Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Side 32
föstudagur 24. apríl 200932 Helgarblað
Stjórnmálin og lífið
Gaman að renna
fyrir fisk
Bjarni Benediktsson, formaður
sjálfstæðisflokksins:
Í einu orði, hver var orsök hrunsins?
„Áhættusækni.“
Hverju myndir þú breyta á Íslandi ef þú gætir
breytt hverju sem er?
„Ég myndi láta einskis ófreistað að koma heimilum
og fyrirtækjum yfir erfiðasta hjallann, skapa
atvinnulífinu hagstæð skilyrði til þess að atvinnu-
leysi yrði útrýmt og tryggja að komandi kynslóðir
fengju sömu tækifæri og nytu sömu lífsgæða og
við höfum notið hér á landi síðustu tvo áratugi.“
Vissir þú fyrir hrun að ríkisábyrgð væri á
erlendum innlánum einkabanka?
„Ég var meðvitaður um að innstæðutryggingasjóð-
ur ábyrgðist innstæður í íslenskum bönkum. En ég
er ósammála því að íslensku þjóðinni hafi borið
lagaleg skylda til þess að ábyrgjast útrás bankanna
og mun beita mér af alefli fyrir því að íslendingar
verði ekki beygðir í þeim efnum.“
Hver er besti tími sólarhringsins?
„Morgnarnir. sama hversu mikið annríkið og álagið
hefur verið, þá vaknar maður fullur bjartsýni og
starfsþreks að morgni.“
Hefur þú villt á þér heimildir á netinu? „Nei.“
Hversu lengi hugnast þér að leiða þinn
flokk?
„Ég hef aðeins verið formaður sjálfstæðisflokksins
í þrjár vikur og veit að það er langhlaup að vinna
aftur trúnað fólksins í landinu. Það verður ekki gert
í einu skrefi. En ég sæki mitt erindi í hugsjónina
um frjálst samfélag, samfélag sem virkjar dugnað
og athafnavilja fólksins, samfélag þar sem öflugt
atvinnulíf er forsenda velferðar og samfélag þar
sem frelsinu fylgir ábyrgð – en það er ekki á ábyrgð
annarra. Ég mun vinna að því á meðan mér endist
starfsþrek.“
á þjóðin kvótann?
„auðlindir landsins eru sameiginleg eign
þjóðarinnar, en afnotarétturinn er á forræði þeirra
sem stunda sjávarútveg. Ég er sannfærður um
að kvótakerfið er skynsamlegasta fyrirkomulag
fiskveiðistjórnunar við ísland, enda veit ég að
aðrar þjóðir horfa öfundaraugum til íslendinga í
þeim efnum. Ef hróflað verður við því er verið að
kollsteypa grundvallaratvinnuvegi þjóðarinnar og
grafa undan byggðum landsins.“
ertu trúaður og hvernig iðkar þú trú þína?
„Já, ég hef alltaf verið trúaður. Ég ætla mér það
ekki að ég þekki hinstu rök tilverunnar, en leyfi
mér að lifa í voninni um að til sé æðri máttur og að
hann sé velviljaður.“
Hvaða kvikmynd sást þú síðast í bíó?
„slumdog Millionaire.“
Hvað á íslenska krónan langt eftir?
„Það er ljóst að viðreisn efnahagslífsins verður
byggð á íslensku krónunni og að stjórnvöld mega
ekki grafa undan henni. En til þess að það takist
má ekki bíða stundinni lengur með að móta
trúverðuga peningastefnu og eyða óvissunni
sem skapast hefur vegna jöklabréfa og Icesave.
En hvaða gjaldmiðil sem við notum til framtíðar
er ljóst að við verðum að beita miklu meiri aga
og aðhaldi í ríkisfjármálum til þess að forðast
óhagstæðar sveiflur í gengismálum.“
Hversu hátt hlutfall atkvæða yrði framboði
þínu ásættanlegt?
