Húnavaka - 01.05.1961, Page 31
HUNAVAKA
29
að koma að Ási, þó að menn eigi ekkert erindi, og það eigum við áreið-
anlega eftir að gera.
— En nú er það Húnavakan — og við vildum fá að fræðast nokkuð
af Guðmundi í sambandi við hans stóra fjárbú og gifturíka búrekstur.
,,Búskap,“ svarar Guðmundur. ,,Ég get ekkert sagt ykkur um hann.
Það væri þá frekar um Ungmennasambandið og Húnavökuna.“
Og nú komumst við að því að þessi athafnasami stórbóndi hefur um
langt árabil verið virkur og áhrifaríkur ungmennafélagi og formaður
U.S.A.H. í 7-8 ár.
„Hvernig líst þcr á þessa hugmynd okkar að gefa út blað í sambandi
við Húnavöku?“ spyrjum við.
„Agætlega — mjög vel — “ segir Guðmundur. Þetta svar er okkur
mikið ánægjuefni.
Svo hefur Guðmundur orðið.
„Upphaf Húnavökunnar. Fyrir nær 15 árum var fyrst komið hér á
tveim skemmtidögum, sem kallaðir voru gleðidagar.
En fyrstu tildrög Húnavökunnar voru þau, að nokkrir Húnvetningar
komu saman á Hótel Blönduósi og ræddu um félags- og skemmtimál
byggðarinnar.
Upphaflega átti vakan aðeins að vera 6 daga, en vegna mikillar að-
sóknar varð að fjölga dögum jafnvel upp í 8. Fyrst var til þess ætlast,
að hér væri jöfnum höndum um að ræða fræðslu og skemmtun.
En fræðsluþátturinn hefur því miður að mestu horfið af vettvangi
vökunnar.
A tímabili var mikið af aðfengnum skemmtikröftum, en nú hefur
meira færst í það horf að héraðsbúar sjálfir leggi til skemmtikrafta og
tel ég það mikla og ánægjulega framför.
Oft var aðsókn að vökunni svo mikil að erfitt var að koma inn fólki,
þar sem húsrúm til skemmtanahalds var takmarkað. Mér er sérstaklega
minnisstætt, að einu sinni varð ég hræddur um að fólkið blátt áfram
træðist undir. Þá komu meðal annarra 70 unglingar af Reykjaskóla.“
„Hvert gildi telur þú að Húnavakan eigi að hafa og hafi fyrir Húna-
byggð?“
„Að gefa fólkinu í héraðinu kost á að njóta góðra skemmtana. Sjá
leiksýningar, góðar kvikmyndir, hlusta á fræðsluerindi og fleira. Þannig
má auka samhug og kynningu fólksins í dreifbýlinu og gefa því kost á
hliðstæðu við það, sem fjölbýlið býður upp á.
Þetta er þáttur í viðnámi byggðarinnar gegn fólksflótta.