Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 24

Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 24
22 HÚNAVAKA Hann settist við hlið hennar. Þau þögðu bæði nokkra stund, svo sagði hún og horfði í augu hans. — Þú ert þreytulegur í kringum augun, Mikki. — Já, ég hef haft það erfitt. Hún sagði ekkert heldur starði út í bláinn og virtist annars hugar. Hann hélt áfram. — Það hefur verið erfitt síðan konan mín fór frá mér. Eg hef orð- ið að vera börnunum bæði faðir og móðir. — Af hverju fór konan þín, hvíslaði Lola. — Ég var slæmur eiginmaður. Ég drakk og svallaði. Að endingu gafst konan mín upp. Hún fór eitthvað burtu, hún hreinlega hvarf. Fljótlega fann ég að ég gat ekki án hennar verið. Viku seinna fór ég að leita að henni, ekki aðallega mín vegna, heldur barnanna. Við áttum sex ára dóttur og þriggja ára son. Þau vantaði móður. Þeirra vegna fór ég til Parísar, að leita konu minnar. Nú er ég hættur að drekka, og hef heitið að drekka ekki framar. — Hefurðu leitað lengi? — 1 mánuð hef ég leitað um París, en nú ætla ég heim að heilsa upp á börnin. — Hefur þér ekki dottið í hug að færa börnunum nýja móður. — Ég hef hugsað það mál, en ekki komizt að niðurstöðu. Vegna peninganna minna, get ég auðveldlega náð mér í konu, en hvort það yrði á heppilegum grundvelli, skal ég ekki fullyrða. Mig vantar ekki konu til að fara með mér í veizlur, eða sýna sig með mér á baðströnd- inni. Mig vantar ekki gleðikonu. Mig vantar konu, til þess að vera móðir barnanna, konu, sem ég jafnframt get elskað. Ég vil ekki kaupa hana. Lestin brunaði áfram, myrkrið færðist yfir. Það var orðið skugg- sýnt í klefanum, og hvorugu datt í hug að kveikja. Mikki talaði hægt og með löngum þögnum. Lola hlustaði á með athygli. Þau voru kom- in þétt saman, og héldust í hendur. Hann fann að það datt tár ofan á hönd hans, þá tók hann utan um axlir hennar og hallaði henni að sér. Ekki gráta Lola, ég er ekki þess virði að grátið sé út af mér. — Ég er svo viðkvæm Mikki. Ég hef samúð með þér, og ég held að það hafi ekki verið þín sök, að konan þín fór frá þér. Ég held að hún hafi ekki verið góð eiginkona, ekki umburðarlynd og tillitssöm. - Jú, Lola, ég átti góða konu, en hún átti slæman mann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Húnavaka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.