Læknablaðið - 01.10.2015, Qupperneq 3
ábendingar1
Pradaxa®(dabigatran)
5
NÝ
IS
-P
R
A-
14
-0
1-
30
, A
U
G
14
Meðferð hjá
fullorðnum við segamyndun í
djúplægum bláæðum og(DVT)
til fyrirbyggjandi meðferðar við
endurtekinni segamyndun í
djúplægum bláæðum
Meðferð hjá
fullorðnum við lungnasegareki
og til fyrirbyggjandi(PE)
meðferðar við endurteknu
lungnasegareki
Forvörn
gegn bláæðasegareki (VTE)
hjá fullorðnum sjúklingum sem
hafa gengist undir valfrjáls
mjaðmarliðskipti
Forvörn
gegn bláæðasegareki (VTE)
hjá fullorðnum sjúklingum sem
hafa gengist undir valfrjáls
hnéliðskipti
Fyrirbyggjandi
meðferð gegn heilaslagi og
segareki í slagæðum hjá fullorðnum
sjúklingum með gáttatif sem ekki
tengist hjartalokum, ásamt einum
eða fleiri áhættuþáttum*
Varðandi heimild og nánari upplýsingar er vísað í stytta samantekt á eiginleikum lyfsins á bls. XX
* Til að mynda að hafa áður fengið heilaslag eða tímabundna blóðþurrð í heila (transient
ischaemic attack, TIA); aldur 75 ára; hjartabilun (NYHA (New York Heart Association)≥
�okkur II); sykursýki; háþrýstingur.≥
LÆKNAblaðið 2015/101 443
læknablaðið
the icelandic medical journal
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Áskrift
12.400,- m. vsk.
Lausasala
1240,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu. Blað þetta má
eigi afrita með neinum hætti, hvorki að
hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Logi Bjarnason (f. 1978) er listamaðurinn að baki verksins
sem mynd er af á forsíðu Læknablaðsins. Verkið Alda
er frá árinu 2014 og samanstendur af sveigðri kross-
viðarplötu sem hallar upp að vegg. Platan
er blámáluð og æðar krossviðarins sjást
í gegnum litinn. Jaðar hennar er aftur
á móti málaður eldrauður sem skapar
sterka andstæðu við bláa litinn. Efri hluti
plötunnar slútir fram og myndar form sem
er undirstrikað af heiti verksins; eins konar
báru sem er við það að brotna. Verkið
var upphaflega gert fyrir sýninguna Dalir
og hólar sem er reglulegur listviðburður
haldinn á ýmsum stöðum í Dalabyggð og
í Reykhólasveit. Verkið var einnig sýnt í
Listasafni Reykjavíkur fyrr á þessu ári á
sýningunni Nýmálað sem ætlað var að
gefa sneiðmynd af stöðu málverksins hér á
landi. Í því samhengi vakti Alda spurningar
um eðli verksins sem er á mörkum hins
tvívíða og þrívíða, málverks og skúlptúrs.
Um leið er það á mörkum hins óhlutbundna
annars vegar, sem samspil geómetrískrar
abstaksjónar og frumlita. Hins vegar jaðrar það við að
vera hlutbundið, sem einfölduð mynd af öldu. Logi hefur
áður sýnt í verkum sínum áhuga á því að varpa fram
grunnspurningum um listina, eins og spurningunni um
hvað það raunverulega er sem listamaðurinn ber á borð
fyrir áhorfendur sína? Er þetta málverk eða skúlptúr,
abstrakt form eða mynd af öldu? Hvort er það listamað-
urinn eða áhorfandinn sem ákvarðar það? Logi hefur
ennfremur fengist við gjörningalist þar sem hann styðst
mjög gjarnan við endurtekningu,
aðferð sem í senn undirstrikar það
sem endurtekið er en dregur úr
því um leið í síbylju sinni. Það er
því engin tilviljun að listamaðurinn
tekst á við að myndgera öldu í
verki sínu, fyrirbæri sem er eins og
mantra náttúrunnar, stöðugt end-
urtekið en þó aldrei eins. Hér reynir
hann á allt að því broslegan hátt að
fanga staka öldu og gera af henni
mynd - eða öllu heldur ýja að henni
- um leið og hann horfist í augu
við þau mörk sem listamönnum
eru sett við að líkja eftir náttúrunni.
Logi nam myndlist við Listaháskóla
Íslands, þá heimspeki við Háskóla
Íslands og fór loks utan til Þýska-
lands í framhaldsnám í myndlist
við Städelschule í Frankfurt, sem
hann lauk árið 2012. Hann starfar nú hér á landi og er
auk listsköpunar virkur í félagsmálum myndlistarmanna,
hann situr í stjórn Nýlistasafnsins og gegnir formennsku í
Myndhöggvarafélaginu.
Markús Þór andrésson
L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S
Í sumar lét Orlofssjóður Læknafélags Íslands
reisa nýtt 80 fm orlofshús í landi Svigna-
skarðs, og sjóðurinn á þar með fjögur hús
á Vesturlandi: tvö við Hreðavatn og eitt í
Húsafelli auk þessa.
Húsið er í orlofshúsabyggð norðan við
veginn um 10 km ofan við Borgarnes.
Húsið er byggt eftir sömu teikningu
og af sömu aðilum og byggðu orlofshúsin
í Brekkuskógi fyrir Læknafélagið. Það er
rúmgott með öllu til alls og svefnplássi fyrir
átta manns, þremur herbergjum, baði, eld-
húskrók, stofu og geymslu, að ógleymdum
stórum palli allt í kring og heitum potti.
Svignaskarð er fornt stórbýli. Sagan segir
að þar hafi Snorri Sturluson haldið um 100
kálfa til að eiga nóg skinn að skrifa á sína
Eddu, Heimskringlu, Ólafs sögu Tryggva-
sonar og sennilega fleira. Það mega kallast
kúbæt til ríma við þau megabæt sem nútíma-
skáld þurfa. Og Snorri var líka með heitan
pott.
Mörg skáld hafa hugsað til Snorra og falls
hans; Megas, Steinn Steinar og Hannes Haf-
stein:
Síðan gráta hrímgar hlíðar
og holt um Borgarfjörð.
Svignaskarð í Borgarfirði – nýtt orlofshús LÍ
Glænýtt orlofshús með öllum græjum.
Af pallinum sér yfir Borgarfjörð, holt og hlíðar, og suður til Skarðs-
heiðar og Hafnarfjalls sem er kjörið til uppgöngu.
Lj
ós
m
yn
d
: L
is
ta
sa
fn
R
ey
kj
av
ík
ur
/
P
ét
ur
T
ho
m
se
n