Húnavaka - 01.05.1961, Page 64
77/ lesenda
Við, sem séð höfum um útgáfu þessa blaðs, teljum nauðsynlegt að
afsaka við ykkur þau mistök, sem á kunna að hafa orðið með frágang
þess.
Verk þetta er unnið í tómstundum og þær eru stundum ekki of
margar.
Sérstaklega er það prófarkalesturinn, sem orðið hefur að sitja á hak-
anum, og má því búast við að nokkrar misritanir kunni að vera. Á
þessu biðjum við höfunda velvirðingar.
Þrátt fyrir takmarkaðan tíma og ýmsa örðugleika, hefur það verið
okkur ánægjuefni að vinna að þessu verki, sem við vonum að veiði
vísir að öðru fullkomnara.
Við erum öllum þakklátir, sem leð hafa þessu mali lið.
En athugið, hér er á boðstólum lesefni eingöngu framsett af Hún-
vetningum.
Mun það ekki þess vert að gefa því gaum?
Við teljum að hér hafi okkur tekist að fá dregið fram í dagsljósið
ýmislegt það, sem hefur bókmenntalegt gildi.
Þ. M.