveggja og hálfs árs skoðun og fjög- urra ára skoðun. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015 Sagnakaffi er ný viðburðaröð í Gerðubergi í Breiðholti þar sem reynt verður að víkka út ramma hefðbundinnar sagnamennsku. Sagðar verða sögur í tali, tónum, takti, ljóðum og leik. Fólk úr ýms- um geirum þjóðfélagsins verður fengið til leiks, svo sem tónlistar- fólk, leikarar, uppistandarar, ljóð- skáld og rapparar svo fátt eitt sé nefnt. Í kvöld kl. 20 ætlar Svavar Knút- ur söngvaskáld að stíga á pall á sagnakvöldinu, en hann hefur unnið sér sess meðal fremstu söngvara og lagahöfunda Íslands. Með ein- faldleikann að vopni hefur hann náð að skapa sér sérstöðu jafnt fyrir frumsamin lög sín og túlkun á sígildum íslenskum sönglögum. Svavar Knútur er þekktur fyrir að blanda saman húmor og alvarlegum málefnum, að draga áhorfendur sína gegnum hláturrokur og tára- dali, með kærleikann og gleðina sem endastöð. Gestir kvöldsins fá einnig að stíga á svið og spreyta sig undir stjórn Ólafar Sverrisdóttur leikkonu sem hefur staðið fyrir námskeiðum í sagnamennsku hjá Borg- arbókasafninu. Sagnakaffið fer fram í kaffihúsinu í Gerðubergi og geta gestir fengið sér kaffi og með því meðan á dagskrá stendur. Sagnakaffi – Sögur af hafinu bláa Morgunblaðið/Kristinn Söngvaskáld Hjá Svavari Knúti eru kærleikurinn og gleðin við völd. Svavar Knútur spjallar og spilar og gestir fá líka að spreyta sig Birta Fróðadóttir arkitekt opnar sýn- ingu á myndaseríunni KÁTT SKINN í verzlun Farmers Market á Hólmaslóð úti á Granda í Reykjavík kl. 18 í dag. KÁTT SKINN samanstendur af teikningum sem hún vann fyrir ljóða- bókina Kátt skinn (og gloría) eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur. Teikning- arnar eiga uppruna sinn í arkitektón- ískum heimi þar sem línur korta og byggingarteikninga hafa tekið stökk- breytingum og umturnast í lífkerfi af öðrum heimi. Sigurbjörg lýsir teiking- unum á eftirfarandi hátt: Á hvítum fleti lifna taugaverur og/ eða töfrastaðir, eftir því hvernig litið er á teikningarnar, en þær eru ein- mitt unnar til jafns undir áhrifum hefðbundinna borgarkorta og organ- ískra anatómíuteikninga. Myndirnar opnast á óvæntan hátt við endurtek- inn lestur – rétt eins og ljóð – þar sem tangi verður hreindýr verður höfn verður gönguleið og læri. Birta Fróðadóttir sýnir myndaseríuna KÁTT SKINN Tangi verður hreindýr verður höfn verður gönguleið og læriPISA-rannsóknin er al-þjóðleg og tekur til hæfni og getu 15 ára nemenda í lestri, stærðfræði, nátt- úrufræði og lausnum á þrautum. Rannsóknin er á vegum OECD og stendur fyr- ir Programme for Int- ernational Student Assess- ment. Hér á landi heldur Námsmatsstofnun utan um framkvæmd rannsóknar- innar. Um langtímarannsókn er að ræða og eins og fram kemur á vef Námsmats- stofnunar hefur hún staðið frá árinu 1998. Sérfræðingar í lestri, stærðfræði og nátt- úrufræði eru á meðal þeirra sem að undirbúningi og framkvæmd koma. Næsta PISA-próf verður lagt fyrir nemendur í þessum mánuði. Árangur mældur PISA-RANNSÓKNIN Alþjóðleg fjármálalæsisvika hófst sl. mánudag og í tengslum við hana verður pop-up-ráðstefna í Háskól- anum í Reykjavík í hádeginu í dag. Erindin eru stutt og hnitmiðuð og gefst áhorfendum tækifæri til að spyrja fyrirlesara um efnið að flutn- ingi loknum. Erindin fjalla m.a um hvort lottó sé góð fjárfesting, hvað beri að gera í greiðsluvanda, um fjár- málavit, um fjármálalæsi og háskóla- menntun, um unga fjárfesta, um tækni og fjármál, um virði peninga, verðlag og verðtryggingu, fjárfest- ingu í fræðslu og um gagnsæi mark- aðarins. Rúsínan í pylsuendanum er erindi Bjarna Benediktssonar fjármála- ráðherra um fjármálalæsi. Ráðstefnan hefst klukkan 12:00 og stendur til 13:30. Samtímis verður henni streymt á RÚV.is. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Nánari upplýsingar á www.fml.is, á fésbókarsíðunni fjarmalavika og á er- lendu síðunni: www.globalmoney- week.org. Alþjóðlega fjármálalæsisvikan Pop-up-ráðstefna í hádeginu með stuttum erindum Morgunblaðið/Kristinn Bjarni Benediktsson Hann ætlar að vera með erindi um fjármálalæsi í dag. Lesa má meira um skóla Hafnarfjarðar á vefnum www.hafnarfjordur.is. Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499 Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006 Nýjar vörur Hlýr og notalegur ullarfatnaður á öll börn á góðu verði www.ullarkistan.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.