Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Síða 18
„Markmið hagstjórnarinnar er að
tryggja lága verðbólgu, lágt vaxtastig,
betra jafnvægi í utanríkisviðskiptum,
jafnan og öflugan hagvöxt og áfram-
haldandi trausta stöðu ríkissjóðs,“
segir í málefnasamningi ríkisstjórn-
ar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks
sem var undirritaður á Þingvöllum
23. maí árið 2007. Ljóst er að ríkis-
stjórn Samfylkingar og Sjálfstæð-
isflokks náði aðeins broti af mark-
miðum sínum sem útlistuð voru í
málefnasamningnum.
Í kafla stjórnarsáttmálans um
efnahagsmál segir að tryggja verði að
íslensk fyrirtæki búi við bestu sam-
keppnis- og rekstrarskilyrði sem völ
er á. Íslenskt atvinnulíf muni ein-
kennast í sívaxandi mæli af útrás og
eru háskólarnir nefndir sérstaklega í
því samhengi að ná betri árangri í út-
rásinni. Á sama tíma og gera átti út-
rásinni hátt undir höfði var sérstök
áhersla lögð á að efla Fjármálaeftirlit-
ið „til þess að íslenski fjármálamark-
aðurinn njóti fyllsta trausts“ eins og
það er orðað. Íslensk sérþekking fái
notið sín til fulls í útrás orkufyrir-
tækja. Einnig lagði Þingvallastjórnin,
eins og hún kallaði sjálfa sig, áherslu
á að mikilvægt væri að eðlileg sam-
keppni og verðmyndun þrifist á öll-
um sviðum atvinnulífsins.
„Staðið gegn náttúruvernd
af alefli“
Í umhverfismálum ætlaði ríkisstjórn-
in að stefna að því að Ísland tæki for-
ystu í baráttunni gegn mengun hafs-
ins og alþjóðlegu starfi til að bregðast
við loftslagsbreytingum. Lítið sem
ekkert hefur spurst til þeirra fyrirætl-
ana síðustu tvö ár.
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur
ætluðu að leggja sérstaka áherslu á
að leiða til lykta ágreining um þjóð-
areign á náttúruauðlindum í ljósi sér-
nefndar um stjórnarskrármál. Sjálf-
stæðisflokkurinn lagðist gegn þessari
breytingu og beitti málþófi á síðustu
vikum Alþingis til þess.
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, gefur
þessari ríkisstjórn ekki góða umsögn
fyrir frammistöðu í náttúruverndar-
málum. „Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur staðið gegn náttúruvernd af al-
efli undanfarin 10 ár. Það sem náðist
fram var óskaplega lítið,“ segir hann.
Í kaflanum um umhverfisvernd
segir einnig að stækkun friðlandsins
verði tryggð þannig að það nái yfir
hið sérstaka votlendi Þjórsárvera.
„Sjálfstæðisflokkurinn stóð gegn því
sem sett var fram í hinu fagra Íslandi
Samfylkingar,“ segir Árni.
Sóa ekki skattpeningum
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylk-
ingin gerðu einnig samkomulag á
milli sín um endurskoðun fiskveiði-
stjórnunarkerfisins, en Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, segist ekki hafa fengið frek-
ari fregnir af því.
Flokkarnir stefndu að því að lækka
skatta á einstaklinga með hækkun
persónuafsláttar og að leitað yrði
leiða til þess að lækka frekar skatta
á fyrirtæki. Kerfi óbeinna skatta, svo
sem vörugjalda og virðisaukaskatts,
átti að vera endurskoðað. Ríkisstjórn-
inni tókst að hækka persónuafslátt til
lágtekjufólks, en í stað skattalækkana
komu skattahækkanir og kerfi vöru-
gjalda og virðisaukaskatts er óhreyft.
Ríkisstjórnin lagði áherslu á að
ýtrasta aðhalds yrði gætt í rekstri hins
opinbera þannig að fjármunir skatt-
greiðenda væru nýttir sem best. Ís-
lendingar greiða nú himinháa vexti
af láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og
þurfa jafnframt að standa undir Ice-
save-kröfunum.
