Húnavaka - 01.05.1966, Blaðsíða 98
9G
HÚNAVAKA
miklu og fjölhæfu starfskröftum. Það hefur sjálfsagt ekki verið
nein tilviljun, að Jregar U. M. F. Svínavatnshrepps var stofnað 1928
var stofnfundurinn einmitt haldinn í Stóradal.
Arið 1942 var Jón í Stóradal kosinn formaður Ungmennasam-
bands Austur-Húnavatnssýslu og gegndi því starfi til ársins 1945.
Ungmennasambandið var endurreist 1938 og voru Jrví stjórnarár
hans mótunarár starfseminnar og fórst honum það mjög vel úr
hendi.
Árið 1944 gekkst Jón fyrir hönd stjórnar U. S. A. H. fyrir al-
mennri fjársöfnnn á sambandssvæðinu, er varið skyldi til stofnunar
héraðsmiðstöðvar íþrótta- og menningarmála að Reykjum á Reykja-
braut. Þessi tilraun Ungmennasambandsins var hin merkasta og
sýnir vel framsýni Jóns og stjórnarmanna hans. Þótt ekki safnaðist
mikið fé á nútíma mælikvarða, hefur verið furðu hljótt um þessa
merku hugmynd. Jón heitinn var virkur starfsmaður U. S. A. H.
löngu eftir sína formannstíð. Hann var alltaf boðinn og búinn að
greiða fyrir mönnum og málefnum. Þegar U. S. A. H. gekkst fyrir
kaupum á tækjum til upptöku á röddum og frásögnum margra
eldri Húnvetninga, var leitað til Jóns og hann tók málið í sínar
hendur og var búinn að safna miklu safni slíkra fræða, sem hefði
orðið ómetanlegt verðmæti innan örfárra ára. En svo óheppilega
vildi til að allt þetta safn glataðist, þegar bærinn í Stóradal brann
og slíkt er ekki hægt að endurnýja.
16. september 1944 kvæntist Jón, Guðfinnu Einarsdóttur, hinni
ágætustu konu. Eignuðust þau fimm dætur, allar rnjög efnilegar, og
heldur frú Guðfinna áfram búskap í Stóradal, með dætrum sínum.
Ungmennafélagshreyfingin mun eiga von í góðum liðsauka með
Jreim hóp. S.l. vor voru þrjár af þeim systrum keppendur á hér-
aðsmóti U. S. A. H. og ein þeirra, Þórey, var í íþróttaliði sambands-
ins á landsmóti U. M. F. í. s.l. sumar.
Sérhver félagsskapur á mikið að þakka góðum forystumönnum.
— Ungmennasamband Austur-Húnavatnssýslu stendur í mikilli
þakkarskuld við Jón í Stóradal — það var mikill skaði að missa
slíkan mann langt fyrir aldur fram.
Eg flyt konu hans og dætrum, mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur, um leið og ég þakka Jóni heitnum fyrir okkar ágætu persónu-
legu kynni.
Kristófer Kristjdnsson.