Húnavaka - 01.05.1966, Blaðsíða 106
104
HÚNAVAKA
í 8 ár og annaðist hrossasýningar á vegum Búnaðarfélags íslands um
skeið, enda mikill hestamaður. Hann hafði verið í Hólaskóla og
lokið þaðan góðu prófi iiðlega tvítugur að aldri. Hann var sérlega
nærfærinn við skepnur og mikið leitað til iians á því sviði.
Með bústýru sinni, Guðrúnu Jóhannesdóttur, eignaðist hann 6
börn. Þau eru: Sigurður, múrari á Siglufirði, Jóhannes, bóndi á
Ægissíðu, Hólmfríður, húsfrú á Efri-Þverá, Jósef, bóndi á Hvoli,
Vigfús, bóndi á Skinnastöðum og Þorgeir, bílstjóri í Reykjavík.
Hermann Þórarinsson, bankaútibússtjóri á Blönduósi. Hans er
minnst annars staðar í ritinu.
Jónas B. Bjarnason, fyrrv. bóndi í Litladal. Hans er minnzt ann-
ars staðar í ritinu.
Þórunn Stefanía Hjálmarsdóttir á Skinnastöðunr. Hún var fædd
á Skeggstöðum í Svartárdal 13. marz 1893, en lézt á Héraðshælinu
á Blönduósi 18. júní. Foreldrar hennar voru: Hjálmar Sigurðsson
söðlasmiður, af hinni kunnu Skeggstaðaætt, og Sigurbjörg Gísladótt-
ir frá Kóngsgarði í Svartárdal.
Þórunn lærði fatasaum á Sauðárkróki og stundaði hann öðru
hverju og þótti hún dugleg og vel að sér í þessari iðn.
Þórunn giftist Árna Ólafssyni frá Blönduósi, nú rithöfundi í
Reykjavík, og bjuggu þau röskan áratug á Kárastöðum í Svínavatns-
hreppi. Þau eignuðust tvö bc»rn, Lucindu, húsfrú á Skinnastöðum
og Sigtrygg, yfirlögregluþjón í Keflavík.
Árið 1934 slitu þau hjúskap og fluttist Þórunn þá fyrst til Akur-
eyrar, þar sem hún var nokkur ár og síðan til Reykjavíkur. Hélt hún
þar sitt eigið heimili í 26 ár. Síðustu tvö árin var hún í skjóli barna
sinna, fyrst í Keflavík og síðan á Skinnastöðum.
Þorvildur Einarsdóttir, lnisfrú á Blönduósi. Hún var fædd á
Hjaltabakka 12. nóv. 1892, en lézt á Héraðshælinu 28. júlí s.l. For-
eldrar hennar voru Einar Stefánson og Björg Jóhannsdóttir, mestu
greindar- og merkishjón, bæði ættuð héðan úr sýslu. Hún ólst upp
með foreldrum sínum og var með þeim lengst af meðan þau lifðu.
Hún lærði fatasaum og stundaði þá iðn alltaf öðru liverju jafnframt
heimilisstörfum. Átta ár átti hún heima á Akureyri með foreldrum
sínum, en annars lengst af á Blönduósi. Hún var hamhleypa til
verka og prýðilega lagin.
Árið 1947 giftist hún Ágúst Andréssyni, smið á Blönduósi. Þau
eignuðust ekki börn, en systurson sinn, Einar Evensen húsasmíða-