Læknablaðið - 01.10.2015, Blaðsíða 17
LÆKNAblaðið 2015/101 457
Áttatíu og sex ára gömul kona leitaði til heimilis-
læknis eftir að hafa glímt í nokkra mánuði við mæði,
hósta, surg við öndun og kyngingarerfiðleika. Hún
hafði reykt en átti aðeins fjögur pakkaár að baki og
tók lyf við háþrýstingi. Hún hafði hvorki fundið fyrir
megrun né nætursvita. Skoðun var eðlileg fyrir utan
surg yfir meginberkju við inn- og útöndun. Sýklalyf
og berkjuvíkkandi lyf slógu ekki á einkenni og voru
því fengnar tölvusneiðmyndir af brjóstholi sem
1Læknadeild Háskóla
Íslands, 2hjarta- og
lungnaskurðdeild,
3meinafræðideild
Landspítala,
4Læknisfræðilegri
myndgreiningu.
Höfundar fengu samþykki
sjúklings fyrir þessari
umfjöllun og birtingu.
Greinin barst
16. apríl 2015,
samþykkt til birtingar
19. ágúst 2015.
Höfundar hafa
útfyllt eyðublað um
hagsmunatengsl.
Kona á níræðisaldri með
mæði og surg við öndun
Sigríður María Kristinsdóttir1 læknanemi, Elín Maríusdóttir2 læknir, Jón Gunnlaugur Jónasson1,3 læknir,
Einar Steingrímsson4 læknir, Tómas Guðbjartsson1,2 læknir
sýndar eru á mynd 1 og sést þar æxlisvöxtur. Fengin
var öndunarmæling sem sýndi FEV1 0,90 L/mín (62% af
spáðu gildi) og FVC 1,34L (73% af spáðu gildi). Blóðpruf-
ur voru allar innan eðlilegra marka. Með aðstoð tölvu-
sneiðmynda var stungið á æxlið og sjást smásjármyndir
af æxlinu á mynd 2.
Hver er greiningin og helstu mismunagreiningar, í
hverju felst meðferð og hverjar eru horfur sjúklingsins?
T I L F E L L I M Á N A Ð A R I N Shttp://dx.doi.org/10.17992/lbl.2015.10.46
Mynd 1. Tölvusneiðmynd af
brjóstholi (þversneið).
Mynd 2. Smásjármyndir af
æxlinu, H&E-litun til vinstri og
TdT-mótefnalitun til hægri.