Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Page 24
föstudagur 24. apríl 200924 Fréttir
SKULDAR ÍSLANDSBANKA
UM 30 MILLJARÐA KRÓNA
Geysir Green Energy á í erfiðleikum með að standa í skilum við lánardrottin sinn Íslandsbanka. Forstjóri fyr-
irtækisins segir að skuldir þess séu lægri en 30 milljarðar króna. Fyrirtækið átti að verða stærsta jarðvarma-
fyrirtæki í heimi ásamt REI og átti að eiga eignir upp á fleiri hundruð milljarða króna. Líklegt er að hlutur
fyrirtækisins í Hitaveitu Suðurnesja gangi aftur til ríkisins og verður einkavæðing hans þá komin í hring.
Einkavæðing HitavEitu SuðurnESja
2. Hluti
forsætisráðuneytið hefur veitt dV aðgang að öllum gögnum einkavæðingarnefndar um söluna á 15,2 prósenta hlut ríkisins í Hitaveitu suðurnesja árið 2007. í fyrsta hluta umfjöllunarinnar um þessa einkavæðingu var fjallað um aðdraganda þess að söluferlið á hlutnum hófst og þar með einkavæðing í íslenska orkugeiranum. Hér er fjallað um útistandandi skuldir geysis green, hvernig kaupin voru fjármögnuð og aðdragandann að sölunni á hlutnum til geysis.
nóv. 2006 nóv. 2006 29. dES. 2006 5. jan. 2007 30. apríl 2007 3. okt. 2007
eINKAvæÐINg hItAveItU SUÐURNeSJA og StofNUN geySIS gReeN eNeRgy
29. nóv. 2006 13. dES. 2006 20. dES. 2006 4. okt. 2007 1. nóv. 2007 23. nóv. 2007
Illugi gunnars-
son, meðlimur
einkavæð-
ingarnefndar
og núverandi
þingmaður sjálf-
stæðisflokksins,
fær eina
milljón króna í
prófkjörsstyrk
frá fl group
vegna þátttöku
í prófkjöri til
alþingiskosn-
inga.
guðlaugur Þór
Þórðarson,
þingmaður
sjálfstæðis-
flokksins,
borgarfulltrúi
og þáverandi
stjórnarformað-
ur Orkuveitu
reykjavíkur, fær
2 milljóna króna
prófkjörsstyrk
frá fl group.
Bréf Bjarna
Ármannsson-
ar, forstjóra
glitnis, berst
til einkavæð-
ingarnefndar.
Bjarni lýsir
yfir áhuga á
hlut ríkisins
í Hitaveitu
suðurnesja
fyrir hönd
glitnis.
Árni Mathiesen
fjármálaráð-
herra og Jón
sigurðsson
iðnaðarráð-
herra skrifa bréf
til einkavæð-
ingarnefndar
þar sem henni
er falið að taka
15,2 prósenta
hlut ríkisins
í Hitaveitu
suðurnesja til
sölumeðferðar.
fyrsti fundur einka-
væðingarnefndar
um söluna. stefán
Jón friðriksson
skrifar bréf fyrir
hönd einkavæð-
ingarnefndar til
Bjarna Ármanns-
sonar þar sem
fram kemur að ekki
verði farið í viðræð-
ur við áhugasama
kaupendur á
hlutnum fyrr en
söluferlið hafi verið
ákveðið.
fl group
veitir
sjálfstæð-
isflokkn-
um 30
milljarða
króna
styrk.
geysir
green
Energy er
stofnað af
fl group,
glitni og
VgK-Hönn-
un.
Árni Mathiesen
gengur að
7,6 milljarða
tilboði geysis
green í hlut
ríkisins. Bjarni
Ármannsson
hættir sem
forstjóri glitnis.
dótturfélag
Orkuveitu
reykjavíkur,
rEI, og geysir
green Energy
sameinast undir
nafni hins fyrr-
nefnda. Bjarni
Ármannsson
er stjórnarfor-
maður hins
nýja sameinaða
félags.
Hannes smárason,
stjórnarformaður
geysis green Energy,
og Bjarni Ármanns-
son, stjórnarformaður
rEI, kynna framtíðar-
sýn félagsins í lond-
on þar sem meðal
annars kemur fram að
draumur þeirra sé að
hið nýja sameinaða
félag verði stærsta
jarðvarmafyrirtæki
í heimi og að eignir
þess verði á bilinu 5-8
milljarðar dollara.
Borgarráð
reykjavíkur
hafnar
samruna rEI
og geysis
green.
Bjarni Ár-
mannsson
tilkynnir að
hann hætti
hjá rEI um
áramótin
2007–2008.
Geysir Green Energy skuldar Ís-
landsbanka um 30 milljarða króna
samkvæmt heimildum DV. Hluti
skuldarinnar mun vera tilkominn
vegna kaupa fyrirtækisins á 15,2 pró-
senta hlut íslenska ríkisins og 13,2
prósenta hlut nokkurra sveitarfélaga
fyrir um 15 milljarða króna um mitt
ár árið 2007. Árni Mathiesen fjár-
málaráðherra tók 7,6 milljarða til-
boði Geysis Green í hlut ríkisins en
þáverandi hluthafar höfðu forkaups-
rétt sem nokkrir þeirra nýttu sér og
áframseldu hlutina svo til Geysis
Green á yfirverði.