Félagslegar umbætur?
Ríkisstjórnin lofaði meðal annars að
tannvernd barna yrði bætt með gjald-
frjálsu eftirliti, forvarnaraðgerðum og
auknum niðurgreiðslum á tannvið-
gerðum barna. Það hefur ekki orð-
ið breyting þar á. Ríkisstjórnin lagði
einnig til að nemendur í framhalds-
skólum fengju stuðning til kaupa á
námsgögnum, ekki hafa borist frek-
ari fregnir af þeim styrk. Hins vegar er
komið í ferli að frumkvæði Jóhönnu
Sigurðardóttur um hröðun uppbygg-
ingar á 400 hjúkrunarrýmum fyrir
aldraða. Stjórnin stóð hins vegar við
að hækka frítekjumarkið í 100 þús-
und krónur og lækkaði skerðingar-
hlutfall í almannatryggingakerfinu í
35 prósent.
föstudagur 24. apríl 200918 Fréttir
Þau lofuðu ýmsu
Úr StjórnarSáttmála ÞingvallaStjórnarinnar
n Markmið hagstjórnarinnar er að tryggja lága verðbólgu, lágt vaxtastig, betra
jafnvægi í utanríkisviðskiptum, jafnan og öflugan hagvöxt og áframhaldandi
trausta stöðu ríkissjóðs.
n tryggja verður að íslensk fyrirtæki búi við bestu samkeppnis- og rekstrarskilyrði
sem völ er á.
n íslenskt atvinnulíf mun einkennast í sívaxandi mæli af þekkingarsköpun og útrá.
n ríkisstjórnin vill skapa kjörskilyrði fyrir áframhaldandi vöxt, útflutning og útrás
íslenskra fyrirtækja.
n Áhersla verður lögð á að efla fjármálaeftirlitið til þess að íslenski fjármálamark-
aðurinn njóti fyllsta trausts.
n tímabært er að leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins svo að íslensk sérþekk-
ing og hugvit fái notið sín til fulls í útrás orkufyrirtækja
n Mikilvægt er að heilbrigð samkeppni og eðlileg verðmyndun þrífist á öllum
sviðum atvinnulífsins og að neytendur njóti góðs af þeirri samkeppni.
n stefnt skal að frekari lækkun skatta á einstaklinga á kjörtímabilinu.
n ráðdeild og varfærni í fjármálum hins opinbera er höfuðnauðsyn og áríðandi að
hlutur opinberrar starfsemi af þjóðarframleiðslunni vaxi ekki umfram það sem nú
er.
n tannvernd barna verði bætt með gjaldfrjálsu eftirliti.
n Nemendur í framhaldsskólum fái stuðning til kaupa á námsgögnum.
n ríkisstjórnin stefnir að því að ná víðtækri sátt um verndun verðmætra náttúru-
svæða landsins og gera skýra áætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
n Áhersla verður lögð á að leiða til lykta ágreining um þjóðareign á náttúruauð-
lindum í ljósi niðurstöðu sérnefndar um stjórnarskrármál um það atriði á síðasta
þingi.
Ríkisstjórnin sem tók við völdum eftir síðustu kosningar stefndi
að lágu vaxtastigi, eflingu Fjármálaeftirlitsins, sátt um nýtingu
auðlinda landins og endurskoðun á stjórnarskrá. guðjón arnar
Kristjánsson og árni Finnsson segja margt hafa brugðist.
valgeir örn ragnarSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
„Sjálfstæðisflokkurinn
hefur staðið gegn nátt-
úruvernd af alefli und-
anfarin 10 ár.“
á meðan allt lék í lyndi geir
og Ingibjörg voru sæl, glöð og
bjartsýn á Þingvöllum þegar
þau náðu að mynda ríkisstjórn
utan um fögur loforð sem báðir
flokkar gátu sameinast um.
loforð gefin Þegar
Þingvallastjórn var
mynduð var gerður
stjórnarsáttmáli til
fjögurra ára.