Læknablaðið - 01.10.2015, Qupperneq 38
478 LÆKNAblaðið 2015/101
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Katrín Frímannsdóttir er doktor í mati
á skólastarfi og starfar við Mayo Clinic
í Minnesota í Bandaríkjunum sem
yfirmaður matssviðs við allar fimm
kennsludeildir stofnunarinnar sem þó
skilgreinir sig fyrst og fremst sem klín
íska heilbrigðisstofnun, þar sem yfir ein
milljón sjúklinga fer í gegn árlega.
Katrín bendir á merki Mayo-stofnunar-
innar sem er samsett úr þremur sam-
tengdum skjöldum. „Einingarnar þrjár eru
menntun, rannsóknir og klíník og þær eru
samtvinnaðar í öllu starfi og allri hugsun
okkar sem störfum á Mayo. Þetta er ekki
skrautfjöður sem einungis er hampað á
tyllidögum heldur er þetta lifandi fyrir-
mynd og haldið á lofti nánast daglega. Ég
starfa á tveimur þessara sviða, menntun
og rannsóknir en kem ekki nálægt klíník-
inni enda er ég ekki læknir heldur kennari
upphaflega, með masterspróf í skólastjórn-
un og lauk síðan doktorsprófi frá Minne-
sota-háskóla í matsfræðum. Síðan má
segja að útkoman af þeim tveimur sviðum
birtist á klíníska sviðinu enda erum við að
mennta heilbrigðisstarfsfólk til þess að það
geti bætt líf og líðan okkar sem þurfum á
þeim að halda.“
Katrín er gift Haraldi Bjarnasyni sér-
fræðingi í myndgreiningu æðasjúkdóma
en hann er yfirmaður æðarannsóknar-
deildar Mayo-stofnunarinnar. Þau hjónin
hafa búið um árabil í Minnesota og eru
eflaust mörgum íslenskum læknum að
góðu kunn enda hafa margir dvalið um
lengri eða skemmri tíma á heimili þeirra
vegna náms og starfsþjálfunar á Mayo-
stofnuninni.
„Kennsludeildirnar fimm á mennta-
sviði eru Mayo Medical School sem er
læknadeild með 50 nemendur á ári en til
stendur að stækka upp í 100 á ári að sögn
Katrínar. Mayo Graduate School er meist-
ara- og doktorsnámið sem býður eingöngu
nám í lífvísindum. Mayo School of Gra-
dual Medical Education er sérnám lækna,
sérgreinar og undirsérgreinar. Þetta er
mjög stór deild með um 2500 nemendur.
Mayo School of Health Sciences býður
nám í flestöllum heilbrigðisgreinum nema
hjúkrun, sem á sér sögulegar skýringar
því nunnurnar sem byggðu spítalann
vildu ekki að Mayo myndi keppa við þær
um menntun hjúkrunarfræðinga og það
hefur ávallt verið virt. Mayo býður reynd-
ar hjúkrunarfræðingum framhaldsnám á
meistarastigi svo og í ýmsum sérgreinum
og undirsérgreinum. Fimmti skólinn er
Mayo School of Contiunous Professional
Development sem býður endur- og sí-
menntun. Þessi deild hefur um 130.000
þátttakendur á ári. Fyrir utan MSCPD
eru samtals um 5000-6000 nemendur við
stofnunina á ári.“
Mayo er Fyrirmynd Obama að breytingum
Mayo Clinic er eitt stærsta sjúkrahús
Bandaríkjanna en Katrín segir þó ákveðna
mótsögn fólgna í því að kalla það sjúkra-
hús. „Mayo rekur spítala með 2000
sjúkrarúmum í Rochester í Minnesota en
það segir ekki nema lítinn hluta sögunnar
því meginhluti starfseminnar snýst um
göngudeildarþjónustuna. „Í dag eru
sjúklingar rúm ein milljón árlega en stefnt
er að því að fjölga þeim í 5 milljónir og
hefur verið ákveðið að leggja einn milljarð
dollara í stækkunina á næstu árum.
Síðan eru einnig reknar starfsstöðvar í
Flórída og Arizona auk þess sem Mayo
rekur sjúkrahús og heilsugæslustöðvar í
mörgum borgum í Suðaustur-Minnesota.
Loks verður að nefna að Mayo er með
samninga við fjölda annarra sjúkrahúsa
og heilsugæslustöðva um öll Bandaríkin,
Mayo Clinic Care Network, sem byggir á
tilvísunum frá þeim til okkar. Þetta er því
gríðarstórt hvernig sem á það er litið.“
Mayo hefur verið útnefnt heilbrigðis-
stofnun ársins í Bandaríkjunum og þar er
horft til þess hvernig gæði þjónustu fara
saman við lágan kostnað. „Mayo hefur
verið aðalfyrirmynd Obama forseta í til-
lögugerð hans um endurbætur á heilbrigð-
iskerfinu. Mayo Clinic er ekki einkafyrir-
tæki í þeim skilningi heldur „non-profit“
stofnun (foundation).“
Starfsvettvangur Katrínar er semsagt
innan þessa heilbrigðiskerfis sem er í
rauninni mun stærra í sniðum en allt ís-
lenska heilbrigðiskerfið og hennar hlut-
verk er að fylgjast með gæðum kennslu og
þjálfunar innan stofnunarinnar. „Við flutt-
um hingað fyrir 25 árum eftir að hafa búið
í þrjú ár í Noregi. Börnin voru þrjú og lítið
hrifin af því að flytja hingað og ætlunin
var að vera hér í eitt ár. Það var árið 1990
og við erum hér enn. Ég tók meistarapróf
í skólastjórnun og tók síðan hlé í nokkur
ár en þegar bauðst doktorsnám í mati á
skólastarfi tók ég aftur upp þráðinn. Í
millitíðinni fluttum við frá Minneapolis
til Rochester þegar maðurinn minn réði
sig á Mayo Clinic og til að gera langa sögu
stutta varði ég doktorsritgerðina í desem-
ber 2008. Ég réði mig til Mayo síðari hluta
árs 2009 og var ráðin til að skipuleggja
matskerfi fyrir meistaranámið og það gekk
svo vel að yfirmaður alls menntageirans á
Stýrir eftirliti með gæðum
kennslu og þjálfunar á stærstu
heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna
Hávar Sigurjónsson ræðir við Katrínu Frímannsdóttur