Geysir Green stendur afar illa
um þessar mundir en það hefur um
mánaða skeið dregið að standa við
skuldbindingar sínar gagnvart Ís-
landsbanka. Fyrirtækið á í viðræðum
við erlenda fjárfesta um aðkomu að
félaginu sem mun tryggja því aðgang
að fjármagni.
Samkvæmt heimildum DV blasir
fátt annað við fyrirtækinu en gjald-
þrot því það er orðið uppiskroppa
með lausafé og hefur átt í erfiðleik-
um með að greiða starfsmönnum
sínum laun.
Geysir Green var stofnað af Glitni,
FL Group og VGK-Hönnun í ársbyrj-
un 2007 og var tilgangurinn meðal
annars að bjóða í hlut ríkisins í Hita-
veitu Suðurnesja sem auglýstur var til
sölu í desember árið 2006. Bjarni Ár-
mannsson, þáverandi forstjóri Glitn-
is, hafði þá lýst því yfir við einkavæð-
ingarnefnd að bankinn vildi kaupa
hlutinn. Í kjölfarið hóf einkavæðing-
arnefnd söluferlið á hlutnum líkt og
greint var frá í fyrri hluta umfjöllunar
DV um söluna á hlut ríkisins í Hita-
veitu Suðurnesja síðastliðinn mið-
vikudag.
greiddu ekki 11 milljarða
króna afborganir
Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geys-
is Green Energy, segir aðspurður að
fyrirtækið skuldi Íslandsbanka ekki
um 30 milljarða króna heldur tölu-
vert minna. Aðspurður vill Ásgeir
ekki gefa upp hversu mikið fyrirtæk-
ið skuldar um þessar mundir en segir
að félagið sé ekki í vanskilum.
Ásgeir segir að Íslandsbanki, áður
Glitnir, sé eini lánardrottinn fyrir-
tækisins og því hefur bankinn séð al-
farið um lánsfjármögnun kaupanna í
hlutnum í Hitaveitunni. Hluti kaup-
anna var fjármagnaður með eigin-
fjárframlagi. Íslandsbanki er auk
þess stór aðili að Glacier Renewable
Energy Fund sem á 40 prósenta hlut
í Geysi Green. Ásgeir segir að fyrir-
tækið sé nú að vinna sig í gegnum
storminn í kjölfar bankahrunsins.
„Það eru mjög breyttar forsendur á
mörkuðum og við erum að laga okk-
ur að því,“ segir Ásgeir en samkvæmt
heimildum DV er staða fyrirtækis-
ins töluvert verri en forstjórinn gefur
upp. Hann segir að tækifæri fyrirtæk-
isins séu mikil og að hugsanlegt sé
að erlendir fjárfestar komi inn í fyrir-
tækið því það þurfi fjármagn til frek-
ari útrásar erlendis. „Þekkingin er til
staðar sem og viðskiptahugmyndin
en fjármagnið er ekki til hér á landi.
Þrátt fyrir allt sem á undan er geng-
ið er ímynd Íslands sem forysturík-
is á sviði jarðavarmanýtingar ennþá
óskemmd,“ segir Ásgeir og bætir því
við aðspurður að ef þetta gangi ekki
eftir verði skorið niður í rekstri fyr-
irtækisins en að það sé ekki að fara
í þrot.
Ársreikningi Geysis Green fyr-
ir árið 2008 hefur ekki verið skilað
þannig að engar opinberar upplýs-
ingar liggja fyrir um skuldastöðu fé-
lagsins um þessar mundir en sam-
kvæmt fyrirtækjaskýrslu ársins 2007
voru skuldir fyrirtækisins rúmlega 27
milljarðar króna, þar af voru
rúmir 25 milljarðar skamm-
tímaskuldir, mjög líklega svoköll-
uð kúlulán, þar sem höfuðstóll og
vextir lánsins greiðast til baka í lok
lánstíma.
Í ársreikningi fyrirtækisins frá ár-
inu 2007 kemur fram að fyrirtæk-
ið hafi átt að greiða ríflega 11 millj-
arða króna afborganir af lánum
sínum til Íslandsbanka árið
2008. Samkvæmt heim-
ildum DV hefur fyr-
irtækið ekki staðið í
skilum með þessar af-
borganir til bankans
að fullu.
Bréf frá Hannesi
og Bjarna
tryggðu lánafyrir-
greiðslu
Í gögnum einka-
væðingarnefndar
um söluna á hlut
ríkisins í Hitaveitu
Suðurnesja eru
tvö bréf frá Bjarna
Ármannssyni og
Hannesi Smárasyni
þar sem Glitnir og
FL Group ábyrgj-
ast að lána Geysi
Green Energy fé
til að kaupa hlut
ríkisins í Hita-
veitu Suður-
ingi F. vilHjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Ég er ekki í pólitík en mér virðist sem það sé verið
að kasta verulegum fjármunum á glæ með þess-
ari ákvörðun.“
Framhald á
næstu opnu
Framtíðarplönin brustu Bjarni
Ármannsson yfirgaf glitni á sama
tíma og gengið var frá sölunni á hlut
ríkisins í Hitaveitu suðurnesja til
geysis green Energy og tók síðar við
sem stjórnarformaður rEI.
gæti gengið aftur til ríkisins Eignarhlutur geysis green
Energy í Hitaveitu suðurnesja gæti farið yfir til íslenska ríkisins ef
fyrirtækið nær ekki að greiða af lánum sínum við íslandsbanka en
fyrirtækið hefur fengið endurtekna fresti til þess.