Læknablaðið - 01.10.2015, Page 46
486 LÆKNAblaðið 2015/101
A Ð S E N T E F N I
ingunn
björnsdóttir
lektor í lyfjafræði
Oslóarháskóla
ingunn.bjornsdottir @farmasi.uio.no
Þrír fyrrum samstarfsmenn mínir skrif-
uðu grein í síðasta Læknablað,1 sem ástæða
er til að svara með fáeinum orðum. Yfir-
skrift greinarinnar er „Notagildi lyfja-
gagnagrunns“ og bróðurpartur hennar
lýsir þeim miklu tíðindum sem greinar-
höfundar telja að frekari möguleikar á
uppflettingum og niðurfellingum lyfseðla
séu. Þeir telja þessa nýju möguleika eigin-
lega byltingarkennda. Ekki skal hér tekin
afstaða til þess hvort um byltingu í þessu
efni sé að ræða, heldur skal sjónum beint
að síðustu málsgreininni. En fyrst fáein
orð um það sem á undan henni fer.
Í greininni kemur fram að 300 læknar
séu þegar að nota grunninn. Það er ekk-
ert sérlega há tala samanborið við þá 700
lækna sem fengu bréf frá Embætti land-
læknis sumarið 2011, með ábendingum um
að einhverjir skjólstæðingar þeirra væru
að nota ávanabindandi lyf í umhugsunar-
verðu magni. Talan 300 er reyndar heldur
ekki sérlega há miðað við notendur fyrir
1-2 árum, en það voru um 300 læknar.2-4
Dæmin tvö sem greinarhöfundar tilgreina
eru fín, og minna um margt á dæmi sem
lýst var á heimasíðu Lyfjastofnunar á
þessu og síðasta ári.5,6
Og þá er ég komin að síðustu máls-
greininni sem fjallar um þá fögru framtíð
sem svo öflugur grunnur stuðlar að. Mis-
jafnt er hversu vel Embættið tekur ábend-
ingum um villur, og hefur sú sem þetta
ritar nokkuð tvíbenta reynslu af að vekja
athygli starfsmanna Embættisins á villum
í grunninum. Því skal önnur leið valin nú.
Greinarhöfundar nefna réttilega að
villur fundust í grunninum fyrir nokkrum
árum. Þeir fara hins vegar frjálslega
með þegar þeir halda því fram að þessar
villur hafi verið leiðréttar. Hið rétta er að
ríflega helming af verstu villunum tókst
að leiðrétta frá haustmánuðum 2011 til
haustmánaða 2012. Tillögum um stikk-
prufur til að kanna árangur leiðréttinga-
vinnunnar hafði verið fálega tekið, og því
ekki verið ráðist í slíkt. Afturköllun bréfs
sem innihélt villur seint í desember 2012
varð þó til þess að málið var kannað og
þá kom í ljós villuumfangið sem vikið er
að hér að ofan. Þær villur sem enn standa
óleiðréttar valda því meðal annars að
Embætti landlæknis birti í upphafi þessa
árs upplýsingar þess efnis að um 4 millj-
ónir dagskammta af húðlyfjum hefðu selst
á Íslandi hvort ár, árin 2012 og 2013.7 Þetta
stangast nokkuð á við tölur Lyfjastofnunar
um sama efni, sem tilgreina tæpa hálfa
milljón dagskammta hvort ár.8 Ekki verður
betur séð en Embætti landlæknis smyrji
nokkuð þykkt á upplýsingar um smyrsla-
sölu á Íslandi.
Þá er óafgreidd sú fullyrðing að
grunnurinn hafi dugað ágætlega við
venjubundið eftirlit á vegum Embættis
landlæknis frá árinu 2006. Ekki skal því á
móti mælt að nokkur sannleikur kunni að
vera í þessu. En sé eftirlitið með þessum
hætti er hálfgert sleifarlag á því. Með
reglulegu millibili rata í blöðin frásagnir af
dauðsföllum fíkla. Bæði hefur verið fjallað
um fentanýl og ketobemidón í slíku sam-
hengi. Fyrir leiðréttingavinnuna 2011-2012
var fentanýl-sala metin tæplega þreföld
sú sem hún var í raun, mælt í DDD.
Ketobemidón var hins vegar vanmetið og
talið seljast hálft það magn sem raunin
var, aftur mælt í DDD. Ekki hefur komið
fram að þessi dauðsföll hafi út af fyrir sig
haft nein áhrif á starfsemi ávísandi lækna,
þvert á móti bendir fjölmiðlaumfjöllun
til að þeir hafi bara haldið áfram sínum
störfum eins og ekkert hefði í skorist, allt
þar til ættingjarnir vöktu athygli blaðanna
á málunum.
Þriðja dauðsfallið sem orsakaði veru-
lega fjölmiðlaumfjöllun var af völdum lyfja
Notagildi lyfjagagnagrunns
– séð af öðrum sjónarhóli
Practical og Congress Reykjavík hafa nú sameinað
krafta sína undir merkjum CP Reykjavík. Við erum
frísklegt og skapandi þjónustufyrirtæki sem skipu-
leggur viðburði, ferðir og ráðstefnur fyrir innlenda
og erlenda viðskiptavini.
RÁÐSTEFNUR / VIÐBURÐIR / HVATAFERÐIR
Við gerum
atvinnulífið
viðburðaríkara
www.cpreykjavik.is