Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Síða 29
föstudagur 24. apríl 2009 29Umræða
Hver er maðurinn? „Ég er Knútur
Hauksson handboltaáhugamaður.“
Hvað drífur þig áfram? „Árangur
og að gera gera nýja hluti.“
Hvaða þrjú orð lýsa þér best? „Ég
er léttur í lund, þver og fylginn mér.“
Hvar ertu uppalinn? „í reykjavík.“
Uppáhaldshúsverkið? „Það er að
grilla á útigrillinu.“
Hvað þarf helst að bæta innan
handboltahreyfingarinnar? „Það
sem við þurfum að byrja á að skoða
eru samskipti við fjölmiðla því það
þarf að efla útbreiðsluna. Við höfum
orðið svolítið út undan og þurfum að
líta í eigin barm hvað það varðar.“
Hvað finnst þér um núverandi
deildarfyrirkomulag? „Þetta er
í fyrsta skipti sem við spilum eftir
þessu nýja fyrirkomulagi og mér
sýnist það virka mjög vel.“
Hefur HSÍ framtíðaráætlanir eða
markviss markmið um iðk-
endafjölda? „Ég er auðvitað bara
nýtekinn við en við munum setjast
niður og fara í nýja stefnumótun fyrir
Hsí, bæði innan hreyfingarinnar og
með félögunum.“
Hvers vegna hefur iðkun
dregist svona mikið saman á
landsbyggðinni? „Úrval íþótta og
afþreyingar hefur vissulega aukist
til muna síðustu ár og svo má segja
að auðveldara sé að stunda margar
aðrar íþróttir en handbolta. Þú þarft
ákveðinn fjölda þátttakenda og
ákveðnar aðstæður ólíkt mörgum
öðrum íþróttum.“
Er framtíð handboltans björt?
„Já, ég held að við sjáum það á
árangri karlalandsliðsins undanfarið
sem og á árangri yngri flokkanna
sem eru að fara að keppa í heims-
meistarakeppninni fljótlega að fram-
tíðin er mjög björt. Einnig er alltaf að
fjölga því unga og hæfileikaríka fóki
sem kemst í atvinnumennskuna sem
er frábært.“
Hefur þú trú á íslensku krónunni?
„Nei. Ég vil fá evruna.“
Lára PétUrSdóttir
41 Árs VErsluNarKoNa
„Ég bara veit það ekki.“
LEon KEmP
37 Ára VErsluNarmaður
„Nei. Ég vil fá evruna.“
KoLbrún óSK EyþórSdóttir
20 Ára VErsluNarKoNa
„Nei, ég hef enga trú á íslensku
krónunni. Það er ástæða fyrir því að
enginn hefur trú á henni.“
Finnbogi KarL andréSSon
27 Ára VErsluNarmaður
Dómstóll götunnar
KnútUr HaUKSSon var nýlega
kjörinn formaður Hsí. Hann segir
framtíð handboltans á íslandi
mjög bjarta.
Þarf að efla út-
breiðslu boltans
„Ég hef trú á íslandi. Vil ekki fara í EsB
en ég held að við þurfum annan
gjaldmiðil.“
brynja gUðmUndSdóttir
45 Ára VErsluNarstJóri
maður Dagsins
Líklega er þetta í fyrsta sinn síðan
1990 sem ég er í þeirri undarlegu
aðstöðu að halda með stjórninni í
einhverjum kosningum. Þá sem nú
var mikið í húfi. Árið 1990 var kos-
ið um hvort Stjórninni tækist að hífa
landið upp úr krónísku 16. sæti eða
jafnvel 0 stigum og finna landinu
stað meðal siðmenntaðra þjóða í
toppslagnum í Eurovision. Þá voru
örlög okkar þó algerlega í höndum
útlendinga. Nú eru örlög okkar, að
einhverju leyti að minnsta kosti, í
höndum okkar sjálfra.
Nú sem þá er ein af spurningun-
um hvernig aðrar Evrópuþjóðir líta
á okkur. En það að ganga í eina sæng
með Evrópu er ekki einnar nætur
gaman. Þegar lagt er út í varanlegt
samband er nauðsynlegt að gengið
sé úr skugga um að áhugamál jafnt
sem grundvallarviðhorf fari saman,
frekar en að það sé gert af einskærri
örvæntingu.
