Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Side 37
föstudagur 24. apríl 2009 37Helgarblað
Gengur blindur
til kosninga
ast. Viðskiptahallinn hneig ár eftir ár;
hve lengi gat það verið þannig? Skuld-
ir heimilanna fóru ört vaxandi. Þegar
ég var í pólitík var talið að hætta væri
á ferðum þegar skuldir heimilanna
væru orðnar jafnháar tekjunum. Þær
voru orðnar tvöfalt eða þrefalt hærri
en tekjurnar áður en nokkur vissi af. Ég
tala nú ekki um ósköpin þegar skuldir
bankanna erlendis voru orðnar tífald-
ar þjóðartekjur. Hvers vegna vöknuðu
menn ekki til umhugsunar?
Eftir því sem ég skil var það ekki
fyrr en fulltrúi Seðlabankans var kall-
aður á fund með erlendum bönkum
vorið 2007 að bankinn vaknaði upp
með skelfingu. Í kjölfarið hélt seðla-
bankastjóri fund með tveimur eða
þremur ráðherrum og las upp fyrir þá
minnisblað. Þeir fengu það hins veg-
ar ekki afhent. En í stað þess að herða
ólina og þvinga bankana til að draga
saman fara Ingibjörg Sólrún og Geir
Haarde til útlanda og flytja fyrirlestra
um ágæti íslenska peningakerfisins,
stöðugleika þess og styrkleika. Þetta er
svo ótrúleg saga.
Ef ég á að segja alveg eins og er
trúði ég henni varla þegar ég sá hana
gerast. En þó hafði ég hvergi nærri
þær upplýsingar sem þetta fólk hafði.
Ég hafði bara þær upplýsingar sem ég
sá í blöðum og hlustaði á í fréttum.“
Erfitt að stjórna eftir kosningar
Þótt Steingrímur segist nú í fyrsta sinn
ganga til kosninga með bundið fyrir
augun er enginn efi í hans huga um að
kjósa Framsóknarflokkinn í kosning-
unum, eins og kannski má ráða af orð-
um hans hér að framan.
„Ég er alveg viss um hvað ég ætla
að kjósa. Framsóknarflokkurinn er
eini flokkurinn sem lagt hefur fram
tillögur sem eru raunhæfar í að bæta
skuldastöðu heimila og fyrirtækjanna
og í að rétta við efnahag þjóðarinnar.
Og ég fagna því mjög að við flokknum
hafa tekið ungir menn og konur sem
hefja á ný upp hugsjónina um mann-
gildið ofar auðgildinu sem flokkurinn
hefur alltaf byggt á, eða allt þar til fyrir
um tíu árum, svo ég styð Framsóknar-
flokkinn heilshugar.“
Hvers konar stjórnarsamstarf
myndir þú vilja sjá að loknum kosn-
ingum?
„Ég myndi vilja sjá stjórnarsam-
starf þriggja flokka, Framsóknarflokks
með Samfylkingu og Vinstri grænum.
Ég held að það komist næst þeirri fé-
lagshyggjustjórn sem ég myndi vilja
sjá. Hins vegar held ég að það verði
óskaplega erfitt að stjórna eftir kosn-
ingar af því að það er svo mikið fal-
ið. Skuldirnar eru faldar. Hvað mun-
um við þurfa að greiða? Hvað þarf að
skera niður? Er það rétt sem lærðir
hagfræðingar hafa sagt að það sé úti-
lokað að við Íslendingar getum greitt
þessar skuldir og við séum gjaldþrota
þjóð? Vaxtabyrði ríkissjóðs er miklu
hærri en ríkissjóður ber; hvernig á að
taka á því máli?“
Það sem Hitler tókst ekki
Steingrímur telur að mismunandi af-
staða flokkanna þriggja til ESB-aðild-
ar ætti ekki að vera fyrirstaða í að þeir
myndi ríkisstjórn eftir kosningar. Sjálf-
ur er hann á móti því að Ísland sæki
um inngöngu í ESB því full aðild henti
ekki Íslendingum af ýmsum ástæð-
um.
„Ég get ómögulega séð að það geti
hjálpað okkur. Ég tel að ESB sé mjög
þörf stofnun og þörf samtök í Evr-
ópu til að forða því til dæmis að Evr-
ópa gangi til stöðugra styrjalda. Ég skil
því mjög vel að þessar þjóðir sem eru
samanlímdar á litlu svæði vilji vera
í ESB. En mér finnst allt stefna í að
stórveldi Evrópu, Þýskaland sérstak-
lega og kannski Frakkland og Bretland
að vissu leyti, leggi undir sig álfuna.
Þýskalandi er að takast það sem Hitler
tókst ekki, að leggja undir sig Evrópu.
Að einhverjum detti í hug að stórveldi
„Náttúrlega má segja
að það sé undarlegt að
menn skyldu ekki
vakna til umhugsunar
um í hvað stefndi. Ég
sem fyrrverandi pólitík-
us sitjandi hér heima
gat ekki annað en
furðað mig á því sem
var að gerast.“
Steingrímur Hermannsson
gegndi nokkrum ráðherraemb-
ættum á stjórnmálaferlinum sem
spannaði tæpan aldarfjórðung.
MYND HEiða HElgaDóttir