Húnavaka - 01.05.1961, Blaðsíða 62
60
HÚNAVAKA
irnar, því meiri möguleikar bl'asa þar við sjónum? Þeim mun betur
nýtur ræktunin sín.
Það er staðreynd að sennilega á engin þjóð í heimi annað eins
olnbogarúm framundan sem við Islendingar. Landið ykkar á svo mikla
möguleika. Lítið á ykkar eigin héruð. Þúsundir hektara bíða þess að
þið notið kunnáttu og tækni nútímans til þess að margfalda ræktunar-
löndin. Margfalda framleiðsluna og gera hana fjölþættari.
Húnavatnssýsla er nefnilega sérstaklega gott hérað. Hún stendur jafn-
fætis beztu héruðum landsins um ræktunarskilyrði, en hefur eitt fram
yfir þau flest, víðlend og kjarngóð beitilönd, sem gera mögulega stór-
kostlega búfjárframleiðslu í héraðinu.
I sambandi við þessi víðlendu gróðurlönd er nátengt eitt af sérein-
kennum Húnavatnssýslu, hrossaeignin. Þið hafið sennilega fæst hugs-
að út í það, að í sambandi við hrossin eigið þið mikla möguleika.
Möguleika, sem alltof lítið hafa verið notaðir til þessa.
Berið saman aðstöðu ykkar til að eiga hest ykkur til nota og yndis,
og aðstöðu þeirra bæjarbúa, sem sjá hvorki í fé né fyrirhöfn, til þess
að njóta þess unaðar, sem góðhesturinn getur veitt.
Bæjarbúinn var á undan með að tileinka sér vélvæðinguna, af eðli-
legum ástæðum, og hann er einnig á undan með að finna sig í að
hafna henni, þegar við á, og leggja á góðhestinn. — Þið skuluð lofa
honum að njóta þess heiðurs. — En ungu Húnvetningar, leiðið hug-
ann að þeim glæsileik og gleðigjafa, sem væri því samfara ef þið al-
mennt ættuð góðan reiðhest og notuðuð hann, bæði sumar og vetur.
Þróttmikið æskufólk og glæsilegir gæðingar eiga svo einkar vel saman.
Hugsið ykkur, á sólbjörtum sumardegi eða svelli lagðri grund. Því
þarf ekki að lýsa. Myndin er björt og heillandi. Vissulega væri gaman
að framkalla hana. Eins og þið vitið, þá er hér í héraðinu svo til ný-
stofnað hestamannafélag. Tilgangur þess er að láta myndina sem ég
gat um verða að veruleika. Það er á valdi ykkar ungu Húnvetningar
að það gangi fljótt fyrir sig. Biðjið nú foreldra ykkar að gefa ykkur
folald eða tryppi og temjið það síðan og notið ykkur til yndis, ekki
aðeins sumarið, heldur veturinn líka. Ég segi allt árið, því nú er sem
betur fer af sú tíð að það þurfi að telja stráin ofan í búpeninginn eins
og áður var, meðan óræktin og handverkfærin takmörkuðu allan hey-
afla. En jafnvel á þeim tímum var i augum hestamannsins ekkert of
gott fyrir góðhestinn.
Nú, á tímum ræktunar og vélvæðingar, munar húnvetnska bændur