Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.2015, Side 46

Læknablaðið - 01.10.2015, Side 46
486 LÆKNAblaðið 2015/101 A Ð S E N T E F N I ingunn björnsdóttir lektor í lyfjafræði Oslóarháskóla ingunn.bjornsdottir @farmasi.uio.no Þrír fyrrum samstarfsmenn mínir skrif- uðu grein í síðasta Læknablað,1 sem ástæða er til að svara með fáeinum orðum. Yfir- skrift greinarinnar er „Notagildi lyfja- gagnagrunns“ og bróðurpartur hennar lýsir þeim miklu tíðindum sem greinar- höfundar telja að frekari möguleikar á uppflettingum og niðurfellingum lyfseðla séu. Þeir telja þessa nýju möguleika eigin- lega byltingarkennda. Ekki skal hér tekin afstaða til þess hvort um byltingu í þessu efni sé að ræða, heldur skal sjónum beint að síðustu málsgreininni. En fyrst fáein orð um það sem á undan henni fer. Í greininni kemur fram að 300 læknar séu þegar að nota grunninn. Það er ekk- ert sérlega há tala samanborið við þá 700 lækna sem fengu bréf frá Embætti land- læknis sumarið 2011, með ábendingum um að einhverjir skjólstæðingar þeirra væru að nota ávanabindandi lyf í umhugsunar- verðu magni. Talan 300 er reyndar heldur ekki sérlega há miðað við notendur fyrir 1-2 árum, en það voru um 300 læknar.2-4 Dæmin tvö sem greinarhöfundar tilgreina eru fín, og minna um margt á dæmi sem lýst var á heimasíðu Lyfjastofnunar á þessu og síðasta ári.5,6 Og þá er ég komin að síðustu máls- greininni sem fjallar um þá fögru framtíð sem svo öflugur grunnur stuðlar að. Mis- jafnt er hversu vel Embættið tekur ábend- ingum um villur, og hefur sú sem þetta ritar nokkuð tvíbenta reynslu af að vekja athygli starfsmanna Embættisins á villum í grunninum. Því skal önnur leið valin nú. Greinarhöfundar nefna réttilega að villur fundust í grunninum fyrir nokkrum árum. Þeir fara hins vegar frjálslega með þegar þeir halda því fram að þessar villur hafi verið leiðréttar. Hið rétta er að ríflega helming af verstu villunum tókst að leiðrétta frá haustmánuðum 2011 til haustmánaða 2012. Tillögum um stikk- prufur til að kanna árangur leiðréttinga- vinnunnar hafði verið fálega tekið, og því ekki verið ráðist í slíkt. Afturköllun bréfs sem innihélt villur seint í desember 2012 varð þó til þess að málið var kannað og þá kom í ljós villuumfangið sem vikið er að hér að ofan. Þær villur sem enn standa óleiðréttar valda því meðal annars að Embætti landlæknis birti í upphafi þessa árs upplýsingar þess efnis að um 4 millj- ónir dagskammta af húðlyfjum hefðu selst á Íslandi hvort ár, árin 2012 og 2013.7 Þetta stangast nokkuð á við tölur Lyfjastofnunar um sama efni, sem tilgreina tæpa hálfa milljón dagskammta hvort ár.8 Ekki verður betur séð en Embætti landlæknis smyrji nokkuð þykkt á upplýsingar um smyrsla- sölu á Íslandi. Þá er óafgreidd sú fullyrðing að grunnurinn hafi dugað ágætlega við venjubundið eftirlit á vegum Embættis landlæknis frá árinu 2006. Ekki skal því á móti mælt að nokkur sannleikur kunni að vera í þessu. En sé eftirlitið með þessum hætti er hálfgert sleifarlag á því. Með reglulegu millibili rata í blöðin frásagnir af dauðsföllum fíkla. Bæði hefur verið fjallað um fentanýl og ketobemidón í slíku sam- hengi. Fyrir leiðréttingavinnuna 2011-2012 var fentanýl-sala metin tæplega þreföld sú sem hún var í raun, mælt í DDD. Ketobemidón var hins vegar vanmetið og talið seljast hálft það magn sem raunin var, aftur mælt í DDD. Ekki hefur komið fram að þessi dauðsföll hafi út af fyrir sig haft nein áhrif á starfsemi ávísandi lækna, þvert á móti bendir fjölmiðlaumfjöllun til að þeir hafi bara haldið áfram sínum störfum eins og ekkert hefði í skorist, allt þar til ættingjarnir vöktu athygli blaðanna á málunum. Þriðja dauðsfallið sem orsakaði veru- lega fjölmiðlaumfjöllun var af völdum lyfja Notagildi lyfjagagnagrunns – séð af öðrum sjónarhóli Practical og Congress Reykjavík hafa nú sameinað krafta sína undir merkjum CP Reykjavík. Við erum frísklegt og skapandi þjónustufyrirtæki sem skipu- leggur viðburði, ferðir og ráðstefnur fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini. RÁÐSTEFNUR / VIÐBURÐIR / HVATAFERÐIR Við gerum atvinnulífið viðburðaríkara www.cpreykjavik.is

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.