Læknablaðið - 01.12.2015, Síða 16
572 LÆKNAblaðið 2015/101
R A N N S Ó K N
kDa) peptíðkeðju23 og eru rafdráttarróf kollagens I og kollagens II
í samræmi við það. Rafdráttur á roði sýnir dauft band í kringum
stærðarbilið 115-130 kDa sem talið er að svari til α1 og α2 undir-
eininga kollagens I (n=3) (mynd 2).
Græðlingurinn hafði ekki marktæk áhrif á seytingu bólguvaka
Engin marktæk breyting varð á seytingu IL-10, IL-12p40, IL-6 eða
TNF-α milli eftirtalinna para af hópum: einkjörnunga sem fengu
roð eða enga meðferð (mynd 3a), einkjörnunga sem fengu roð
ásamt örvun með LPS eða enga meðferð (mynd 3b), stórátfrumna
sem fengu roð ásamt örvun með LPS eða enga meðferð (mynd
3c). Affrumað roð hafði auk þess engin marktæk áhrif á lífvæn-
leika stórátfrumna miðað við niðurstöður XTT-prófs (sjá viðauka
á heimasíðu blaðsins).
Græðlingurinn hafði marktæk áhrif á æðamyndun
Marktæk aukning var á fjölda æðagreina á æða-og þvagbelgs-
himnum kjúklingafóstra sem fengu roð (p≤0,01) (mynd 4a-b) og
einnig á flatarmáli æða á æða- og þvagbelgshimnunni sem var í
snertingu við roð (p≤0,01) (mynd 4a og 5c).
Umræða
Markmið verkefnisins var að athuga hvort affrumað roð er öruggt
fyrir klíníska notkun og athuga nánar eðliseiginleika roðsins sem
eru taldir skipta máli fyrir vefjaviðgerðir. Bygging og próteinsam-
setning roðsins var metin með smásjárskoðunum og próteinraf-
drætti. Áhrif roðsins á bólgusvar frumna var athuguð með in vitro
tilraunum og áhrif á æðamyndun með in vivo líkani.
Smásjárskoðun. Græðlingurinn var skoðaður með þremur
mismunandi myndgreiningaraðferðum (myndir 1a-d) og gefa þær
allar til kynna að engar frumur sé að finna í roðinu. Þessar myndir
staðfesta að affrumunarfasi framleiðslunnar á roðinu hefur tilætl-
aða verkan. Í vefjalitun binst eosín próteinunum ósértækt (mynd
1c). Á myndum af roðinu með confocal-smásjá sjást bandvefs-
þræðir sem raðast hornrétt hverjir á aðra. Roðsýnið var örvað
með 488 nm ljósi í confocal-smásjánni og gaf við það frá sér ljós
á bilinu 505-525 nm (mynd 1d). Millifrumuefni gefur frá sér sjálf-
virka flúrljómun sem kemur aðallega frá elastíni og kollageni.24 Á
rafeindasmásjármyndunum má sjá hólfaskiptinguna í efninu og
smásæja byggingu þess (mynd 1a-b). Þræðirnir í roðinu minna á
byggingu kollagenþráða (mynd 1b og 1d). Hólfaskiptingin vakti
vonir um að roðið gæti myndað hagstæðan grundvöll fyrir inn-
vöxt og bólfestu fyrir frumur líkamans (mynd 1a-c).
Próteinrafdráttur. Rafdráttarrófi roðsins svipar til rafdráttar-
rófs kollagens I sem er algengasta gerð kollagens í húð manna.25 Ef
roðið innihéldi aðallega kollagen II væri þess að vænta að sjá band
við stærðarbilið 130 kDa þar sem kollagen II er samsett úr þremur
α1 peptíðkeðjum.26 Önnur ástæða þess að kollagen II er ekki talið
vera til staðar í roðinu er að anti-kollagen II mótefni mælast ekki í
sermi músa sem voru bólusettar með uppleystu roði.27
Vefjasamræmanleiki. Niðurstöður prófana á eitrunaráhrifum
roðsins sem framkvæmdar voru af vottuðum og þar til bærum
rannsóknarstofum sýna að roðið er skaðlaust (tafla I). Kerfi þeirra
stofnanna sem veita markaðsleyfi fyrir lækningavörur byggja á
sérstökum ISO-stöðlum um vefjasamræmanleika og skilgreina
þeir aðferðir sem sýna með óyggjandi hætti fram á skaðleysi. Í
töflu I eru ýmsum vefjasamrýmanleikaprófum lýst, allt frá ein-
földum prófunum þar sem efnið er leyst upp og penslað á húð
dýra, í rannsóknir á litningum og músamerg. Niðurstaðan er sú
að affrumað roð er skaðlaust. Þessi grein fjallar um notkun roðsins
á rofna húð en til þess að uppfylla reglugerðarákvæði um notkun
í ígræðslur þarf að framkvæma fleiri vefjasamrýmanleikapróf.
