Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.12.2015, Qupperneq 50

Læknablaðið - 01.12.2015, Qupperneq 50
606 LÆKNAblaðið 2015/101 Í síðasta hluta læknisfræði var okkur gert að lesa ameríska bók í handlæknisfræði er var kennd við Christopher nokkurn. Ekki laðaðist ég að þeirri bók. Keypti hana að vísu og blaðaði eitthvað í henni fyrir tíma, en las aðallega breska bók, A Short Practice of Surgery eftir Bailey og Love. Hamilton Bailey var í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Hann skrifaði einnig Physical Signs in Clinical Surgery sem var ómetanleg varðandi klíník. Það sem eink- um olli ímigust mínum á Christopher held ég að hafi verið beinbrotakafli bókarinnar. Í inngangi hans stóð semsé að óþarft væri að lýsa einkennum beinbrota þar eð tæp- ast væri til það krummaskuð að ekki væri einfalt að fá röntgenmynd. Þó renndi ég yfir kaflann eins og síðar kemur í ljós. Beinbrotakaflann í bók Bailey og Love skrifaði John Charnley sem mun fyrstur hafa hannað nothæfan gervilið í mjöðm. Hann lýsti einkennum bein- brots á einfaldan hátt: „Pain, deformity and loss of function“, með áherslu á hið síðasttalda og þótti mér það heldur gagn- legra en snautleg lýsing Cristophers. Allur kafli Charnleys var svo eftir því, skýr og aðgengilegur. Ég lauk kandídatsprófi í febrúarbyrjun 1961 og var kandídat á handlæknisdeild Landspítala frá febrúar til ágústloka það ár. Um sumarið kom til afleysingastarfa á deildinni kírúrg sem hafði verið um nokkurt árabil við framhaldsnám og störf í Svíþjóð, Lundi eða Gautaborg minnir mig. Fyrsta daginn hans á deildinni skyldi hann aðstoða prófessor Snorra Hallgríms- son við kviðarholsaðgerð og var ég einnig með til að halda í haka. Strax er við, ég og sá nýi, vorum að þvo okkur þótti mér maðurinn óvenju viðbragðssnöggur. Í þann tíð þvoðum við okkur með litlum handsápum. Skyndilega sá ég að sápan skrapp eldsnöggt upp úr hendi hans upp í um höfuðhæð. Hann brá svo snöggt við að hann greip hana á uppleiðinni. Og jafn- snöggur var hann að klippa og hnýta fyrir Snorra í aðgerðinni og fannst mér Snorra jafnvel þykja nóg um. Snorra hefur sýnilega litist svo á að óhætt væri að láta nýliðann operera á eigin spýtur því daginn eftir var honum falið að taka gallblöðru. Ég var honum til aðstoðar og reyndist maðurinn ekki handseinni við aðgerðina heldur en við að grípa sápuna. Ég man að Snorri gekk inn og horfði um stund yfir öxl læknisins og spurði síðan: „Hvað hefur þú tekið margar gall- blöðrur?“ Læknirinn leit eldsnöggt við og Ö l D U n G a D E i l D Stjórn Öldungadeildar Magnús B. Einarson formaður, Þórarinn Sveinsson ritari, Hörður Alfreðsson gjaldkeri, Guðrún Agnarsdóttir, Kristrún Benediktsdóttir. Öldungaráð Bergþóra Ragnarsdóttir, Jón Hilmar Alfreðsson, Sigurður E. Þorvaldsson, Snorri Ingimarsson, Tryggvi Ásmundsson. Umsjón síðu Páll Ásmundsson Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li Lengi man til lítilla stunda Vigfús Magnússon fæddist í Reykjavík 3. júní 1933. Eftir stúdentspróf frá MR vorið 1953 hóf hann nám í læknadeild HÍ og varð cand. med. í febrúar 1961. Hann fór til Víkur í Mýrdal haustið 1962 til að ljúka héraðsskyldu en ílentist þar sem héraðs- læknir í nærfellt 20 ár. Eftir Víkurdvölina var hann um skeið heilsugæslulæknir á Seltjarnarnesi en fór síðan í sérnám í geðlækningum við geðdeild Landspítalans og fékk sérfræðingsleyfi í geðlækningum 1989. Hann starfaði á áfengisskor geð- deildar Landspítala uns hann hóf störf hjá Tryggingastofnun 1991. Hann var skipaður aðstoðartryggingayfirlæknir 1995 og sinnti því starfi þar til hann hætti fyrir aldurs sakir. Vigfús var ötull ferðamaður og naut þess að ferðast um óbyggðir landsins. Hann varð bráðkvaddur á leið í Nýjadal 21. september síðastliðinn. Vigfús var virkur félagi Öldungadeildar LÍ og er hans saknað í okkar hópi. Svo vildi til að birting pistils hans í þessu tölublaði var ákveðin skömmu fyrir fráfall hans. P.Á. Félagi kveður Lj ós m . S . E . R ov at i Vigfús Magnússon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.