Húnavaka - 01.05.1961, Qupperneq 52
50
HÚNAVAKA
konur, er sáu, að sameinaðar gætu þær ýmsu áorkað sínu byggðarlagi
til heilla.
Ogerningur er að telja upp allt það, sem félagið hefur lagt hönd
að, en mannúðar- og líknarmál verða þar vissulegt ofarlega á blaði.
Lengi vel var það fastur liður í starfseminni að senda fátækum peninga
til jólaglaðnings, og ekki ósjaldan hefur sjúkum verið sendur nokkur
styrkur. Félagið hefur hlynnt að kirkjunni á ýmsan hátt og það hefur
staðið fyrir heimilisiðnaðarsýningum, námskeiðum og fleira.
Stærsta átak „Vöku“ til þessa er þó framlag hennar til Héraðshælis
A-Hún á Blönduósi. I mörg ár var unnið að því að safna fé, svo að
„Vaka“ gæti lagt fram sinn skerf til þessarar þráðu og þörfu stofnunar.
Félag okkar hefur mætt miklum skilningi og það hefur orðið aðnjótandi
margháttaðrar aðstoðar og stuðnings hjá fjölda fólks hér í þorpinu og
jafnvel utan þess. Mörg undanfarin ár hefur Snorri Arnfinnsson, hótel-
stjóri, lánað félaginu húsrúm til starfsemi sinnar, endurgjaldslaust. Verð-
ur sú aðstoð seint fullþökkuð.
Nú er unnið að því af alefli að safna fé til byggingar félagsheimilis á
Blönduósi. Hefur ,,Vaka“ skuldbundið sig til að greiða 3% af byggingar-
kostnaði þess.
I núverandi stjóm ,,Vöku“ eru þessar konur:
Dómhildur Jóhannsdóttir, formaður; Þuríður Sæmundsen, gjaldkeri;
Solveig Benediktsdóttir, ritari.
Engar konur hafa setið eins lengi í stjóm „Vöku“ og Dómhildur
Jóhannsdóttir og Þuríður Sæmundsen.
Hefur Dómhildur verið formaður í 22 ár samtals, en Þuríður ýmist
verið gjaldkeri eða formaður félagsins síðan árið 1931. Lætur að líkum
að félag okkar á þessum tveimur konum mikið að þakka. í „Vöku“ eru
nú 55 konur, þar af 6 heiðursfélagar.
Blönduósi, 31. marz.
Dómhildur Jóhannsdóttir, Solveig Benediktsdóttir
Kvenfélagið „Vaka“ hefur dagskrá á Húnavökunni á fimmtudaginn
kl. 5.
Lionsklúbbur Blönduóss.
1 maímánuði, árið 1959, komu nokkrir Blönduósingar saman á Hótel
Blönduósi, ásamt umdæmisstjóra Lionsklúbba á íslandi, Þór Guðjóns-
syni. Tilgangur þessa fundar var sá að stofna einn slíkan klúbb á Blöndu-