Meðal annars svokallað subchronic toxicity test próf sem sýndi ekki
fram á eitrunaráhrif (tafla I).
Bólguvakapróf. Óeðlilega hár styrkur bólguboðefna er meðal
þess sem einkennir þrálátt sáraástand.28 Það er því mikilvægt að
lækningavörur ætlaðar til meðhöndlunar á þrálátum sárum örvi
ekki bólgusvar. Engin marktæk áhrif á bólgusvar greindust þegar
roðið var sett í tæri við kanínuhúð (tafla I) og niðurstöður Elísu-
prófs á seytingu frumuboða bendir til þess að roðið hafi ekki telj-
andi áhrif á bólgusvar í einkjörnungum né stórátfrumum (mynd
3a-c). Vægt bólgusvar sem sást þegar roðið var grætt við vöðva
kanína (tafla I) á fyrstu vikum ígræðslu er eðlilegt þegar um fram-
andi hlut er að ræða og í samræmi við það sem áður hefur verið
lýst við ígræðslu hliðstæðra stoðefna í vöðva.29
Æðamyndun. Nýmyndun æða er nauðsynleg til að byggja upp
nýjan vef í sárum30 og því er æskilegt að græðlingur stuðli að eða
hindri ekki nýmyndun æða. Roðið hafði marktæk örvandi áhrif á
æðamyndun í hænufóstri (mynd 4a-c). Óljóst er hvort þessi eigin-
leiki roðsins til að örva æðamyndun sé tilkominn vegna æðavaxt-
arþátta eða fólginn í byggingu roðsins. Mögulegt er að þessi virkni
sé ástæða þess að sár meðhöndluð með affrumuðu þorskroði
lokast fyrr en sár meðhöndluð með affrumuðum svínaþörmum
eins og áður var nefnt.
Lokaorð
Affrumaða þorskroðið gæti búið yfir fleiri ókönnuðum eigin-
leikum sem stuðla að sáragróanda og þá sérstaklega eiginleikum
sem tengjast fituinnihaldi efnisins. Vegna sjúkdómasmithættu31
þarf að nota harkalegri aðferðir til að affruma samkeppnisvörur
úr spendýravef, sem veldur því að fiturnar eru fjarlægðar úr vefn-
um.32 Þekkt er að þurrvigt roðs úr Atlantshafsþorskinum saman-
stendur aðallega af próteinum og fitu.33 Fituinnihald hins affrum-
aða roðs hefur verið staðfest og er unnið að birtingu þeirra gagna.
Omega-3 fitusýrur eru taldar geta temprað óeðlilegt bólguástand
í þrálátum sárum34 og gætu því verið mikilvægar fyrir eiginleika
roðsins til að örva sáragróanda.
Á heildina litið sýna niðurstöðurnar sem hér hafa verið til um-
fjöllunar að affrumað roð er skaðlaust, vel vefjasamrýmanlegt og
býr yfir eiginleikum sem styðja vefjaviðgerð. Framtíðarrannsóknir
á roðinu felast meðal annars í því að efnagreina hið affrumaða
roð, og þá aðallega fituinnihald. Einnig standa yfir samanburðar-
rannsóknir við samkeppnisvörur á markaði sem allar eru unnar
úr spendýrum. Ýmis rannsóknarverkefni á affrumuðu roði eru nú
í bígerð, bæði grunn- og klínískar rannsóknir. Þessar rannsóknir
munu varpa betra ljósi á eiginleika roðsins fyrir enduruppbygg-
ingu líkamsvefja.