Húnavaka - 01.05.1961, Page 56
54
HÚNAVAKA
Skátafélag Blönduóss hefur dagskrá á Húnavökunni á þriðjudag kl. 5.
A miðvikudag kl. 5 hefur Skátafélag Skagastrandar dagskrá á Húna-
vökunni.
Barna- og unglingaskólinn á Blönduósi.
Barna- og unglingaskólinn á Blönduósi starfaði í fyrsta skipti skóla-
árið 1959-60 samkvæmt núgildandi fræðslulögum um skólaskyldu ung-
linga á aldrinum frá 13-15 ára.
Það skólaár voru í unglingadeild skólans 23 nemendur. Nú í ár eru 36
nemendur i unglingaskólanum.
A næsta ári er í ráði að skólinn starfi sem miðskóli í þrem deildum.
Unglingaskólinn hefur fengið til umráða eina kvölddagskrá á Húna-
vökunni. Það sem þar er framsett er að nokkru árangur af kennslu í
skólanum, en þó að mestu tómstundastarf nemenda.
5. Á. J.
Frá U.S.A.H.
44. héraðsþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga, var hald-
ið á Blönduósi 19. marz sl.
Voru þar að vanda, rædd mörg mál og ýmsar ályktanir gerðar.
Akveðið var að minnast 50 ára afmælis sambandsins, sem verður á
næsta ári, m. a. með því að rita sögu þess.
Snorra Arnfinnssyni fráfarandi formanni, var þakkað margra ára
fórnfúst starf í þágu U.S.A.H., og var hann gerður að heiðursfélaga
sambandsins.
Núverandi stjórn skipa:
Ingvar Jónsson, Skagaströnd, formaður; Stefán Á. Jónsson, Kagaðar-
hóli, ritari; Pétur Sigurðsson, Skeggsstöðum, gjaldkeri.
5. Á. J.
Hér að framan hefur í stuttu máli verið skýrt frá nokkrum þáttum í
starfsemi þeirra félaga og félagasamtaka, sem koma fram á þessari Húna-
vöku með efni til skemmtunar. Vegna takmarkaðrar stærðar blaðsins
var ekki hægt að hafa þá frásögn ýtarlegri.