Cayman-eyjapeyjar
Kosningarnar núna snúast þó ekki
fyrst og fremst um Evrópusamband-
ið. Ljóst er að ef vinstri stjórnin situr
áfram mun spurningin um Evrópu-
sambandsaðild verða til vandræða
og þeirri spurningu þarf að svara
fyrr eða síðar. En það er í raun auka-
atriði. Nú er nefnilega kosið um
hvernig þjóðfélagi við viljum búa
í. Hér er kosið um sjálfa framtíð Ís-
lands.
Á að leyfa auðmönnum að leggja
ekkert inn og taka bara út úr gleði-
bönkum sínum, meðan þeir sem
engar syndir drýgðu sitja eftir í
þankanum og borga skuldir hinna
sem fá að hverfa hægt og hljótt út
í nóttina eða alla leið til Cayman-
eyja?
draumur um jóhönnu
Eigum við að halda áfram að láta þá
sem allir þrá að dýrka og dá halda
áfram að efnast á okkar kostnað eða
eigum að krefjast þess að aflétta
bankaleyndum og IMF-leyndum
og launaleyndum og fá að sjá það
sem enginn hingað til hefur fengið
að sjá?
Viljum við halda áfram að sofa
heila öld eða er kominn tími til að
vakna og skapa þjóðfélag sem er
ljúft og gott? Nei eða já, af eða á, ég
held að innst inni vitum við svarið.
Það er kominn tími til að losa sig við
Sjálfstæðisflokkinn sem kosinn hef-
ur verið í tíma og aftur í ótíma, reka
í burtu þær dimmu nætur og hleypa
inn birtu, ekki seinna en núna. Láta
spillinguna og klíkuveldið stíga sinn
hinsta dans. Og sjá, heilög Jóhanna
mun leiða okkur til himna ef við
opnum hjarta okkar. Segðu mér allt,
Jóhanna, sýndu mér heim, allt lífið
er fram undan. Sjúbídú. Hið full-
komna líf mun aldrei fást fyrir pen-
inga.
Öld andleysisins
Það segir líklega mest um góðærið
að fyrir nokkrum árum las maður
blaðið Blaðið, fór á barinn Barinn,
skoðaði vefsíðuna vefsida.is, virti
fyrir sér safnið Safn og keypti fisk í
Fiskbúðinni. Í Eurovision-keppn-
inni, sem sjaldnast er besti mæli-
kvarðinn á frumleika þjóða, náði
andleysið endanlega yfirhöndinni í
fyrra þegar vinningslið Íslands hét
ekki einu sinni lengur mátulega
vondum nöfnum eins og Two Tricky
eða Heart2heart, heldur einfaldlega
Eurobandið. Meira að segja í Há-
skólanum var andagiftin ekki meiri
en sú að þeir skýrðu rit sitt Ritið.
Nú er góðærið búið, blaðið Blað-
ið horfið, Barinn heitir Caramba
(sem er þó skárra) og vonandi fáum
við betri Eurovision-lög, nú þegar
öld andleysisins virðist liðin. Fyrst
og fremst vona ég þó að við fáum
stjórn sem er eins ólík þeirri sem sat
hér undanfarin 18 ár og hugsast get-
ur, sem lætur heiðarleika og hjálp-
semi koma í stað græðgi og stöðugra
blekkinga. Ef svo fer getur maður
loksins sagt á laugardagskvöld: Til
hamingju, Ísland.
Að halda með Íslandi
og kjósa stjórnina
mynDin
Staðið Í StrÖngU mikið hefur mætt á starfsliði landhelgisgæslunnar að undanförnu, en gæslan hafði hendur í hári illræmdra fíkniefnasmyglara síðastliðinn sunnudag.
Notast var við varðskip, þyrlu og flugvél í eltingarleiknum sem fór að mestu fram í lögsögunni, djúpt suðaustur af landinu. georg lárusson mátti vart vera að því að heilsa
sigtryggi ara ljósmyndara þegar hann átti leið um flugskýlið. „Hann er alltaf í símanum,“ sagði Hrafnhildur stefánsdóttir upplýsingafulltrúi við þetta tækifæri. mynd SigtryggUr ari
kjallari
vaLUr
gUnnarSSon
rithöfundur skrifar
„Á að leyfa auðmönn-
um að leggja ekkert
inn og taka bara út úr
gleðibönkum sínum?“