Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 51
•HÚNAVAKA
49
annan bassa. Söngstjórn annaðist undirritaður. Ég gerði mér það stra.v
ljóst, hvílíkan vanda ég tók mér á hendur með þessu starfi, en ég
taldi Jrá, og tel enn, að einskis megi láta ófreistað til þess að örlítið
félagslíf geti verið starfandi í fámennri sveit.
Kórinn hefur sungið nokkuð oft opinberlega, t. d. hefur hann sung-
ið fjórum sinnum á Blönduósi, tvisvar á Hvammstanga og einu sinni á
Skagaströnd. Auk þess á árshátíðum kórsins, sem haldnar hafa verið
á Blönduósi, en það er skemmtun, sem ætlað er að verði fastur iiður
í starfsemi kórsins. Þangað býður hver starfandi kórfélagi þremur gest-
um á kostnað kórfélagsins, auk gesta, sem kórinn býður sameiginlega.
Söngæfingar kórsins hafa farið fram í barnaskólanum á Blönduósi
í vetur og fyrravetur. Þökkum við skólanefnd barnaskólans góða fyrir-
greiðslu og sérstaklega þökkum við skólastjóranum, Þorsteini Matthías-
syni, alla hans fyrirhöfn í sambandi við æfingar okkar.
Ljúft og skylt er mér að láta þess getið hér, að óhugsandi er, að
kórinn hefði náð þeim árangri í starfi sínu sem þó er, hefði hann ekki
notið ágætrar tilsagnar Guðmanns Hjálmarssonar á Blönduósi, má
segja að hann hafi verið þjálfari kórsins frá byrjun. Færi ég honum
beztu þakkir fyrir alla hans góðu hjálp mér til handa.
í vetur hafa verið 12 starfandi félagar í kórnum. Ollum félögum
mínunr þakka ég gott samstarf á liðnum árum og er þess fullviss, að
karlakórinn „Vökumenn11 á eftir að starfa lengi enn, og þroska félaga
sína á margan hátt um leið og þeir vinna saman að einum göfugasta
félagsskap, sem til er, söngfélagsskapnum.
Kristófer Kristjánsson.
„Vökumenn“ syngja á Húnavökunni á annan í páskum kl. 8.
Kvenfélagið „Vaka“
Kvenfélagið „Vaka“ er nú orðið 33 ára. Heimili Jress og varnar-
■þing er á Blönduósi. Félagið var stofnað 8. jan. 1928, „með 11 kon-
um, búsettum á Blönduósi“ eins og komist er að orði í fyrstu fundar-
gerð félagsins.
Það leynir sér ekki, þegar blaðað er í bókum „Vöku“ að konurnar
hafa starfað með ósérplægni að áhugamálum sínum, og ekki er að efa
að félagið býr að því enn hve vel hefur verið vandað til þess í byrjun,
enda bera fyrstu fundargerðirnar þess ljósan vott, að hér voru að verki