„Ég hef ekki sett mér töluleg markmið fyrir þessar
kosningar. Mér finnst mikilvægast að upp úr
kjörkössunum komi ríkisstjórn sem vinni í þágu
heimilanna, skapi störf og virki kraftinn í fólkinu.“
langar þig að biðja einhvern afsökunar?
„Nei.“
Hvaða fjölmiðli treystir þú best?
„Ég tel það ekki rétt að gera upp á milli fjölmiðla.“
Hefur þú drepið dýr?
„Já, mér finnst gaman að renna fyrir fisk.“
er þetta allt útrásarvíkingunum að kenna?
„Ég held það væri langt seilst að kenna útrásar-
víkingunum um mestu kreppu sem komið hefur
upp í heiminum frá heimsstyrjöldinni síðari.
stjórnendur fjármálafyrirtækja gerðu illt verra með
áhættusækni, en vitaskuld liggur ábyrgðin víðar
og það hafa margir horfst í augu við sinn þátt í
bankahruninu á undanförnum mánuðum.“
Hvaða Íslendingur er skemmtilegastur?
„guðni Ágústsson.“
er einhver þingmaður í röngum flokki?
„sumir þingmenn hafa nú spreytt sig í nokkrum
flokkum. Ætli þeirri leit ljúki nokkurn tímann?“
Hversu hratt hefur þú keyrt á Íslandi?
„Ég reyni að halda mig við löglegan hraða.“
Hvað getum við lært af hruninu?
„Við getum dregið lærdóm af því á mörgum
sviðum. Ég hef til dæmis lagt ríka áherslu á það, að
skerpa þurfi lagarammann um fjármálafyrirtæki og
að eftirfylgnin þurfi að vera beittari.“
Hvenær verður botni kreppunnar náð?
„Við eigum erfiða vegferð fyrir höndum, en ef
haldið er rétt á spilunum getum við komist í
gegnum mesta brimskaflinn á tveimur árum.“
Brugðust fjölmiðlar í aðdraganda hrunsins? „Já, ég
tel að fjölmiðlar hefðu átt að sýna ríkara aðhald og
spyrja gagnrýnni spurninga.“
Hefurðu neytt fíkniefna?
„Nei.“
Þurfa þingmenn aðstoðarmenn?
„Ég hef lagt áherslu á það að styrkja beri löggjaf-
arvaldið gagnvart framkvæmdavaldinu og til
þess þarf að veita þingmönnum stuðning í sínum
störfum. Ég er ekki viss um að aðstoðarmanna-
kerfið sé rétta leiðin til þess, en ef það verður lagt
niður, þá þarf að treysta bakland þingmanna með
öðrum hætti í staðinn.“
skortir pólitíska ábyrgð á Íslandi, sbr.
bankahrunið?
„sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt í mikla vinnu við
að gera upp sinn þátt í málinu með endurnýjun
á framboðslistum flokksins, kynslóðaskiptum í
forystu flokksins, starfi endurreisnarnefndar og
opinskáum umræðum á landsfundi flokksins. Ég
sé hinsvegar engin merki þess að aðrir stjórnmála-
flokkar hafi farið í sambærilega naflaskoðun.“
Kemur til greina að breyta þingsköpum til að
lágmarka málþóf? „Við gerðum breytingar á
þingsköpunum fyrir tveimur árum sem mörkuðu
umræðum á þingi skýrari ramma og voru að mínu
mati mjög til bóta fyrir þinghaldið.“
kanntu á þvottavél?
„Já.“
Örlög sumra þeirra ráðast á laugardaginn og víst er að hvernig sem fer hafa alþingiskosningarnar mikil
áhrif á líf forystufólks þeirra stjórnmálahreyfinga sem eru í framboði. DV spurði formenn og oddvita allra
lista spjörunum úr, bæði um nútíð og framtíð í stjórnmálum og ekki síður um persónulega hluti.