Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 62

Læknablaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 62
618 LÆKNAblaðið 2015/101 Hjartalækningar eru stærsta sérgreinin innan lyflækninga en um 35-40% sjúk- linga sem leita á lyflækningadeildir sjúkrahúsa gera það vegna sjúkdóma í hjarta- og æðakerfi. Að auki eru hjarta- og æðasjúkdómar algengasta dánarorsökin á Íslandi, um 40% þeirra sem deyja á hverju ári, látast úr þessum sjúkdómum. Hjarta- lækningar eru því stór sérgrein. Starfandi hjartalæknar á landinu eru 37 en að auki starfa hérlendis 5 hjartaskurðlæknar og 5 barnahjartalæknar. Þá eru sennilega á þriðja tug íslenskra hjartalækna starfandi erlendis, sumir í sérnámi, aðrir hafa sest þar að og nokkur fjöldi hjartalækna flutti utan á ný eftir efnahagshrunið. Hjartasjúkdómafélag íslenskra lækna var stofnað árið 1968. Í félaginu eru allir hjartalæknar, þar með taldir hjartalyf- læknar, hjartaskurðlæknar og barnahjarta- læknar. Auk þess hafa aukaaðild ýmsir aðrir læknar sem sinna hjartasjúklingum mikið, eins og svæfingalæknar, inn- kirtlalæknar og heimilislæknar. Tilgangur Hjartasjúkdómafélagsins er margþættur og kraftur í starfsemi þess. Í fyrsta lagi er tilgangur félagsins faglegur og vísindalegur, það er að stuðla að viðhaldsmenntun og fræðslu lækna sem sinna hjartasjúklingum. Félagið heldur 4-5 fræðslufundi á ári og fær oft erlenda fyrirlesara. Í annan stað er félagið hagsmunafélag hjartalækna í málum sem á þeim brenna. Í þriðja lagi er félagið yfirvöldum til ráðgjafar í málum sem varða hjartalækningar, til dæmis með umsögnum um lagafrumvörp. Í fjórða lagi stuðlar það að forvörnum í hjarta og æða- sjúkdómum. Félagið hefur til dæmis unnið að tóbaksvörnum og baráttu gegn trans- fitu í matvælum á nýliðnum árum. Hið fimmta er að stuðla að notkun klínískra leiðbeininga innan hjartalækninga. Hefur þá mest verið stuðst við leiðbeiningar Evr- ópsku hjartalæknasamtakanna, European Society of Cardiology (ESC), enda kemur félagið að gerð þeirra árlega. Í sjötta lagi sinnir félagið alþjóðlegum samskiptum, ber þar hæst norrænt samstarf. Norrænu og baltnesku hjartalæknafélögin halda al- þjóðlegt vísinda- og fræðsluþing, Nordic Baltic Congress of Cardiology (NBCC), annað hvert ár og var það til dæmis haldið á Íslandi með myndarbrag árin 1989, 1999 og 2009. Samskipti við Evrópu og ESC eru mikil og félagsmenn eru allir um leið félagsmenn í ESC. Hjartasjúkdómafélagið er virkur þátttakandi á árlegu þingi ESC (30.000 þátttakendur) og hefur þar sýning- arbás. Félagsmenn eru þar með vísinda- framlög, boðsfyrirlestra og sinna funda- stjórn. Félagið sækir einnig aðra fundi ESC: formannafund ESC, fundi um inn- leiðingu klínískra leiðbeininga og fundi um menntun hjartalækna. ESC sinnir for- varnastarfi á vegum Evrópusambandinu með það að markmiði að bæta hjartaheilsu í álfunni. Íslenskir hjartalæknar hafa látið sig þessi mál varða og unnið að for- vörnum, skipulagningu þinga, ritstjórn, útgáfu og gagnaöflun á vegum ESC til að stuðla að þessu. Í sjöunda lagi er Hjarta- sjúkdómafélagið með vísindasjóð sem veitt hefur fé til vísinda og fræðslustarfa. Áttunda verkefni félagsins er að