Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.2015, Page 45

Læknablaðið - 01.12.2015, Page 45
LÆKNAblaðið 2015/101 601 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R langar vaktir og miklar vökur talin eins konar manndómsmerki hvers læknis en það hefur sem betur fer breyst á undan- förnum árum. Yngra fólkið er duglegra að setja mörk en þeir eldri voru, fólk vill geta átt annað líf utan starfsins, sinnt fjölskyldu og áhugamálum, sem jafnframt stuðlar að því að halda jafnvægi og góðri heilsu.” Við erlenda læknaskóla hefur gefið góða raun að setja sem skyldu að 10-15% námstíma læknanemans sé varið til að læra eitthvað allt annað en það sem tengist læknisfræðinni. „Þetta er hugsað til að læknirinn eigi sér önnur hugðarefni og geti kúplað sig algjörlega frá starfinu þegar svo ber undir.“ Við Heilsustofnunina í Hveragerði hefur um nokkurra ára skeið verið boðið upp á sérstakt úrræði fyrir lækna. „Þeir geta komið án þess að vera skráðir inn í kerfið og býðst sérstakt húsnæði utan stofnunarinnar en geta nýtt sér alla þjónustu og meðferð sem stofnunin býður uppá. Undanfarin misseri hafa verið hér einn til fjórir læknar á hverjum tíma og verið mjög ánægðir. Það er reyndar mis- jafnt hvað þeir vilja vera útaf fyrir sig en það er í boði fyrir þá sem það vilja. Þetta er í rauninni eini möguleikinn sem býðst hérlendis fyrir lækna að njóta hvíldar og andlegrar og líkamlegrar endurhæfingar algjörlega nafnlaust innan heilbrigðis- kerfisins okkar. Það er viss lækning fólgin í því að fá viðurkennt að vera veikur af álagi. Að slík veikindi séu ekki merki um skort á hörku eða séu persónulegur galli heldur til marks um að viðkomandi sé ein- faldlega mannlegur.“ Hjalti Már björnsson bráðalæknir á Landspítala Ísland var fyrst allra Norðurlandanna til að viðurkenna sérgreinina bráðalækningar árið 1992. Í Svíþjóð hlaut sérgreinin fulla viðurkenningu á þessu ári og í Finn- landi árið 2013, í Noregi og Danmörku er það enn á umræðustigi. Á Landspítala hefur því verið unnið lengur eftir hug- myndafræði bráðalækninga en á öðrum sjúkrahúsum á Norðurlöndum. Bráðadeild Landspítala hefur nú á að skipa öflugum hópi sérmenntaðra bráðalækna og er orðin leiðandi á mörgum sviðum í þróun fagsins á Norðurlöndum. Dagana 25. og 26. september síðast- liðinn var í fyrsta skipti haldið námskeið undir heitinu EM Iceland í samvinnu bráðadeildar og Félags bráðalækna. Mark- mið námskeiðsins var ekki að kenna bráðalækningar, heldur að deila þeirri reynslu sem fengist hefur við að innleiða hugmyndafræði bráðalækninga hér á landi með þeim læknum í nágrannalönd- um sem nú standa í raun í sömu sporum og Íslendingar fyrir 10-20 árum síðan. Fyrir utan lækna og hjúkrunarfræðinga af bráðadeild tóku bráðalæknar frá Ástralíu, Skotlandi og Bandaríkjunum einnig þátt í kennslu á námskeiðinu. Námskeiðið sóttu 10 norrænir læknar sem eru allir að stíga fyrstu skrefin við að innleiða sérgreinina í sínu heimalandi. Frekari upplýsingar um námskeiðið eru á http://brada.is/emi/. Á myndinni eru Norðmennirnir Florentin Moser, Gudrun Hatlen og Lars Petter Björnsen, Finnarnir Susanna Wilén, Terhi Savolainen og Johanna Tuukkanen, Jostein Dale og Gayle Galletta frá Noregi, David Caesar Skotlandi og Hans Ruben Tenggren Noregi. – Mynd: Hjalti Már. Norrænir læknar kynna sér bráðalækningar á Landspítala

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.