Morgunblaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 2015 VERTU VAKANDI! blattafram.is 54% þolenda kynferðislegs ofbeldis verða fyrir misnotkun oftar en einu sinni. Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Buxnaleggings 6.900 kr. Litir: Svartar og rauðar Str. 38–48 Máttur hugsana samkvæmt Gralsboðskapnum Fimmtudaginn 19. mars 2015 – kl. 20:00 Aðgangur ókeypis Norræna húsið, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík Skipuleggjandi: GRAL-NORDEN www.is.gral-norden.net vasey-leuze@gral-norden.net Sími: 842 2552 Fyrirlestur á ensku Christopher Vasey Efnt var til mótmæla á Austurvelli í gær, annað daginn í röð, vegna framgöngu ríkisstjórnarinnar í Evr- ópumálum. Hófst fundurinn kl. 17 en þá stóðu yfir umræður á Alþingi, að beiðni stjórnarandstöðunnar. Að sögn lögreglu er talið að á bilinu 300-400 manns hafi verið á Austurvelli í gær, þegar mest lét, sem er öllu færra en á sunnudaginn. Höfðu um 1.600 manns boðað komu sína á facebooksíðu. Allt fór friðsamlega fram en nokkrir mótmælendur börðu og spörkuðu í öryggisgrindur sem lög- reglan hafði sett upp við Kirkju- stræti, fyrir framan þinghúsið og Dómkirkjuna. Arnar Rúnar Mar- teinsson, aðalvarðstjóri hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu, lét hafa eftir sér á mbl.is að lögreglan hefði haft spurnir af því að aðstandendur mótmælanna í gær ætluðu að mæta með búsáhöld og trommur og „vera með læti“. Þegar til kom urðu lætin engin og allt fór vel fram. Á fjórða hundrað mótmæltu Morgunblaðið/Eggert Austurvöllur Öllu færri mættu á mótmælafund í gær en á sunnudag, eða á milli 300 og 400 manns. Mótmæli Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, fór ásamt fleiri alþingismönnum út á Austurvöll í gær til að ræða við mótmælendur. Ósátt Flestir mættu vel búnir fyrir utan Alþingi, enda fremur kalt í veðri þegar mótmælin fóru fram þegar þingfundur var í gangi síðdegis. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Það eru uppi áform um að skýra enn frekar reglurnar sem snúa að lánveit- ingum með íbúðarhúsnæði sem veð en það eru ekki nein áform uppi, svo ég viti til, um að taka húsnæðis- lán undan neyt- endalánalöggjöf- inni,“ segir Eygló Harðardóttir, fé- lags- og húsnæð- ismálaráðherra. Yngvi Örn Krist- insson, hagfræð- ingur SFF, skrif- aði nýverið í pistli á heimasíðu Samtaka fjármálafyrirtækja að Al- þingi hefði ákveðið að ganga lengra en tilskipun Evrópusambandsins kvæði á um þegar kæmi að neytenda- lánum. Velti hann vöngum yfir því hví sú ákvörðun hefði verið tekin að setja fasteignalán undir lög um neytenda- lán. Sögulega mikil vanskil „Sú ákvörðun var tekin þegar til- skipun ESB um neytendalán var inn- leidd á Alþingi með lögum nr. 33/ 2013. Þá var ákveðið að ganga skrefi lengra en tilskipunin segir til um og fella fasteignalán undir neytenda- lánalögin. Lögin leggja miklar skyld- ur á herðar fjármálafyrirtækjum sem lána til fasteignakaupa. Það er bein- línis lögbrot að hvika frá þeim þegar greiðslumat er gert,“ segir Yngvi Örn meðal annars í pistli sínum. Eygló kveður ákvörðunina um að setja hús- næðislán undir neytendalánatilskip- un Evrópusambandsins hafa verið tekna fyrir mörgum árum síðan. „Þetta var ákvörðun sem Alþingi hafði tekið áður. Þegar lögin voru sett árið 2013 var ákveðið að breyta þessu ekki og þá var meðal annars horft til þess að sögulega hafa vanskil á Ís- landi verið mikil, það hefur náttúr- lega leitt til aukins kostnaðar og vaxtakjörin þar af leiðandi lakari. Með því að gera auknar kröfur ættu fjármálafyrirtækin að vera fær um að bjóða lántakendum sínum upp á betri kjör,“ segir hún. „Það hefur ekki náðst samkomulag innan Evrópusambandsins um það hvernig eigi að meðhöndla húsnæð- islán. Það er fyrst núna sem við erum að fá nýja tilskipun, svokallaða veð- lánatilskipun, sem snýr þá að hús- næðislánum eða lánum sem eru veitt með veði í fasteignum. Nú er unnið að því í fjármálaráðuneytinu að innleiða hana,“ segir Eygló en bætir við að lög um neytendalán heyri engu að síður undir innanríkisráðherra. Unnið er að nýrri veðlánatilskipun  Segir gengið lengra en í tilskipun ESB Eygló Harðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.