stuðla að nýliðun í hópi hjartalækna. Félagið hefur í samstarfi við ESC boðið verðandi lyflæknum og hjartalæknum á ESC-þingið og greitt fyrir þá ráðstefnugjald eða hluta ferðakostnaðar. Félagið býður verðandi hjartalæknum sem eru í sérnámi hérlendis eða erlendis eða hafa nýlega lokið sérnámi að gerast félagsmenn. Almennt má segja að á síðustu 30 árum hafi orðið bylting í meðferð hjarta- sjúkdóma og búast má við svipuðum breytingum á næstu 30 árum. Tækja- væðing, þróun lyfja og þróun aðgerða og meðferða við hjartasjúkdómum hefur verið og er í örri framþróun. Vísindalegri nálgun hefur í áratugi verið beitt innan hjartalækninga. Því er í samanburði við margar aðrar sérgreinar fremur stór hluti meðferðar í hjartalækningum byggður á gagnreyndri læknisfræði. Hjartalækningar eru spennandi fag og hægt að sérhæfa sig innan þeirra, til dæmis sinna forvörnum, bráðveikum sjúklingum eða vísindarann- sóknum. Sumir sérhæfa sig í aðgerðum innan raflífeðlisfræði, kransæðavíkkana eða í myndgreiningu eins og ómskoð- unum, og hafa þó ekki öll svið fagsins verið nefnd. Dæmi um nýjungar sem hafa á síðustu misserum breytt miklu í meðferð hjarta- sjúklinga eru þróun nýrra blóðþynningar- lyfja, næmari mælingar á hjartaensímum, notkun blóðflæðismælingar í kransæðum til að meta þrengingar, ísetning hjartaloka með þræðingatækni, framþróun í notkun gangráða og bjargráða, til dæmis við hjartabilun, brennsluaðgerðir við gáttatifi og gáttaflökti og þrívíddarhjartaómun. Þá er fyrirséð framþróun í myndgreiningu þar sem samþætt eru gögn úr fleiri mynd- greiningaraðferðum en einni, til dæmis hjartaómun og tölvusneiðmyndum af kransæðum til að meta blóðflæði í hjarta- vöðvanum og þrengingar í kransæðum. Þá fæst bæði anatómískt og lífeðlisfræðilegt mat samtímis, sem getur bætt greiningu. Nokkur skortur hefur verið á hjarta- læknu en undanfarin tvö ár hefur nýliðun átt sér stað og ungir sérfræðingar flutt heim. Því horfir til betri vegar með mönnun. Horfur þeirra sem veikjast af hjartasjúkdómum fara batnandi og að auki eldist þjóðin og tíðni hjartasjúkdóma eykst með aldri. Það hefur verið reiknað út að tíðni sjúkdóma eins og gáttatifs og ósæðar- lokuþrengsla muni tvöfaldast á næstu áratugum. Sífellt fleiri lifa með hjartasjúk- dóm og því er ljóst að ekki veitir af fleiri hjartalæknum til starfa. Því er óhætt að hvetja unga lækna til að sérmennta sig í hjartalækningum, verkefnin verða næg og nýjungar, framþróun og spennandi hlutir fyrirsjáanlegir innan greinarinnar á næstu árum og áratugum. Hjartalækningar, stór sérgrein í hraðri framþróun Þórarinn Guðnason formaður Hjartasjúk dómafélags Íslands thorgudn@landspitali.is FYRIR HUGSANDI FÓLK Mitsubishi Outlander Intense er kominn með nýtt útlit. Betur búinn fjórhjóladrinn fjölskyldubíll er vandfundinn og ekki skemmir verðið fyrir. Komdu í reynsluakstur og fáðu tilnninguna sem svo ertt er að lýsa – jafnvel eftir að þú prófar. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði TILFINNINGIN ER ÓLÝSANLEG ÞAR TIL ÞÚ PRÓFAR Mitsubishi Outlander Sjálfskiptur, fjórhjóladrinn frá: 5.390.000 kr. NÝR MITSUBISHI OUTLANDER INTENSE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.